Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 93
30. júní 2012 LAUGARDAGUR50
PERSÓNAN
„Við ætlum að ganga lengstu leið-
ina þvert yfir landið,“ segir Frið-
jón Hólmbertsson en hann mun
leggja upp í 670 km göngu ásamt
vini sínum, Guðsteini Halldórs-
syni, á morgun til styrktar sam-
tökunum Blátt áfram en þau berj-
ast gegn kynferðislegu ofbeldi
gagnvart börnum.
Gönguleiðina nefna þeir frá
Fonti til táar þar sem þeir halda
af stað frá vitanum Fonti á Langa-
nesi og ganga að Reykjanesvita á
Suðurnesjum. Göngugarparnir
munu ganga 32 km að meðaltali
hvern dag og áætla að ferðin nái
yfir 21 dag en þeir hafa það að
takmarki að safna einni milljón
að lágmarki.
„Við höfum labbað saman síðan
árið 1993. Farið út um allt Ísland
og til útlanda þar sem við höfum
gengið, klifrað og siglt,“ segir
Friðjón en þeir Guðsteinn eru
meðlimir gönguhópsins Labba-
kútar sem hefur tekið Ísland með
trompi síðustu 20 ár og gengið á
flesta staði landsins.
„Hann Guðsteinn er líka svolítið
klikkaður. Hann hjólaði hringinn
einn í fyrra á ellefu dögum fyrir
ADHD,“ segir Friðjón og bætir við
að þeir hafi farið erfiðustu leiðina
á tæplega 6000 metra topp Kilim-
anjaro fyrir nokkrum árum.
Aðspurður hvernig málefn-
ið varð fyrir valinu segir Frið-
jón: „Við vorum alveg níu mánuði
að velja samtök en völdum Blátt
áfram þar sem það er aldrei nógu
mikið gert í þessum efnum.“
Félagarnir hafa opnað vef-
síðuna Blattaframgangan.is og
Facebook-síðu undir sama heiti
þar sem finna má allar frekari
upplýsingar. - hþt
Ganga 670 km fyrir Blátt áfram
LABBAKÚTAR Guðsteinn Halldórsson og
Friðjón Hólmbertsson munu ganga 32
km á dag næstu þrjár vikurnar til styrktar
baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi gagn-
vart börnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vera Þórðardóttir
Aldur: 27 ára.
Starf: Fatahönn-
uður.
Foreldrar: Ólöf
Guðný Valdimars-
dóttir arkitekt
og Ágúst Þórður
Arnórsson verkfræðingur.
Fjölskylda: Er í sambúð með
Philip Harrison og á eina 10
mánaða dóttur.
Búseta: 105 Reykjavík.
Stjörnumerki: Naut.
Vera er fatahönnuður sem á dögunum
seldi jakka úr sinni smiðju fyrir rúmar
2 milljónir króna en poppstjarnan Lady
Gaga klæddist jakkanum fyrir tveimur
árum síðan.
„Spennan í þessu hefur haldið
manni við tækið öll þessi ár,“ segir
Halldóra Guðlaugsdóttir, sem verð-
ur níræð á árinu. Henni þykir miður
að sápuóperan Leiðarljós, sem var
framleidd í 57 ár, hverfi endanlega
af skjáum landsmanna á mánudag-
inn. Hún og mágkona hennar, Katr-
ín Eiríksdóttir, hafa fylgst spenntar
með dramatískum flækjum sápunn-
ar. „Við horfðum oft saman á Leiðar-
ljós,“ segir Halldóra.
Framleiðslu þáttanna var hætt
árið 2009 og hefur áhorf þeirra
dalað á heimsvísu síðan. „Nú sjá
þeir sér ekki hag í að endurnýja
samninginn við okkur,“ segir
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár-
stjóri Ríkisútvarpsins, sem bætir
við: „Þetta hlýtur að vera langlíf-
asta þáttaröð allra tíma.“
Leiðarljós hefur verið á dag-
skrá RÚV frá árinu 1995. Sjón-
varpsþáttaröðin hóf fyrst göngu
sína árið 1952 á stöðinni CBS en
frá árinu 1937 hafði hún verið
útvarpsþáttaröð.
