Fréttablaðið - 31.08.2012, Síða 4
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 30.08.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,676
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,00 122,58
193,17 194,11
152,94 153,80
20,524 20,644
20,971 21,095
18,327 18,435
1,5508 1,5598
185,35 186,45
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
PILATES
NÝTT
Í HEILSUBORG!
Markmið Pilates er að lengja og styrkja líkamann með
kerfisbundnum æfingum. Hver æfing er hvetjandi, virkjar
kviðvöðvana og heldur iðkendum við efnið.
Kolbrún þjálfari segir fólk koma afslappað út úr
tímunum en jafnframt fullt af orku.
• Hefst 11. september
• 8 vikur
• Kennari er Kolbrún Jónsdóttir
• Þri og fim kl. 18:30-19:30
• Verð kr. 21.900 (þ.e. 10.950 pr. mán)
DÝRAHALD Skráðum hundum
á höfuðborgarsvæðinu hefur
fjölgað um 54 prósent síðan í
ársbyrjun 2006. Þeir voru 3.551
í byrjun ársins 2006 en eru nú
5.475, samkvæmt tölum sem
ýmist eru glænýjar eða frá
síðustu áramótum.
Mjög mikill munur er á því
hversu mikið hundum hefur
fjölgað á þessu tímabili eftir
sveitarfélögum. Langmest hefur
fjölgunin verið í Hafnarfirði,
um 86 prósent, en langminnst
á Álftanesi, um fjórtán prósent.
Næstmest hefur hundum fjölgað
í Kópavogi, um 66 prósent, því
næst í Mosfellsbæ og Reykja-
vík, um 48 og 46 prósent, og
þar á eftir koma Seltjarnarnes
og Garðabær, með fjölgun sem
nemur 37 og 36 prósentum.
Það er þó ekki víst hversu
mikla sögu þessar tölur segja
um heildarfjölda hunda, enda
er þó nokkuð um óskráða hunda
í borginni. Hversu mikið er þó
erfitt að segja, að því er fram
hefur komið í samtölum blaða-
manns við starfsfólk sveitar-
félaganna og heilbrigðiseftirlits.
Árný Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur, segir að talið sé
að allt upp undir 25 prósent allra
hunda í Reykjavík séu óskráð.
„Þótt það sé ómögulegt að vita
það með einhverri vissu,“ bætir
hún við.
Ingimundur Helgason, hunda-
eftirlitsmaður á Seltjarnarnesi,
kveðst eiga erfitt með að fallast
á að 25 prósenta talan geti átt
Hundum fjölgað um
helming á sex árum
Nálega 5.500 hundar eru skráðir á höfuðborgarsvæðinu. Þeim hefur fjölgað um
54 prósent á undanförnum sex árum, hlutfallslega langmest í Hafnarfirði en
langminnst á Álftanesi. Talið að upp undir fjórðungur geti verið óskráður.
Hundar á höfuðborgarsvæðinu
Þróun hundahalds 2006-2012
Garðabær
Seltjarnarnes
Álftanes
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
Reykjavík
Kópavog
ur
Hafnar
fjörður
Mosfellsbær
2.359
622
908
777
164
145
500
ágúst
jan
Tölurnar um fjölda hunda í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi eru
fengnar frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogs og ná aðeins til
áramóta. Tölurnar úr Reykjavík, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi eru hins vegar
nýjar.
við um Seltjarnarnes, og Páll
Stefánsson hjá Heilbrigðiseftir-
liti Hafnarfjarðar- og Kópa-
vogssvæðis segir það almenna
tilfinningu manna þar á bæ
að ekki sé svo stór hluti hunda
óskráður.
stigur@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Portus ehf., rekstrar-
félag Hörpu, íhugar að sækja
rétt sinn fyrir dómsstólum vegna
álagningar fasteignagjalda. Fyrir-
tækið hefur fengið lögfræðiálit sem
sýnir, samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins, fram á ólögmæti álagning-
arinnar.
Pétur J. Eiríksson, stjórnarfor-
maður Portusar, staðfestir að álitið
sé komið í hús, en vill ekki tjá sig
um innihald þess.
„Við munum ræða innihaldið við
eigendur okkar og taka afstöðu um
næstu skref, vonandi fyrir 15. sept-
ember.“ Spurður hver þau skref
gætu verið segir
hann: „Það er að
gera ekki neitt,
eða að taka
málið áfram til
Þjóðskrár eða
dómstóla.“
Eins og fram
hefur komið
gerðu áætlanir
u m rek st u r
Hörpu, sem eigendur lögðu blessun
sína yfir, ráð fyrir að fasteignagjöld
yrðu ekki hærri en 180 milljónir
króna. Úrskurður yfirfasteigna-
matsnefndar er að miða skuli við
byggingarkostnað, en ekki nýtingar-
kostnað, og fasteignagjöld séu því
335 milljónir króna. Harpa er í eigu
ríkis og Reykjavíkurborgar.
Rekstur Hörpu stendur ekki
undir sér og tap á rekstri verður
407 milljónir króna í ár.
