Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 64
KYNNING − AUGLÝSING Sparneytnir bílar30. JÚNÍ 2012 LAUGARDAGUR 11
Opel býr yfir traustum, fal-legum og dugandi bílum sem ár eftir ár tróna í efstu
sætum yfir söluhæstu bíla Evr-
ópu. Það segir sitt um endingu og
gæði Opel og því fagnaðarefni að fá
aftur nýja bíla frá Opel í BL,“ segir
Hörður Þ. Harðarson, sölustjóri
Opel hjá BL.
Í tilefni innreiðar Opel hefur BL
opnað glæsilegan Opel-sýningar-
sal í Ármúla 17. Þar má sjá nýjustu
línur Opel Corsa, Opel Safira og
Opel Insigna, sem kosinn var bíll
ársins 2009 í Evrópu, og hefur ekki
sést áður á Íslandi. Þegar sumri
hallar bætist svo við nýr Opel Astra.
Opel-bílar eru þýskir í gegn;
hannaðir og smíðaðir í Þýskalandi.
Frágangur og efnisval Opel er ein-
faldlega í lúxusflokki og hægt að
fullyrða að gæði Opel eru eins og
þau gerast best.
„Konungur ný ja Opel-f lot-
ans er hins vegar rafbíllinn Opel
Ampera,“ upplýsir Hörður um slá-
andi fallega bifreið sem kosin hefur
verið Bíll ársins 2012 í Evrópu.
„Ampera er fyrstur sinnar teg-
undar á Íslandsmarkað og rafbíll
alla leið. Drægni hans á rafmagni er
allt að 80 kílómetrar og fyrir bíleig-
anda búsettan á Selfossi og vinn-
andi í Reykjavík er hægt að nota bíl-
inn árið um kring á rafmagni einu
saman. Þannig er ekið á rafmagni í
bæinn, bílnum stungið í samband
eins og farsíma á meðan unnið er
og keyrt aftur heim á rafmagni,“ út-
skýrir Hörður sem dæmi.
Opel Ampera er glæsilegur útlits,
búinn tveimur rafmagnsmótorum
og einum bensínmótor sem nýtist
sem hjálparmótor.
„Sú hönnun og fyrirkomulag
er bylting í rafbílum,“ segir Hörð-
ur. „Þegar eftir eru þrjátíu prósent
af rafhlöðu bílsins breytist bens-
ínmótorinn í ljósamótor og hleð-
ur rafmagni inn á rafhlöðuna á
meðan ekið er. Því þarf aldrei að
stoppa bílinn til að hlaða rafhlöð-
una svo framarlega sem bensín er
á tanknum,“ segir Hörður.
Bensíntankur Opel Ampera er
30 lítra og eyðir bíllinn aðeins 1,2
lítrum á hundraði. Drægni á bens-
íntanki er allt að 500 kílómetrar og
útblástur aðeins 27 grömm. Í sam-
anburði er útblástur hefðbundinna
bensínbíla 130 til 160 grömm.
„Ólíkt öðrum umhverfisvæn-
um bílum er Ampera alltaf ekið á
rafmagni á meðan tvinnbílar eru
í raun bensínbílar með rafmagns-
mótor sem hjálparmótor,“ útskýr-
ir Hörður.
Útbúinn öllum gæðum
Opel Ampera er kraftmikill lúxus-
bíll í mestu mögulegu gæðum.
„Það tekur Ampera aðeins níu
sekúndur að fara upp í hundrað en
bíllinn er kraftmeiri en venjulegir
bílar vegna þess að rafmagnið fer
strax út í hjólin. Þannig tekur það
hann ekki nema 3,1 sekúndu að ná
50 kílómetra hraða og viðbragðið
eins og þegar sportbíll fer af stað,“
segir Hörður og bætir við að í Opel
Ampera sé hugsað fyrir öllu.
„Ampera er einfaldlega einn
með öllu. Bíllinn er útbúinn öllum
þeim búnaði sem unnt er að setja
í einn bíl, rúmgóður, fallegur og
þægilegur. Þar má nefna sjö tommu
skjá, nálægðarskynjara að framan
og aftan, kerfi sem segir til um loft-
þrýsting í dekkjum og fjarstýringu
fyrir hitakerfi bílsins í bíllykli. Með
þeirri tækni bíður ökumannsins
svalur og þægilegur bíll í sumarhit-
unum og hlýr og notalegur í vetr-
arkuldanum; allt án þess að menga
eða eyða rafhlöðunni á meðan hún
er í hleðslu. Með bílnum er meira
að segja smáforrit sem hægt er að
setja í Iphone og Ipad til að að sjá
stöðu bílsins.“
Opel Ampera hefur tekið Evrópu
með trompi. Bíllinn kom til lands-
ins á þriðjudag og er BL stolt af því
að bjóða fyrst þá nýju tækni sem
rafbíllinn býr yfir.
„Hönnun Ampera tók fjögur ár
og mikil hugsun að baki hverju
smáatriði. Átta ára ábyrgð er á raf-
hlöðu bílsins eða allt að 160 þúsund
kílómetrar. Framleiðslu Opel fylgja
græn markmið í einu og öllu og er
ætlun framleiðandans að safna
notuðum rafhlöðum til að nýta
orkuna sem eftir verður. Reiknað
hefur verið út að þrjátíu rafhlöð-
ur búi yfir nægri orku til að nýta í
fimmtíu hús í fjórar klukkustund-
ir,“ útskýrir Hörður.
Önnur frábær nýjung í Opel
Ampera er varúðarf lauta í ná-
munda við gangandi vegfarendur.
„Rafbílar eru hljóðlausir sem er
varasamt á bílastæðum og þar sem
von er á gangandi fólki. Við þær að-
stæður er hægt að ýta á þar til gerð-
an hnapp sem gefur frá sér hljóð og
þar með til kynna að bíll sé í nánd,
um leið og háu ljósin kvikna og
blikka,“ segir Hörður.
Í sýningarsal Opel í Ármúla eru
að sjálfsögðu einnig fáanlegir bílar
með díselvélar í öllum f lokkum
umhverfisvænna bíla.
Opel Ampera kostar frá átta
milljónum.
Opið í sýningarsal Opel í Ármúla
17 í dag frá klukkan 12 til 16.
Rafbíll sem kemst 5-600 km á
einni hleðslu og einum tanki
Íslendingar hafa farið á mis við trausta gæðinga Opel í hartnær fjögur ár. Þökk sé BL halda þeir nú innreið sína á Íslandsmarkað á
ný með ómótstæðilegt úrval traustra og glæsilegra bíla. Þar á meðal er Bíll ársins 2012 í Evrópu; rafbíllinn Opel Ampera sem fylgir
bylting í sparneytni og umhverfisvitund. Nýr sýningarsalur Opel opnar í dag í Ármúla 17.
Rafbíllinn Opel Ampera hefur verið kosinn Bíll ársins 2012. Hann er fyrstur sinnar tegundar á Íslandi og einstakur í alla staði.
Hörður Þ. Harðarson, sölustjóri Opel hjá BL, og Guðmundur Finnbjarnarson sölumaður fyrir utan nýjan og glæsilegan Opel-sýningarsal
í Ármúla 17. Þeir taka á móti gestum með kostum og kynjum í dag. MYND/ANTON
7