„Ég hef ekki horft á þá svo
lengi,“ segir Halldóra, sem varð
dyggur aðdáandi þáttanna þegar
hún hætti vinnu fyrir fjölmörg-
um árum. Katrín, sem er 87 ára,
man vel eftir því hvernig þættirn-
ir hófu að vera í uppáhaldi. „Þeir
hafa alltaf verið sýndir um eftir-
miðdaginn. Á sama tíma kom ég
úr vinnunni og hóf að lesa dag-
blöðin. Smám saman viku blöðin
fyrir Leiðarljósi.“
Báðar dvelja þær á elliheim-
ilinu Grund og voru á harmon-
ikkuballi þegar blaðamann bar
að garði. Á Grund á þáttaröðin
fjölmarga aðdáendur sem horfa
á þáttinn dag hvern í setustof-
unni. „Við horfum ekki á þátt-
inn þar heldur erum við báðar
með sjónvarp,“ segir Halldóra
sem viðurkennir að hún missi úr
stöku þátt. „Maður kemst samt
alltaf inn í framhaldið.“
Ný sápa hefur göngu sína
í haust og eru mágkonurnar
ánægðar með að eitthvað fylli í
skarðið. „Það er kannski líka fínt
að sleppa sjónvarpsáhorfinu yfir
sumartímann,“ segir Halldóra
en þær fara lofsömum orðum um
sápuna The Bold and the Beauti-
ful. „Við horfum á hana nema það
komi eitthvað jafn skemmtilegt
og Leiðarljós.“
hallfridur@frettabladid.is
HALLDÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR: HORFÐUM OFT SAMAN Á ÞÆTTINA
Harma hvarf Leiðarljóssins
SPENNANDI SÁPA Halldóra Guðlaugsdóttir og Katrín Eiríksdóttir sitja saman úti í sólinni á harmonikkuballi Grundar og þykir
leiðinlegt að Leiðarljós hverfi af skjánum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Það er ekki nema svona mán-
uður síðan við ákváðum að kýla á
þetta og höfum því verið hér dag
og nótt að gera búðina tilbúna,“
segir Guðlaug Elísa Einarsdótt-
ir sem opnar verslunina Suzie Q
ásamt kærasta sínum Magnúsi Má
Lúðvíkssyni, knattspyrnumanni
úr KR, í dag.
Verslunin er staðsett að Ing-
ólfsstræti 8, í sama húsnæði og
verslunin Júniform var áður til
húsa. Guðlaug, eða Gulla eins og
hún gjarna er kölluð, segir hús-
næðið hafa ráðið úrslitum um
að þau ákváðu að opna strax í
sumar. „Þetta er fullkomið hús-
næði fyrir okkur og við gátum
ekki sleppt því þegar það losnaði.
Upphaflega ætluðum við ekki að
gera þetta fyrr en í september.“
Suzie Q verður verslun sem sér-
hæfir sig í tískufatnaði fyrir bæði
kynin. Rokkaðar flíkur í bland við
nýjustu götutísku leika lykilhlut-
verk í búðinni sem einnig býður
upp á skartgripi, töskur og fal-
legar svokallaðar kaffiborðsbæk-
ur frá Frakklandi. Þau hafa svo
tryggt sér merki á borð við danska
Minimum, Dr. Denim og Converse
en stefnan er að bæta við fleiri
merkjum í framtíðinni. „Núna
erum við með vörur frá London og
París. Við stefnum á að vera með
skemmtilegt andrúmsloft þar sem
fólk getur komið, fengið sér kaffi-
sopa og blaðað í bókum.“
Gulla hefur dágóða reynslu úr
tískubransanum því hún hefur
unnið í innkaupum fyrir NTC und-
anfarin ár. Magnús, eða Maggi Lú,
býr ekki að sömu reynslu en Gulla
fullyrðir að tuðruspark og tísku-
bransinn fari vel saman. „Hann
hefur komið mér á óvart og veit
sínu viti. Upphaflega var það hann
sem ætlaði í þennan rekstur einn
og ég tróð mér með. Þetta fer vel
með æfingunum enda er Frosta-
skjólið í næsta nágrenni.“ - áp
Knattspyrnumaður opnar tískuvöruverslun
ROKKUÐ GÖTUTÍSKA Magnús Már
Lúðvíksson, knattspyrnumaður úr KR, og
kærasta hans Guðlaug Elísa Einarsdóttir
opna tískuvöruverslunina Suzie Q í dag
á Ingólfsstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Lífrænt ofur fjölvítamín náttúrunnar
Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína
er meira og nýtist betur en úr nokkru
öðru fæði.
Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur
einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er
gott gegn streitu.
Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni.
Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og
fullorðnum.
13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni,
Fríhöfninni og Hagkaup
Hraust og hress
Árangur strax!
www.celsus.is
Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin.
Vottað lífrænt