Óljóst er hvernig eigendur
bregðast við lögfræðiálitinu, en
samkvæmt heimildum blaðsins
telur Portus það þess eðlis að
dómsmál gæti skilað árangri.
Málaferli vegna greiðslu gjald-
anna til annars eigandans,
Reykjavíkurborgar, gætu því
verið í uppsiglingu. - kóp
Lögfræðiálit bendir til að álagning fasteignagjalda á Hörpu sé ólögleg:
Íhuga mál vegna fasteignagjaldanna
PÉTUR J. EIRÍKSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
21°
19°
18°
19°
13°
19°
19°
24°
17°
27°
32°
33°
18°
18°
15°
19°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða, heldur hvassara
með ströndum SV-lands.
SUNNUDAGUR
Fremur hægur vindur
víða um land. 12 12
10
99
13 13
1411
15
14
13
13
13
14
13
11
12
12
12
8
9
9
7
5
5
15 18
13
5
3 1213
8
ÚRKOMUSAMT
verður á landinu
í dag, sérstaklega
sunnan- og vestan-
lands fyrri hluta
dagsins. Síðdegis
snýst vindur til suð-
vestanáttar með
skúrum. Á morgun
verður áfram
úrkoma sunnan
og vestan til en
bjart með köfl um á
Norðausturlandi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Ranglega var hermt að of mikið magn
af hexóklórbenseni hefði fundist í
sýnum KR-flugelda. Hið rétta er að
það var í sýnum frá Knattspyrnudeild
Keflavíkur. Einnig mældist of mikið
magn í sýnum frá Alvöru flugeldum.
LEIÐRÉTT
NÁTTÚRA Jörð skalf á suðvestur-
horni landsins í hádeginu í gær.
Jarðskjálftinn varð eina mínútu í
tólf og átti upptök sín í Bláfjöllum,
rúma þrjá kílómetra norðaustan
Bláfjallaskála. Skjálftinn mældist
4,6 stig en hann varð á tæplega
sex kílómetra dýpi.
„Skjálftinn var á þekktu jarð-
skjálftabelti og honum fylgdu 25
til 30 litlir eftirskjálftar,“ segir
Martin Hensch, jarðeðlisfræð-
ingur á Veðurstofunni. Engar
spár eru gerðar um framhaldið og
engar vísbendingar hafa komið
fram um að frekari virkni sé að
vænta á svæðinu. - bþh
Jarðskjálfti af stærðinni 4,6:
Ekki búist við
frekari virkni
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið hefur
gefið út reglugerð sem heimilar
bátum sem veitt hafa úr króka-
pottinum að stunda veiðar í tíu
daga eftir að búið er að veiða
þau 845 tonn sem ætluð voru til
veiðanna.
Makrílveiðar krókabáta hafa
gengið afar vel upp á síðkastið
og bátarnir því búnir með áætlað
magn löngu fyrir þann tíma sem
búist var við. Ráðuneytið hefur
með reglugerðinni brugðist við
óskum Landssambands smábáta-
eigenda um framlengingu og
heimilað þeim bátum sem leyfi
hafa að veiða í tíu daga til viðbót-
ar frá og með deginum í dag. - shá
Tíu daga viðbótarveiði leyfð:
Mega krókveiða
makríl lengur
SMÁBÁTAHÖFN Veiðar krókabáta á
makríl ganga miklu betur en fyrri ár.
FRAMKVÆMDIR Áætlað er að reisa
um níutíu sumarbústaði í Lund-
skógi í Fnjóskadal á næstu árum.
Um sextíu hús eru byggð eða í
byggingu. Fyrsta húsið var reist
þar árið 1991.
Þórólfur Guðnason, bóndi í
Lundi og eigandi Lundskógar,
segir að sumarhúsaeigendur séu
ánægðir. „Þetta fór rólega af
stað en þróaðist hratt og fór fyrir
alvöru að fjölga fyrir hrunið,“
segir hann. „En það kom furðu-
lítill afturkippur og aldrei verið
byggt meira en síðustu tvö ár.“ - sv
Sífelld fjölgun í Lundskógi:
Sextíu sumar-
hús á 20 árum
Kleifarvatn
Bláfjöll
Upptök skjálftans
VIÐSKIPTI Ferðaþjónustan ræður
ekki við hækkun á virðisauka-
skatti og mun lenda í miklum
rekstrarerfiðleikum ef af henni
verður. Þetta segir Alexander
Eðvardsson sérfræðingur hjá
KPMG.
Hann segir að af 35 hótelum
og gististöðum sem skoðaðir hafi
verið hafi reksturinn verið nei-
kvæður í Reykjavík um tæplega
600 milljónir króna í fyrra en
jákvæður um tæplega 200 millj-
ónir á landsbyggðinni. - mh
Úttekt á ferðaþjónustunni:
Ræður ekki við
skattahækkun
Slasaðist í Skaftafelli
Kona slasaðist á fæti í Skaftafelli um
kvöldmatarleytið í gær. Konan, sem
er erlendur ferðamaður, var á göngu
að Sjónarnípu þegar hún slasaðist.
Björgunarsveitamenn voru kallaðir út
og þurftu að bera konuna niður að
vegi þar sem sjúkrabíll beið hennar.
SLYS