Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 3

Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 3
Ert þú WOW? – við leitum að liðsauka Höfðatún 12 Ísland / Iceland105 Reykjavík +354 590 3000 wowair@wowair.iswww.wowair.is Endurskoðunarséní – þarf að hafa unun af bókhaldi Aðalbókari Óskum eftir að ráða öflugan bókara með víðtæka reynslu á sínu sviði. Þarf að hafa yfirburðaþekkingu á Navision og frumkvæði í starfi. Starfið felst í bókhaldi, skýrslugerð, afstemmningum og fleiri æsispennandi verkefnum. Viðskiptamenntun af endurskoðunar- eða fjármálasviði er nauðsyn. Ferðamálafrömuður – þarf að vera snöggur að pakka Verkefnastjóri hjá WOW ferðum Við leitum að hugmyndaríkum starfs- krafti í framleiðslu og skipulagningu pakkaferða. Þarf að hafa reynslu og þekkingu á pakkaferðum fyrir hópa og einstaklinga og sölu til erlendra ferðamanna. Ekki spillir fyrir að hafa einlægan áhuga á ferðalögum, mikið keppnisskap og skemmtilega sýn á lífið og tilveruna. Tölvunarfagurkeri – þarf að vera viðmótsþýður Viðmótsforritari Viljum ráða forritara til að vinna í hópi hugbúnaðarsérfræðinga, með áherslu á viðmótsforritun. Ef þú getur látið IE8 hegða sér skikkanlega og ert flennifær á CSS og Jquery þá viljum við þig í hópinn! Háskólagráða í tölvunarfræði eða haldgóð reynsla í hugbúnaðargerð er skilyrði, sem og mikil og góð reynsla af vefforritun. -hönnun og myndvinnslu. Forritarafóstra – þarf að kunna að telja Verkefnastjóri tölvudeildar Yfirlit með verkefnisstjórnun hóps forritara. Þarfagreining vegna nýrra verkefna og mat á umfangi þeirra. Þarf að hafa háskólagráðu í tölvunarfræði eða reynslu af hugbúnaðargerð og verkefnastjórnun í hugbúnaðargeira. Þarf að geta forritað í .NET (VB, C#). Þekking á Umbraco er kostur. Tungumálatryllir – þarf að kunna stafrófið Ritstjóri VIð viljum ráða ritstjóra yfir erlendu efni WOW air. Þarf að vera snillingur og/eða séní í að skrifa ensku og hafa brennandi áhuga á Íslandi og öllu sem það hefur upp á að bjóða. Viðkomandi er ábyrgur fyrir því að efnisþættir á erlendum vefsvæðum okkar séu WOW. Tungumálakunnátta er lykilatriði – því fleiri, því betra. Hugbúnaðarforkur – þarf að skilja tölvur Hugbúnaðarsérfræðingur Óskum eftir hörkuduglegum starfs- manni til að vinna í öflugum hópi sérfræðinga að þróun kerfa WOW air. Þarf að hafa háskólagráðu í tölvunar- fræði eða reynslu af hugbúnaðargerð. Góð kynni af .NET (VB, C#), MS SQL, HTML, CSS, jQuery er æskileg, sem og viðamikil þekking á Umbraco. Erum við að leita að þér? Ekki hika við að senda umsókn á starf@wowair.is fyrir 8. sept.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.