Fréttablaðið - 30.06.2012, Side 38
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Við leitum að faglærðum framreiðslumanni/framreiðslumeistara með:
• Frumkvæði og vilja til þess að veita framúrskarandi þjónustu
• Hæfni til þess að skipuleggja og stjórna vöktum
• Hæfni til þess að stýra skipulagi á stórum veitinga og fundaviðburðum
• Metnað og getu til þess að starfa á vöktum undir álagi
FRAMREIÐSLUMAÐUR/FRAMLEIÐSLUMEISTARI Í FRAMTÍÐARSTARF
VILT ÞÚ STARFA Í EINU AF UNDRUM VERALDAR?
Um er að ræða spennandi starf með framsæknu veitingateymi. Viðamikil veitingastarfsemi er hjá
Bláa Lóninu á veitingastaðnum LAVA, Blue Cafe og Lagoon bar. Glæsilegir funda- og ráðstefnusalir
eru einnig í Bláa Lóninu og í Eldborg í Svartsengi. Innan raða Bláa Lónsins starfa úrvals starfsmenn
sem búa yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum, eru agaðir og fágaðir í framkomu og sinna starfi
sínu af mikilli samviskusemi.
Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 200-250 starfsmenn.
Nánari upplýsingar veita Hulda Gísladóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu hulda@bluelagoon.is
eða í síma 420-8838 og Magnús Héðinsson, rekstrastjóri veitingasviðs,
í netfanginu magnush@bluelagoon.is eða í síma 420-8822 virka daga
Umsóknarfrestur er til 16. júlí og eru umsækjendur
beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins:
www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er samstarfsvettvangur Alþýðusambands Íslands (ASÍ), Samtaka at-
vinnulífsins (SA), BSRB, fjármálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fullorðins- og starfs-
menntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við aðrar sameiginlegar fræðslustofnanir á vegum aðildar-
samtaka ASÍ, SA, BSRB, fjármálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Meðal hlutverka FA er að
efla framboð á námstækifærum fyrir fólk á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun, nýbúa o.fl., svo
og önnur verkefni sem hafa almenna samfélagslega skírskotun. FA er miðstöð kennslufræðilegrar ráðgjafar
og þróunar á starfssviði sínu.
Spennandi tímar framundan
Sérfræðingur
Verksvið:
Umsjón með verkefnum á sviði fullorðins-
fræðslu og mannauðsmála
Verkefni í framhaldsfræðslu
Verkefni í raunfærnimati og ráðgjöf
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegum verkefnum á sviði
fullorðinsfræðslu og símenntunar
Reynsla af því að greina fræðsluþarfir og þróa
nám
Góð tungumálakunnátta – íslenska, enska og
eitt Norðurlandamál
Ritfærni, vandvirkni, samskiptahæfni og
sjálfstæð vinnubrögð
Sérfræðingur
Verksvið:
Þriggja ára þróunarverkefni á sviði raunfærnis-
mats sem og náms-og starfsráðgjafar
Önnur verkefni fyrir Fræðslumiðstöðina
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun í náms- og starfsráðgjöf
Reynsla af sambærilegum störfum
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Mjög góð hæfni til að starfa í teymisvinnu og
reynsla af að bera ábyrgð á verkefnum.
Blaðamaður
Verksvið:
Greinaskrif í norrænt rit um fullorðinsfræðslu
Þátttaka í ritstjórnarfundum með samstarfs-
aðilum frá Norðurlöndum
Hæfniskröfur:
Reynsla af greinarskrifum á norrænum
tungumálum
Þekking á fullorðinsfræðslu á Íslandi
Blaðamaður er ráðinn í verkefnavinnu og ritar
6-10 greinar ár hvert. Blaðamaður situr árlega tvo
ritstjórnarfundi með norrænum samstarfsaðilum.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí nk.
Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um fyrri
störf og menntun ásamt kynningarbréfi óskast sendar til
Nathalíu Druzin Halldórsdóttur hjá nathalia@radum.is og
Hildar Erlu Björgvinsdóttur hjá hildur@radum.is. Nánari
upplýsingar um störfin eru veittar hjá Ráðum
í síma 519 6770.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál