Fréttablaðið - 30.06.2012, Qupperneq 27
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 20122
Costa Smeralda er vinsæl strönd hjá snekkjueigendum.
Porto Cervo er við strönd sem ber nafnið Costa Smeralda en hún var sköpuð af millj-
arðamæringnum prins Aga Khan
IV árið 1962. Khan var eiginmaður
Ritu Hayworth en þau skildu árið
1951. Silvio Berlusconi á glæsilega
villu á þessum stað þar sem hann
hefur haldið íburðarmiklar veisl-
ur. Stórstjörnur á borð við Sean
Connery, Madonnu, Richard Gere,
Gwyneth Paltrow, Helen Mirren,
Denzel Washington, Lenny Kra-
vitz, Bruce Willis, Claudiu Schif-
fer og Evu Herzigova hafa sést á
lúxusveitingahúsum og börum
við ströndina. Snekkja Stevens
Spielberg hefur þar að auki legið
við höfnina.
Á Costa Smeralda er sjöunda
dýrasta hótel í heimi, Hotel Cala
di Volpe, en nóttin kostar rúmar
fjórar milljónir króna. James Bond
kvikmyndin The Spy Who Loved
Me var meðal annars tekin þar.
Dýrasti tíminn í Porto Cervo er
í júlí, ágúst og fram í september.
Almennir ferðamenn koma í dags-
ferð á þennan dýra stað þar sem
bjórglasið kostar um 3000 krón-
ur og í verslunum er lúxusfatnað-
ur frá frægustu hönnuðum heims.
Algengt verð á kventöskum hleyp-
ur á milljónum. Það er því tæpast
fyrir venjulega launþega að dvelja
í Porto Cervo.
Þegar prins Aga Khan kom
til Sardiníu árið 1962 heillað-
ist hann af grænu Miðjarðarhaf-
inu sem umlykur Porto Cervo en
svæðið var þá lítt þekkt. Hafið
minnti hann á smaragða og fékk
hann leyfi til að gefa ströndinni
nýtt nafn, Costa Smeralda. Hann
fékk færustu arkitekta til að hanna
staðinn og stofnaði bæði einka-
klúbb fyrir golfara og snekkju-
eigendur. Rainier prins var meðal
þeirra fyrstu sem skráðu sig í
klúbbinn.
Þangað flykkist
fræga fólkið
Porto Cervo á norðausturhluta Sardiníu hefur verið að sækja í sig veðrið sem
einn vinsælasti ferðamannastaður fræga og ríka fólksins. Einkaþotur og
lúxussnekkjur eru algeng sjón á þessum fallega stað.
Akstri erlendis þarf ekki að fylgja nein áhætta ef fólk gætir þess að fara
að lögum og reglum og hafa í huga að ákveðnar umferðarreglur eru
breytilegar frá einu landi til annars. FÍB hefur haldið námskeið um
akstur og ferðalög erlendis. Einnig er hægt að finna upplýsingar á vef
Umferðarstofu.
Löglegt eða ólöglegt
Umferðarlög á Evrópska efnahagssvæðinu hafa verið samræmd að
miklu leyti á undanförnum árum, þó er umtalsverður munur á milli
þeirra í ýmsum veigamiklum atriðum. Hámarkshraði er til dæmis
breytilegur eftir veðri í sumum löndum og viðurlög og refsingar eru
mismunandi.
Misjafnar kröfur um búnað
Reglur um búnað sem ökumönnum ber að hafa meðferðis í bílnum
geta verið mjög breytilegar eftir löndum. Misjafnt er hvort þurfi viðvör-
unarþríhyrning meðferðis eða skærlit öryggisvesti, hvort varadekk skuli
vera í bílnum, eða hvort skuli eða megi aka á negldum vetrardekkjum
að vetrarlagi eða ekki. Í sumum löndum er krafist merkinga á bíla með
farangur sem skagar út fyrir fram- eða afturenda bílsins, líkt og reið-
hjólastatíf. Í öðrum löndum eru slíkur farangur og jafnvel merkingar
ólöglegar. Reglur um farangur af þessu tagi gilda í flestum tilvikum um
húsbíla, húsvagna og tjaldvagna.
Torskilin umferðarmerki
Flest algengustu umferðarskiltin, til dæmis sem gefa merki um há-
markshraða, stöðvunarskyldu, biðskyldu og fleira, eru nokkurn veginn
hin sömu eða svipuð í öllum löndum. Öðru máli getur gegnt um hvers
konar upplýsinga- og leiðbeiningarskilti með nöfnum borga og bæja og
upplýsingar um áttir og stefnur. Blár og grænn litur er ýmist notaður til
að tákna hraðbrautir eða þjóðvegi og stundum er texti hafður á leiðbein-
ingarskiltum í stað auðskiljanlegra merkja, sem er bagalegt ef maður
skilur ekki orð í viðkomandi tungumáli.
Þitt að skilja reglurnar
Ýmis merki geta verið breytileg frá einni evrópskri borg til annarrar,
jafnvel innan sama lands. Merki sem tákna takmarkanir á hvar, hvenær
og hvernig má leggja eru yfirleitt nokkuð skýr. Öðru máli gegnir um út-
skýringar í rituðu máli um tímalengdir og takmarkanir sem geta verið
ill- eða óskiljanlegar öðrum en heimamönnum. Lögregla og stöðuverð-
ir eru í mörgum evrópskum borgum iðnir við að ýmist setja læsingar á
bíla sem er ólöglega lagt eða jafnvel flytja þá. Sú staðreynd að þú sért út-
lendingur og skiljir ekki framandi fyrirmæli á skiltum veitir þér engan
rétt og oft þarf fólk að greiða háar sektir vegna brota sem ekki reyndist
unnt að sjá fyrir.
Ökuskírteini
Íslenskt ökuskírteini er tekið gilt í löndum Evrópusambandsins. Ann-
ars staðar gilda yfirleitt þær reglur að ferðamenn geta notað ökuskírteini
heimalands hafi það verið gefið út eftir 15. ágúst 1997 sem eru ökuskír-
teinin sem eru á stærð við kreditkort. Stærri eldri gerðin er ekki í sam-
ræmi við reglugerð EES staðla og því geta handhafar þeirra lent í vand-
ræðum. Ítarlegar upplýsingar um akstur í hverju landi fyrir sig er að
finna á vef Umferðarstofu, www.us.is.
Akstur í framandi landi
Það er fallegt í bænum Porto Cervo og þar eru hátískubúðir.
Skipholti 31, sími 568-0450 ljosmyndavorur.is
Kynnum með stolti Fujifilm X seríuna, myndavélar sem þú skilur ekki eftir heima.
Frábærlega vel hannaðar
Léttleiki og lítil fyrirferð
Framúrskarandi myndgæði
X10 – 99.900
X100 – 199.000
X-Pro 1 – 269.000 (án linsu) X100 TIPA verðlaunin 2011 og X Pro 1 TIPA verðlaunin 2012