Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 29

Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 29
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 20124 Ferðalangar kannast margir við þá ónotalegu tilfinningu að verða lasnir í framandi landi. Oftast verður mallakúturinn ósáttur við ferðakostinn en einnig ber að varast sólina, skordýr og fleira. Hér eru ráð sem gagnast í happdrættinu um góða heilsu á ferðalaginu. ● Sterkt ónæmiskerfi er öflugt vopn gegn sýklum og bakteríum. Sofið því nóg, stundið reglulega hreyfingu og borðið fullt af ávöxt- um og grænmeti. ● Hafið hugfast að sólin er lúmsk þótt ljúf sé. Notið góða sólarvörn og sólhúfu til að forðast sólbruna og sólsting. ● Ferðalög til sumra framandi landa útheimta bólusetningar nokkru áður en haldið er af stað svo forðast megi sjúkdóma eins og gulu og malaríu. ● Vandið valið þegar kemur að mat og drykk í ókunnu landi. Leiki vafi á að vatn úr krananum sé drykkjarhæft er best að nota átapp- að vatn til drykkjar, tannburstunar og skolunar á matvælum. Forð- ist ísmola nema úr átöppuðu vatni og allan hráan mat. Hrár fiskur og skelfiskur geta verið einkar varhugaverðir. ● Munið að hvílast vel þótt gaman sé á ferðalaginu. Þreytt mann- eskja er móttækilegri fyrir veikindum en úthvíld. ● Drekkið nóg af vatni til að forðast ofþornun, einkum í heitum löndum. ● Verjið hendur og fætur að morgni og kvöldi til að forðast skordýra- bit og það að verða hýsill fyrir sníkjudýr. Notið flugnafælur í híbýl- um ykkar og slökkvið ljós að nóttu til því skordýr sækja bæði í ljós og skæra liti. Heilsuhraust á ferðalagi Jújú, auðvitað er gaman að slæpast um í sumarfríi og sólbaði en gamanið kárnar fljótt ef sólin nær að brenna hold og sljóvga haus með miskunnarlausum geislum sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY KLASSÍSK TÓNLIST Í SUMAR Ýmsar frægar og fjölsóttar rokktónlistarhátíðir eru áberandi yfir sumar- tímann í Evrópu. Þeir sem kjósa klassíska tónlist hafa líka úr ýmsu að moða í sumar. Fjölmargar stórar og smáar tónlistarhátíðir eru í Evrópu í sumar sem stíla inn á unnendur klassískrar tónlistar. Ítalía: Vinsæl óperuhátíð er haldin í ítölsku borginni Verona dagana 22. júní til 2. september. Hátíðin er mjög vinsæl og sækja um 16.000 manns hverja uppsetningu. Fyrsta ópera hátíðarinnar er hin sívinsæla Don Giovanni eftir Mozart. Aðrar sýn- ingar í sumar eru meðal annars Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og Aida eftir Verdi. Höfuðborgin Róm hýsir einnig óperuhátíð dagana 30. júní til 7. ágúst þar sem óperuhúsið Teatro dell‘Opera setur upp óperur undir beru lofti. Meðal verka má nefna Aida eftir Verdi, Tosca eftir Puccini og ballettinn Svanavatnið. Tónlistarhátíð til heiðurs tónskáldinu Puccini verður haldin í Torre del Lago, nálægt fæðingarbæ tónskáldsins. Hátíðin fer fram dagana 21. júlí til 25. ágúst. Meðal verka verða klassísku verkin La Traviata, Tosca, Madama Butterfly og La Bohème. Þýskaland: Wagner-hátíðin í Bayreuth verður dagana 25. júlí til 28. ágúst í óperuhús- inu Festspielhaus sem Wagner byggði sjálfur. Fjölmörg verk meistarans verða flutt þar, meðal annars Niflungahringurinn, Hollendingurinn fljúgandi og Tristan og Ísold. Austurríki: Heimabær Mozarts, Salzburg, hýsir Salzburg-tón- listarhátíðina dagana 20. júlí til 2. september. Meðal verka sem þar verða flutt eru Parsifal og Lohengrin eftir Richard Wagner. Auk þess munu Fílharmóníusveitin í Vínarborg og Sinfóníuhljómsveit Lundúna flytja verk á hátíðinni auk annarra flytjenda. Indland er heill heimur út af fyrir sig. Landið hefur að geyma merkilega menningu, fallega náttúru, tilkomumiklar bygging- ar og litríka sögu. Í landinu er að finna hundruð þjóðarbrota sem og tungumál, trúarbrögð og guði. Landið kemur stöðugt á óvart og ferðalag um þetta ótrúlega land er mikil upplifun sem seint gleymist. Úrval Útsýn býður upp á glæsilega sautján daga ferð um Indland 17. október. Daði Guðjónsson, mark- aðsstjóri Úrvals Útsýnar, segir ferð- ina vera mikið ævintýri sem seint gleymist. „Hver viðkomustaður í ferðinni hefur sitt sérkenni og kemur ferðamanninum stöðugt á óvart. Þetta er ferð sem enginn ætti að missa af.