Fréttablaðið - 03.05.2012, Qupperneq 36
3. MAÍ 2012 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● hjólað í vinnuna
V
ordag einn árið 2007
ákvað kerfisstjórinn
Helgi Hinriksson, þá
35 ára, að taka þátt í
átakinu „Hjólað í vinnuna“ ásamt
starfsfélögum sínum hjá Vodafone.
Ekki vildi betur til en svo að Helgi
„rétt komst í vinnuna“ þennan dag,
á gamla hjól garminum sínum.
Hann var klukkutíma og korter
á leiðinni úr Hafnarfirði niður í
Skútuvog og mætti of seint, bæði
rjóður og móður. „Já, já, ég fékk
blóðbragð í munninn strax í fyrstu
brekkunni, enda allt of þungur og
ekki í neinu formi. Þurfti að teyma
hjólið á köflum. Vinnu félögunum
leist held ég ekkert á blikuna,“
rifjar Helgi upp.
Nú, fimm árum síðar, er annað
uppi á teningnum, enda breytti
Helgi átakinu í lífstíl – og rúmlega
það. „Þetta vatt upp á sig í mínu
tilfelli. Ég kláraði átakið og hélt
svo bara áfram að hjóla í vinnuna.
Græjaði mig smám saman upp,
fékk mér nýtt hjól og almennilegan
fatnað. Í dag er ekkert sem stoppar
mig, nema kannsk i óruddir
hjólastígar eða hávaðarok,“ segir
Helgi, sem hjólar nú þessa sömu
vegalengd á 40 mínútum – á
spánnýju hjóli frá Kría Hjól.
Ekki er þó öll sagan sögð.
Helgi tók f ljótlega að léttast og
gat því farið „að skoða eitthvað
sem heitir hlaup,“ eins og hann
orðar það. Formið varð sífellt
betra og betra og hugmyndin
um „ Járnkarl“ kviknaði, sem
er gífurlega erfið þríþraut: 180
kílómetra hjól reiðar, 3,8 kíló-
metra sund og 42,2 kílómetra
hlaup. Helgi þreytti svo Kölnar-
Járnkarlinn í fyrra með góðum
árangri, þótt dekk hefðu sprungið
í fjórgang. Helgi er núverandi for-
maður Þríþrautar félags Hafnar-
fjarðar ( www.3sh.is) en líklega
var ekkert eins fjarri honum fyrir
fimm árum síðan.
Helgi vill meina að aðstæður
á vinnustað verði að vera góðar,
svo fólk fáist almennt til að hjóla í
vinnuna. „Hjá Vodafone er þetta til
fyrirmyndar; fínar sturtur og læst
hjólageymsla, allt tipp-topp. Fyrir-
tæki ættu fyrir alla muni að koma
upp svona aðstöðu fyrir starfsfólk,
sé það möguleiki. Það borgar sig
pottþétt til lengri tíma litið, með
auknu heilbrigði og vellíðan fólks.
Og svitinn er þá ekki heldur nein
afsökun, fyrir þá sem setja hann
fyrir sig yfir höfuð.“
Umferð hjólandi vegfarenda
hefur aukist mikið síðustu árin,
en stígar þeim til handa láta á sér
standa, þótt vissulega hafi margt
breyst til batnaðar, að sögn Helga.
„Ég á til dæmis bágt með að skilja
af hverju eru ekki lagðir göngu-
og hjólastígar meðfram stofn-
æðum, eins og til dæmis Reykja-
nesbraut og báðum tengi leiðunum
inn í Reykjavík úr Hafnarfirði.
Stígar þarnar yrðu mikið notaðir
og myndu draga úr hættunni sem
myndast þegar fólk kýs að hjóla úti
í vegkanti.“
Breyttist í járnkarl
Átakið „Hjólað í vinnuna“ opnaði nýjar víddir í lífi Helga Hinrikssonar. Hann er nú
formaður Þríþrautarfélags Hafnarfjarðar.
Hjólað í vinnuna hjá Vodafone árið 2007. Helgi er þriðji frá hægri.
Helgi hljóp heilt maraþon í Köln, sem er
þó aðeins einn hluti af Járnkarlinum.
Snorri Már Snorrason ætlar að
hjóla hringinn í kringum landið
í sumar þrátt fyrir að vera með
Parkinsons-sjúkdóminn. Ferðin
hefur hlotið nafnið Skemmti-
ferðin og er markmiðið að vekja
fólk til umhugsunar um mikil-
vægi hreyfingar.
