Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 38

Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 38
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Við leitum að faglærðum framreiðslumanni/framreiðslumeistara með: • Frumkvæði og vilja til þess að veita framúrskarandi þjónustu • Hæfni til þess að skipuleggja og stjórna vöktum • Hæfni til þess að stýra skipulagi á stórum veitinga og fundaviðburðum • Metnað og getu til þess að starfa á vöktum undir álagi FRAMREIÐSLUMAÐUR/FRAMLEIÐSLUMEISTARI Í FRAMTÍÐARSTARF VILT ÞÚ STARFA Í EINU AF UNDRUM VERALDAR? Um er að ræða spennandi starf með framsæknu veitingateymi. Viðamikil veitingastarfsemi er hjá Bláa Lóninu á veitingastaðnum LAVA, Blue Cafe og Lagoon bar. Glæsilegir funda- og ráðstefnusalir eru einnig í Bláa Lóninu og í Eldborg í Svartsengi. Innan raða Bláa Lónsins starfa úrvals starfsmenn sem búa yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum, eru agaðir og fágaðir í framkomu og sinna starfi sínu af mikilli samviskusemi. Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 200-250 starfsmenn. Nánari upplýsingar veita Hulda Gísladóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu hulda@bluelagoon.is eða í síma 420-8838 og Magnús Héðinsson, rekstrastjóri veitingasviðs, í netfanginu magnush@bluelagoon.is eða í síma 420-8822 virka daga Umsóknarfrestur er til 16. júlí og eru umsækjendur beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins: www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/ Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er samstarfsvettvangur Alþýðusambands Íslands (ASÍ), Samtaka at- vinnulífsins (SA), BSRB, fjármálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fullorðins- og starfs- menntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við aðrar sameiginlegar fræðslustofnanir á vegum aðildar- samtaka ASÍ, SA, BSRB, fjármálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Meðal hlutverka FA er að efla framboð á námstækifærum fyrir fólk á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun, nýbúa o.fl., svo og önnur verkefni sem hafa almenna samfélagslega skírskotun. FA er miðstöð kennslufræðilegrar ráðgjafar og þróunar á starfssviði sínu. Spennandi tímar framundan Sérfræðingur Verksvið: Umsjón með verkefnum á sviði fullorðins- fræðslu og mannauðsmála Verkefni í framhaldsfræðslu Verkefni í raunfærnimati og ráðgjöf Hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi Reynsla af sambærilegum verkefnum á sviði fullorðinsfræðslu og símenntunar Reynsla af því að greina fræðsluþarfir og þróa nám Góð tungumálakunnátta – íslenska, enska og eitt Norðurlandamál Ritfærni, vandvirkni, samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð Sérfræðingur Verksvið: Þriggja ára þróunarverkefni á sviði raunfærnis- mats sem og náms-og starfsráðgjafar Önnur verkefni fyrir Fræðslumiðstöðina Hæfniskröfur: Háskólamenntun í náms- og starfsráðgjöf Reynsla af sambærilegum störfum Mjög gott vald á íslensku og ensku Mjög góð hæfni til að starfa í teymisvinnu og reynsla af að bera ábyrgð á verkefnum. Blaðamaður Verksvið: Greinaskrif í norrænt rit um fullorðinsfræðslu Þátttaka í ritstjórnarfundum með samstarfs- aðilum frá Norðurlöndum Hæfniskröfur: Reynsla af greinarskrifum á norrænum tungumálum Þekking á fullorðinsfræðslu á Íslandi Blaðamaður er ráðinn í verkefnavinnu og ritar 6-10 greinar ár hvert. Blaðamaður situr árlega tvo ritstjórnarfundi með norrænum samstarfsaðilum. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí nk. Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi óskast sendar til Nathalíu Druzin Halldórsdóttur hjá nathalia@radum.is og Hildar Erlu Björgvinsdóttur hjá hildur@radum.is. Nánari upplýsingar um störfin eru veittar hjá Ráðum í síma 519 6770. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.