Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 12

Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 12
12 30. júní 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 S ú mýta er vinsæl, ekki sízt í útlöndum, að íslenzkir skatt- greiðendur hafi ekki þurft að punga neinu út til að halda bönkum á floti, eins og almenningur í ótal mörgum öðrum ríkjum þarf að gera. Þetta á víst að vera ein skýringin á nýja, íslenzka efnahagsundrinu. Ýmsir málsmetandi full- trúar íslenzkrar stjórnmálastéttar hafa ýtt undir mýtuna, sem draga má saman í fleygum orðum: Við borgum ekki skuldir óreiðumanna. Vissulega ábyrgðist íslenzka ríkið ekki skuldir bankanna, enda var það ósköp einfaldlega ómögu- legt; þær námu nífaldri lands- framleiðslu. Erlendir lánveitendur bankanna voru látnir taka á sig gríðarlegt högg. Hins vegar er það vægast sagt ofmælt að íslenzkir skattgreiðendur hafi ekki þurft að gjalda fyrir vitlausar ákvarðanir í bankakerfinu fyrir hrun. Ríkisendurskoðun gaf í vikunni út skýrslu um fyrirgreiðslu ríkis- ins við fjármálafyrirtæki og -stofnanir eftir hrun. Hún er samantekt á upplýsingum um fjárútlát, lán og ábyrgðir skattgreiðenda vegna fjármálafyrirtækja í vandræðum. Ríkisendurskoðun bendir á að þessar skuldbindingar skattgreiðenda séu svo ólíks eðlis að ekki sé hægt að nefna eina samtölu um það hvað sameiginlegur sjóður landsmanna hefur lagt út í þágu fjármálafyrirtækjanna, það myndi gefa villandi mynd af stöðunni. Út úr samantektinni má þó lesa að við borgum dágóðan slatta fyrir óreiðumenn. Eiginfjárframlag skattgreiðenda til nýju bankanna þriggja nemur 138,2 milljörðum og víkjandi lán til þeirra 57,3 milljörðum. Þessum peningum var sennilega skynsamlega varið til að halda bankastarf- seminni gangandi og líklegt er að ríkið nái þeim til baka í gegnum arð og sölu á hlut sínum í bönkunum. Aðrar ákvarðanir, sem hafa reynzt skattgreiðendum fokdýrar, eru umdeilanlegri. Seðlabankinn og ríkissjóður töpuðu 267 milljörðum vegna lána til bankanna fyrir hrun (þegar Seðlabankinn vissi, að eigin sögn, að þeir voru á leiðinni á hausinn). Ríkisendurskoðun telur enn ekki unnt að meta hvort eitthvað innheimtist af kröfum á móti þessum töpuðu peningum. Við töpum 25 milljörðum á SpKef og 1,7 milljörðum á minni spari- sjóðum. Kröfur á VBS, Aska og Saga Capital, samtals 52 milljarðar, telur Ríkisendurskoðun tapaðar. Þessum fyrirtækjum kom ríkið til aðstoðar með einum eða öðrum hætti eftir hrun en tókst ekki að bjarga neinu þeirra. Er þá margt ótalið úr samantektinni. Önnur vinsæl mýta er að með því að hafna tveimur Icesave- samningum sem forseti Íslands vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslu hafi íslenzkir skattgreiðendur komið af sér þeirri áþján að borga fyrir óreiðumennina sem settu Landsbankann á hausinn. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur það rétta skýrt í ljós: Icesave-málinu er ekki lokið. „Þar sem ekki tókst að ljúka málinu með samningum mun niðurstaða þess ráðast fyrir EFTA-dómstólnum. Aðilar munu engu að síður þurfa að semja sín á milli um endurgreiðslu og vexti verði niðurstaða málsins íslenskum stjórnvöldum í óhag,“ segir Ríkis- endurskoðun. Úrslit síðustu atkvæðagreiðslu þýða að Ísland hefur ekki lengur stjórn á niðurstöðunni með samningi, heldur getur nú brugðið til beggja vona. Ísland gæti unnið mikið á dómsniðurstöðunni og líka tapað miklu. Þeir sem réðu því að málið er komið í þessa stöðu eru ekki hetjur heldur fremur fjárhættuspilarar með fé skattgreiðenda. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Pólitísk málefni hafa verið dregin inn í forsetakjör með óvenju afgerandi hætti að þessu sinni. Samt er ólík- legt að draga megi ákveðnar póli- tískar ályktanir af úrslitunum. Að einhverju leyti eru kjósendur að senda skilaboð um hvers konar for- setaembætti þeir vilja hafa. En fyrst og fremst er þetta persónuleikakjör. Margir virðast vera sáttir við hvernig forsetinn hefur látið í emb- ætti og sumir hæstánægðir. Hug- myndin um forsetann sem eining- artákn virðast blandast óskum um að í honum megi finna eins konar ármann Íslands þegar mest ligg- ur við. