Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 1

Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 1
Helgarblað MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 spottið 12 30. júní 2012 152. tölublað 12. árgangur 4 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Ferðir l Sparneytnir bílar l Atvinna Fólk S öngkonan ástsæla Sigríður Bein-teinsdóttir, sem flestir þekkja auðvitað sem Siggu Beinteins, verður fimmtug í júlí. Af því tilefni mun hún halda stórtónleika í Háskólabíói á afmælisdaginn sinn, fimmtudaginn 26. júlí. Söngkonan fagnar einnig þrjátíu ára starfsafmæli sínu í ár. Hún segist ekki hafa átt von á því, þegar hún hóf tónlistarferil sinn árið 1982, að þrjátíu árum síðar ætti hún eftir að syngja enn á sviði og vera hvergi nærri hætt. „Það var alltaf draumur minn að starfa við tónlist en á þeim tíma átti ég aldrei von á því að endast svo lengi í bransanum. Tíminn hefur svo sannarlega liðið hratt og stundum jafnvel of hratt.“Á tónleikunum mun Sigga syngja lög frá 30 ára ferli sínum sem hófst með hljómsveitinni Kikk. Hún vakti fyrst verulega athygli hérlendis þegar hún söng lagið „Vertu ekki að plata mig“ með HLH flokknum árið 1984 og eftir það varð ekki aftur snúið. Við tók farsælt tímabil með hljómsveitinni Stjórninni, sem var ein vinsælasta hljómsveit landsins um árabil, þátttaka í Eurovision-keppninni auk fjölda annarra verkefna. Fjöldi góðra gesta syngur með Siggu á tónleikunum. Þar má meðal annars nefna Björgvin Halldórsson, Grétar Örvars son, Friðrik Ómar, Regínu Ósk og Pál Óskar Hjálmtýsson. En hvað skyldi standa upp úr á þrjá-tíu ára ferli Siggu? Hún segir Eurovision-keppnirnar skipa stóran sess enda tók hún fjórum sinnum þátt; þrisvar sem sólósöngkona og einu sinni sem bakraddasöngkona. „Síðan er auðvitað Stjórnin stór og eftirminnilegur þáttur í ferlinum. Við vorum ein vinsælasta hljómsveit landsins um árabil og þetta var virkilega skemmtilegur tími. Það sem gerði það tímabil svo skemmtilegt var að þá ferðuðumst við í rútu um landið og spiluðum á sveitaböllum. Sveitaböllin eins og þau voru í gamla daga eru ekki til lengur og það var gaman að ná því tímabili.“Það er meira á döfinni hjá Siggu en stórtónleikarnir. Í haust opnar hún eigið söngstúdíó þar sem hún mun kenna söng. „Ég hef rekið eigin söngskóla í Noregi frá árinu 2003 en hef lengi gælt við að kenna aftur söng hér á Íslandi. Nú læt ég loks þann draum verða að veruleika.“ Sumarið hefur að mestu farið í undir- búning afmælistónleikanna og stofnun söngskólans. Það verður því lítið um sumarfrí næstu vikurnar hjá Siggu og fjölskyldu. „Við tókum þó smá forskot á sæluna og eyddum tveimur vikum á Spáni í upphafi sumars. Þessa dagana fer hins vegar mesta orkan í tónleikana. Við ætlum líka að gera þetta svolítið skemmtilegt. Það verða sýnndar myndir og myndbrot á tónleikunum og í and-dyri Háskólabíós verða til sýnis ýmsir munir sem tengjast ferlinum, til dæmis búningar, ljósmyndir og blaðagreinar.“ ■ starri@365.is EITT LAG ENNSTÓRAFMÆLI Stórtónleikar verða haldnir í Háskólabíói í júlí í tilefni 50 ára afmælis Siggu Beinteins. Fjöldi góðra gesta syngur með afmælisbarninu. AFMÆLISBARNSigríður Beinteinsdóttir á þrjátíu ára starfsferil að baki og fagnar fimm-tíu ára afmæli í júlí.MYND/ERNIR FJÖR Í EYJUMUm eitt þúsund fótboltastrákar eru nú mættir til Eyja til að taka þátt í Shell-mótinu. Mótið var sett í gær. Gert er ráð fyrir að um þrjú þúsund manns verði í Eyjum um helgina til að fylgjast með strákunum. ER HAFIN atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursso n vip@365.is 512 542 6 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 54 41 Við leitum að fag lærðum framreið slumanni/framre iðslumeistara me ð: • Frumkvæði og vilja til þess að veita framúrskar andi þjónustu • Hæfni til þess að skipuleggja o g stjórna vöktum • Hæfni til þess að stýra skipulag i á stórum veiting a og fundaviðbu rðum • Metnað og ge tu til þess að star fa á vöktum undi r álagi FRAMREIÐSLUM AÐUR/FRAMLEI ÐSLUMEISTARI Í FRAMTÍÐARST ARF VILT ÞÚ STARFA Í EINU AF UND RUM VERALDAR ? Um er að ræða spennandi starf með framsæknu veitingateymi. V iðamikil veitinga starfsemi er hjá Bláa Lóninu á ve itingastaðnum LA VA, Blue Cafe o g Lagoon bar. G læsilegir funda- og ráðstefnusalir eru einnig í Bláa Lóninu og í Eldb org í Svartsengi. Innan raða Bláa Lónsins starfa ú rvals starfsmenn sem búa yfir mik illi hæfni í mann legum samskiptu m, eru agaðir og fágaðir í framko mu og sinna sta rfi sínu af mikilli sa mviskusemi. Bláa Lónið er tó bakslaus vinnust aður og þar star fa að jafnaði 20 0-250 