„Maður þarf að vera full-
hraustur til að vera veikur,“ segir
Snorri sem greindist með tauga-
sjúkdóminn Parkinsons fyrir átta
árum. Sjúkdómurinn gerir alla
hreyfingu erfiðari og krefst þess
að hann viðhaldi stöðugt styrk
og liðleika líkamans og vonast
Snorri til að vekja áhuga fólks á
mikilvægi hreyfingar með fram-
taki sínu. „Það þarf kannski ekki
mikið til að espa keppnisfólk sem
nú þegar stundar hreyfingu. En
það er fólkið sem hreyfir sig lítið
og er ekki að hjóla, hlaupa eða
hreyfa sig sem þarf á hvatningu
að halda. Ef ég get skrölt hringinn
í kringum landið með minn sjúk-
dóm þá ætti það að vera hvatning
fyrir fólk með fulla heilsu til að
labba út í búð, ganga stigann og
sleppa lyftunni eða fara í stuttan
göngutúr,“ segir Snorri, en þess
má geta að hjólreiðarnar eru alls
enginn leikur fyrir hann og þarf
hann til dæmis að festa hægri
fótinn við pedalann.
Snorri segir að það þurfi ekki
neinar öfgar til að stunda líkams-
rækt. „Íþróttagalli og afrek eru
ekki nauðsynleg til að stunda
líkamsrækt. Það að fara í léttan
göngutúr er líkamsrækt.“ Snorri
bendir á að fólk fari oft ekki að
hugsa um heilsuna eða hreyfingu
fyrr en einhver heilsubrestur
banki upp á. „Þess vegna segi ég
við þá sem eru hraustir og heil-
brigðir: „Gerið það fyrir okkur
hin sem erum veik og getum
ekki beitt okkur almennilega að
hreyfa ykkur við flest tækifæri.“
Áhugasömum er bent á heimasíðu
Parkinsons samtakanna psi.is þar
sem hægt er að skoða upplýsingar
um Skemmtiferðina betur.
Hjólar hringinn þrátt fyrir
að vera með Parkinsons
Snorri Már Snorrason ætlar að skemmta
sér við að hjóla hringinn í kringum
Ísland. MYND/PJETUR
Árni Jónsson tók fyrst þátt í
átakinu „Hjólað í vinnuna“ árið
2007, þá með félögum sínum í úti-
vistarmiðstöð Nauthólsvíkur í
Reykjavík, en hann var þar deildar-
stjóri. Líkt og svo margir sem byrja
í átakinu, ánetjaðist Árni hjól-
reiðunum og var fljótlega farinn að
hjóla til og frá vinnu þótt átakinu
sjálfu væri formlega löngu lokið. „Í
byrjun fannst mér átakið aðallega
fólgið í því að hjóla fram hjá bílnum
á morgnana,“ segir Árni og hlær.
Leiðin að heiman úr Norðlinga-
holti og niður í Nauthólsvík er um
11 kílómetra löng, en þegar á leið
tók Árni oft aukasveig til að lengja
hana. „Svo fékk ég mér vagn aftan
í hjólið fyrir barnaskutl og búðar-
ferðir, þannig að ábyrgð mín í dag-
legu stússi heimilisins varð síst
minni þótt ég væri á hjóli.“
Í janúar venti fjölskyldan hins
vegar kvæði sínu í kross og fluttist
til Dalvíkur, þar sem Árni tók við
starfi íþrótta- og æskulýðsfull-
trúa. Allt lífið varð einfaldara, þar
á meðal leiðin í vinnuna, sem fór úr
11 kílómetrum í rúma 400 metra.
Til að halda dampi, þurfti Árni því
að finna nýjar hjóla leiðir í dreif-
býlinu. „Það var nú ekki mikið mál.
Ég er til dæmis búinn að finna eina
leið um Skíðadal og aðra fallega 27
kílómetra leið um Svarfaðardal,
sem kallast „Sveita hringurinn“.
Get eiginlega ekki beðið eftir að
hjóla þá leið í vor blíðunni. Við
slíkar aðstæður er varla til fal-
legri staður á jörðinni,“ full yrðir
Árni, sem er þegar byrjaður að
æsa samstarfsfólkið upp í hjólat-
úr. „Jú, það verður tekin hópferð
um Svarfaðar dalinn fljótlega. Það
eru samningaviðræður í gangi
núna. Mér sýnist vera að myndast
öflugur þrýstihópur sem heimtar
nestispásu á leiðinni. Ætli maður
beygi sig ekki undir það,“ segir
Árni og kímir. „Því aðalmálið er
að fara af stað. Koma sér í gang.
Restin kemur síðan af sjálfu sér.“
Hlakkar til að hjóla
„Sveitahringinn“ í vor
Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar, á hjólinu við Másstaði í
Skíðadal þann 1. maí. Þaðan hjólaði hann „þessa dásamlegu leið“ aftur til Dalvíkur.