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið hefur forsetan- um tekist að ná eyrum margra með þá kenningu að nú séu óvissir tímar og hann sé rétti ármaður- inn. Þetta á fyrst og fremst rætur í ánægju margra með hvernig hann hefur beitt sér gegn tveimur ólík- um ríkisstjórnum. Þeir sem kætast mest nú vönduðu forsetanum hins vegar ekki kveðjurnar 2004. Þeir sem helst atyrða hann í dag voru kampakátir 2004. Að baki þessu áliti á forsetanum liggur því lítil staðfesta og óljós grundvallarviðhorf. Þar virðast miklu fremur ráða pólitísk lögmál kennd við vindhana. Ýmsum, en alls ekki öllum, finnst sem forsetinn hafi beitt fyrir sig háleitum hugmyndum um ármann Íslands á Bessastöðum þegar hann var í raun og veru að láta reyna á vogarafl valdanna í eigin þágu. Ármaður Íslands Ofsagt væri að segja að embættið væri ónýtt. Nær lagi er að líkja því við fallna burst. Vafamál er hvort unnt er að endurreisa hana að óbreyttum stjórnskipun- arlögum. Þrátt fyrir málefnalega framgöngu hafa þeir forsetafram- bjóðendur sem helst hafa skírskot- að til klassískra hugmynda um forsetaembættið ekki með sann- færandi hætti náð að sýna fram á að það sé unnt. Sennilega þarf meira til en góðan vilja. Brýnt er því að marka þjóðhöfð- ingjaembættinu skýrt hlutverk í stjórnarskrá. En það megin- mál hefur varla verið rætt. Þessu marki er unnt að ná með litlum en áhrifaríkum breytingum. Ein er sú að flytja málskotsréttinn sem svo er nefndur til minnihluta þing- manna. Þetta má líka gera með því að halda synjunarvaldi forsetans en kveða á um að kjósa skuli að nýju til Alþingis falli lög í þjóðar- atkvæði en verði þau samþykkt skuli kjósa um forsetaembætt- ið að nýju. Þar með fylgdi meiri ábyrgð þessu valdi. Í reynd væri verið að stjórnarskrárbinda upp- haflega túlkun fræðimanna á þessu ákvæði. Aukin ábyrgð ætti að minnka líkurnar á að embættið verði virkur þátttakandi í refskák stjórnmálanna. Róttækasta breytingin er sú að taka upp bandaríska kerfið með valdajafnvægi milli löggjafar- og framkvæmdavalds. Sambland af því kerfi og þingræði er hins vegar versti kosturinn. Einnig má viðhalda hinu klass- íska einingarhlutverki með því að færa forsetanum ný stjórnskipuleg verkefni. Forsetanum þarf að ætla nægan starfa. En verkefnin verða á hinn bóginn að vera þess eðlis að hann geti staðið ofan við dæg- urþras stjórnmálanna. Nýfengin reynsla sýnir að það getur leitt embættið í ógöngur þegar sá sem því gegnir þarf að ákveða hlutverk sitt sjálfur. Enn allt veltur þetta þó á endanum á dómgreind þess sem hlutverkinu gegnir. Fallin burst Ein leið til að ná því tví-þætta markmiði að end-urheimta hugmyndina um einingarhlutverkið og gefa forsetanum stjórnskipu- legt verkefni við hæfi er að bæta hlutverki forseta Alþingis við þjóðhöfðingjaembættið. Forseti lýðveldisins yrði þá æðsti maður löggjafarvaldsins en ekki fram- kvæmdavaldsins eins og nú er. Það er í góðu samræmi við þá nútíma- hugmynd að löggjafarþingið sé æðra framkvæmdavaldinu. Um leið og sík breyting yrði gerð á stjórnskipulaginu væri eðli- legt að fella niður þá úreltu skipan að framkvæmdavaldið staðfesti ný lög. Forseti Íslands myndi eftir það sem æðsti maður löggjafarvalds- ins undirrita lög til staðfestingar um að þau hefðu verið sett með stjórnskipulega réttum hætti. Mikilvægt er hins vegar að halda þeim möguleika opnum að leggja mikilvæg þingmál fyrir þjóðina. Það má gera með því að viðhalda synjunarvaldinu en heim- ila forsetanum því aðeins að beita því að ákveðinn minnihluti þing- manna hafi lagt það til. Pólitíska ábyrgðin liggur þá á þeim vett- vangi. Með því að forsetinn yrði áfram þjóðkjörinn er líklegt að slík nýskipan myndi styrkja stjórn- skipulega stöðu Alþingis. Hún myndi einnig stuðla að betra valda- jafnvægi á Alþingi því stjórnar- meirihluti á hverjum tíma gæti þá ekki ráðið hver færi með æðstu stjórn þingsins. Þannig má slá tvær flugur í einu höggi: Reisa burst forsetaembættisins og efla virðingu Alþingis. Þingforsetastarfinu bætt við forsetaembættið ÞORSTEINN PÁLSSON Hjálpuðum við ekki bönkum í vandræðum? Við borgum líka www.forlagid.i s – alvör u bókaverslun á net inu NÝ BÓK FRÁ HUGLEIKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.