starfsmen n. Nánari upplýsin gar veita Hulda Gísladóttir, man nauðsstjóri, í net fanginu hulda@b luelagoon.is eða í síma 420- 8838 og Magnú s Héðinsson, rek strastjóri veitinga sviðs, í netfanginu mag nush@bluelagoo n.is eða í síma 4 20-8822 virka d aga Umsóknarfrestur er til 16. júlí og eru umsækjendu r beðnir um að sæ kja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins: www.bluelagoo n.is/Um-fyrirtae kid/Atvinna/ Spennandi tíma r framundan Sérfræðingur Verksvið: Umsjón með ver kefnum á sviði fu llorðins- ð l g mannau ðsmála Sérfræðingur Verksvið: Þriggja ára þróun arverkefni á svið i raunfærnis- mats sem og náms-og starfsr áðgjafar Önnur verkefni f yrir Fræðslumiðs töðina Blaðamaður Verksvið: Grein skrif í norr ænt rit um fullor ðinsfræðslu Þátttak í ritstjór narfundum með samstarfs- aðilum frá No rðurlöndum k öf r: Kynningarblað umhverfisvænir bílar, Strætó endurnýjar flotann, sparnaður í bílarekstri.. SPARNEYTNIR LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2012 BÍLAR FERÐIR LAUGAR DAGUR 30. JÚNÍ 2012 Kynning arblað Strönd f ræga fól ksins, á slóðum Harrys P otter, lautarfe rð í lofti . ÞJÓÐIN KÝS FORSETA Landsmenn ganga til kosninga í dag og kjósa sér forseta. Í gær þurfti að hafa mörg handtök við að setja upp kjör- klefa á kjörstöðum um land allt. Unnið var að uppsetningu kjördeildar í Austurbergi þegar ljósmyndari leit við í gær. Sjá síður 18 og 20. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HEILBRIGÐISMÁL Talið er að stór hluti þeirra sem hafa langvinna lungnateppu (LLT), jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Sjúkdómurinn er engu að síður talinn verða þriðja algengasta dánarorsökin á Íslandi árið 2020 og ein algengasta orsök örorku. Dóra Lúðvíksdóttir, lungna- sérfræðingur á Landspítalanum, segir líklegt að um eða yfir tutt- ugu þúsund Íslendingar þjáist af LLT. „Hversu margir gera sér grein fyrir því að þeir ganga með þennan hættulega sjúkdóm er hins vegar annað mál. Vandinn liggur í því hversu lúmsk LLT er, og fer stigversnandi með árunum ef ekk- ert er að gert. Það verður að segj- ast að við Íslendingar höfum ekki gert okkur grein fyrir því hversu stórt vandamál þetta er og kemur til með að vera á næstu árum.“ LLT er samheiti yfir langvinna berkjubólgu og lungnaþembu. Þetta eru sjúkdómar sem nær ein- göngu miðaldra og eldra fólk þjá- ist af. Flestir hafa reykt lengi, en þó má í einstaka tilfellum rekja orsakir til atvinnu, mengunar og erfða. LLT er ólæknandi sjúkdóm- ur en margt er hægt að gera til að bæta lífsgæði þeirra sem búa við sjúkdóminn. Tíðni sjúkdómsins fer vaxandi á Íslandi, sem og annars staðar í heiminum. Er það fyrst og síðast vegna þess að fjölmennir árgang- ar, sem gjarnan reyktu, eru komn- ir yfir miðjan aldur. „Þetta mun versna áður en þetta batnar aftur,“ segir Dóra. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var hér á landi árið 2007 sýndi að af 755 þátttakendum reyndust 27% vera með LLT á mismunandi stigum sjúkdómsins. Stór hluti þess hóps var grunlaus um ástand sitt. Lungnalyf vega sífellt meira í heildarlyfjakostnaði heilbrigðis- kerfisins á Íslandi en til að berj- ast við LLT þarf daglega notkun dýrra lyfja í langan tíma, jafnvel árum saman. „Eins ber samfélagið mikinn kostnað af öllu því fólki sem fer á örorkubætur langt fyrir aldur fram vegna þessa sjúkdóms,“ segir Dóra. Dóra hvetur alla sem finna fyrir einkennum frá öndunarfærum til að fara í öndunarmælingu á sinni heilsugæslustöð, hafi þeir ekki þegar fengið greiningu. „Eins á þetta við um alla sem reykja eða hafa reykt. Þeir þurfa að vita hver staðan er.“ - shá Sjúkir án þess að vita það Rannsóknir sýna að fjölmargir Íslendingar þjást af alvarlegum lungnasjúkdómi en hafa aldrei verið greindir. Verður ein algengasta dánarorsök á Íslandi árið 2020. Kostar milljarða vegna lyfja og ótímabærrar örorku. þátttakenda í ís- lenskri rannsókn reyndust vera með langvinna lungnateppu. 27% Græddu á gulli á Grand Hótel Laug. sun, mán, frá kl 11:00 til 19:00 Staðgreiðum allt gull, silfur, demanta og vönduð úr. Skoðið nánar á bls. 29 Upplýsingar og tímapantanir, Sverrir s. 661-7000 sverrir@kaupumgull.is og flott útsala Fjörug Opið til 18 í dag Nýbakaður doktor Elín Ólafsdóttir hóf doktorsnám við starfslok. tímamót 32 Þetta er bara ævintýramennska bændur 16 Fyndin eiturlyfjafíkn Fíklar nota gjarnan húmor í baráttunni við fíknina. húmor 24 Ráð rithöfunda bækur 26 Tíu konur lokaðar inni Tvö dansverk frumflutt í Gaflaraleikhúsinu. menning 38 Heillandi heimur Vestmannaeyjar 28

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.