Fréttablaðið - 30.06.2012, Qupperneq 68
KYNNING − AUGLÝSING30. JÚNÍ 2012 LAUGARDAGUR
Biskotti með möndlum eða
berjum:
3/4 bollar möndlur
1 tsk. vanilludropar
2 bollar hveiti
3/4 bollar sykur
1 tsk. lyftiduft
1/4 tsk. salt
150 g saxað súkkulaði eða
þurrkuð trönuber
Þeytið eggin og bætið vanillu-
dropunum út í. Í annarri skál
hrærið hveiti, sykur, lyftiduft
og salt og bætið möndlunum
og súkkulaðinu/berjunum út
í. Blandið svo eggjahrærunni
saman við. Skiptið deiginu í tvo
helminga og mótið lengjur á bök-
unarpappír, um það bil 8 til 10 cm
breiðar. Bakið í 35 mínútur við 180
gráður. Takið úr ofninum og kælið
á grind í 10 mínútur og stillið ofn-
inn á 160 gráður.
Skerið lengjurnar niður í sneið-
ar og leggið á hliðina á bökunar-
plötuna. Bakið í 10 mínútur, snúið
sneiðunum og bakið aftur í 10
mínútur. Kælið og geymið í loft-
þéttu boxi.
Gvakamóle:
2 lárperur
1 lítill laukur
1 hvítlauksrif
1 lítill tómatur
1 tsk. safi úr súraldini
salt og pipar eftir smekk
Mokið innan úr lárperunum og
stappið gróflega. Saxið hvítlauk-
inn og tómatinn, blandið öllu
saman og kreistið safa úr hálfu
súraldini. Gvakamóle er gott milli
tveggja brauðsneiða eða sem dýfa
fyrir flögur.
Eggjasalat:
8 egg
1/2 bolli majónes
1 tsk. sætt sinnep
1/4 bolli saxaður laukur
salt, pipar og paprikuduft eftir
smekk
Setjið eggin í pott og látið suðuna
koma upp. Slökkvið þá undir og
látið eggin bíða í 10 til 12 mínútur
í vatninu með lokið á. Kælið svo,
flysjið og saxið niður.
Hrærið majónesið aðeins í skál
áður en eggin fara út í, þá sinn-
epið og laukinn, salt og pipar og
paprikuduft. Smyrjið samlokur
með salatinu.
Brownies:
250 g suðusúkkulaði
250 g sykur
250 g smjör
1 tsk. vanilludropar
3 egg
1 bolli hveiti
150 g möndlur
50 g valhnetur
Bræðið súkkulaðið og smjörið yfir
vatnsbaði. Saxið niður möndlur
og hnetur. Þegar súkkulaðið og
smjörið hefur bráðnað skal kæla
það aðeins áður en eggjunum og
vanilludropunum er hrært saman
við, þá er hveiti, möndlum og val-
hnetum blandað vel saman við.
Deiginu er síðan hellt í form og
bakað við 170 gráður í 25 mínútur.
Lautarferð í lofti
Flugvélamatur er ekki allra. Sælkerar ættu að taka með sér nesti en með smá
fyrirhöfn má útbúa dýrindis kræsingar sem breyta langri flugferð í lautarferð.
Biskotti með möndlum og trönuberjum.
Samlokur með eggjasalati.
Brownies með möndlum og valhnetum.
Gvakamóle og nachos.
Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 • www.hei fms erdir.is
BÚDAPEST
27. sept. – 4 nætur
19. okt. – 4 nætur
frá kr. 90.500
Netverð á mann, m.v. gistingu á Star
INN ***+ í tvíbýli 19. október.
Í HAUST
BORGIR
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
LJUBLJANA
18. okt. – 4 nætur
frá kr. 99.700
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli með morgunverði í 4 nætur
á Hotel Park ***+.
RÓM
1. nóv. – 4 nætur
Uppseld
SEVILLA
26. okt. – 3 nætur
frá kr. 109.500
tvíbýli
með morgunverði í 3 nætur á
Hotel Catalonia Giralda ****.
PRAG
27. sept. – 3 nætur
4. okt. – 4 nætur
frá kr. 83.600
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli með morgunverði í 3 n ætur
á Hotel Ilf ***+, 27. september.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
53
28
3
BARCELONA
11. okt. – 4 nætur frá kr. 105.800
Netverð á mann, m.v. gistingu á Hotel Catalonia
Atenas ***+ í tvíbýli með morgunverði.