“ Flogið er með Ice- landair til og frá London. Þaðan er f logið með Virgin Atlantic til og frá Indlandi. Ferðin hefst í Delí þar sem dvalið verður í tvær nætur. Farið verður í skoðunarferðir um nýja og gamla hluta borgarinnar. Eftir dvölina þar er haldið í hefð- bundna menningarferð um Norð- ur-Indland, eða gullna þríhyrn- inginn svokallaða. Um er að ræða borgirnar Jaipur, Agra, Khajuraho og Varanasi. Farið verður í ógleym- anlegar skoðunarferðir í öllum þessum borgum en í för verður ís- lenskur fararstjóri, Soffía Halldórs- dóttir. „Auk þess verða innlendir leiðsögumenn henni til aðstoðar sem fylgja hópnum allan tímann. Á hverjum áfangastað verður einnig innlendur leiðsögumaður sem leið- ir farþega um sérkenni hvers stað- ar,“ segir Daði. Ferðast verður milli áfanga- staða með rútum, flugi og lestum. Lestarferð á Indlandi er upplifun sem enginn getur látið fram hjá sér fara, segir Daði. „Í lok ferðarinnar er farið til Suður-Indlands og dval- ið í fimm nætur við hina guðdóm- legu strönd Goa. Þar mun hópur- inn dvelja á glæsilegu fimm stjörnu hóteli sem stendur við litla einka- strönd. Gist verður í svítum sem allar snúa út í glæsilegan garð- inn. Auk þess verður dvalið á mjög góðum hótelum allan tímann.“ Innifalið í verðinu eru allar skoð- unarferðir samkvæmt dagskrá, allur akstur, f lug, lestarferð, há- degis- og kvöldverður í ferðinni um Norður-Indland og morgunverður í Goa, íslensk og innlend fararstjórn. Þá er innifalinn lokakvöldverður fyrir hópinn. „Við bjóðumst einnig til að skipuleggja Indlandsferðir fyrir smærri hópa, til dæmis útskrift- arhópa, sem vilja fara á öðrum tímum.“ Hægt er að lesa nánar um ferðina á heimasíðu Úrvals Útsýn- ar www.urvalutsyn.is Stórkostleg sautján daga Indlandsferð Úrval Útsýn býður upp á glæsilega sérferð til Indlands í október. Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Úrvals Útsýnar. Leiðsögumenn í kuflum með galdrastafi leiða fólk um hverfið þar sem J.K. Rowl- ing skrifaði fyrstu Harry Potter- bækurnar. Á göngunni er meðal annars komið við á kaffihúsinu þar sem Rowling sat ásamt dótt- ur sinni og skrifaði fyrstu bókina, Harry Potter og viskusteinninn. Áhrif Edinborgar á sögusvið Harry Potter-bókanna er áber- andi eins og leiðsögumenn munu sýna þátttakendum fram á. Farið er í Greyfriars-kirkju- garðinn þar sem gröf Thomas Riddle og sonar hans, sem hét sama nafni, er. Í kvikmyndinni var það staður- inn þar sem Lord Voldemort end- urfæddist en í bókinni heita bæði faðir og afi Voldemorts og hann sjálfur Thomas Riddle. Einnig er farið á slóðir skáldsins William McGonagall sem aðstoðarskóla- stýra Hogwarts-skólans, Minerva McGonagall, er nefnd eftir. Gangan er farin tvisvar á dag og tekur um 90 mínútur. Kostn- aðurinn ætti ekki að sliga neinn þar sem ókeypis er í hana og ganga leiðsögumennirnir út frá því að þátttakendur séu rausnar- legir á þjórfé í lok hennar. Ekki er nauðsynlegt að þekkja Harry Pot- ter-sögurnar til þess að njóta leið- sagnarinnar þó það sé ótvírætt skemmtilegra. Lofað er líf legri og skemmti- legri leiðsögn þar sem fróðleik um Harry Potter er blandað saman við staði, byggingar, bókmennt- ir, listir og persónur frá Edinborg. Hægt er að nálgast nánari upp- lýsingar um gönguna á www.pot- tertrail.com. Á söguslóðum Harrys Potter Þeir sem eru á leiðinni til Skotlands í ágúst þegar Edinborgarhátíðin er haldin þar hátíðleg geta nú fengið leiðsögn um gamla hluta borgarinnar þar sem farið er á slóðir Harrys Potter. Harry Potter-söguganga verður farin um götur Edinborgar í ágúst í sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.