Fréttablaðið - 31.08.2012, Qupperneq 49
Aino Freyja segir rannsóknir sýna með skýr-um og afgerandi hætti að fólk sækist frekar í að búa á svæði þar sem boðið er upp á
ríkulega menningu heldur en í menningarsnauð-
ari samfélögum. Þess vegna þarf sveitarfélag sem
vill hlúa vel að íbúum sínum að sinna hinni menn-
ingarlegu hlið til jafns við aðrar þarfir fólksins
– það hefur beinlínis áhrif á samkeppnishæfni
sveitarfélaga. Í okkar menningarheimi eru gæði
samfélags ekki aðeins metin út frá fjárhagslegum
forsendum, heilbrigði eða menntun heldur einnig
þeirri listrænu upplifun sem fólki er boðið upp á.
Þess vegna er mjög mikilvægt að í okkar nærsam-
félagi sé hlúð að menningarlegri velferð íbúanna
með til að mynda tónleikahúsi eins og Salnum.
Svo má þess geta að Salurinn skilar Kópavogsbæ
mikilli og jákvæðri umfjöllun í fjölmiðlum.“
Þið eruð þessa dagana að bjóða upp á tónleika
í hádeginu. Eru slíkir tónleikar vel sóttir?
„Já, við höfum fundið fyrir miklum áhuga fyrir
þessari nýbreytni. Röðin er fjölbreytt og gaman
að geta boðið upp á slíka viðburði með okkar
besta tónlistarfólki sem og erlendum gestum.
Til að mynda er mikill áhugi fyrir tónleikunum
með þýska píanósnillingnum Thomasi Hell sem
mun flytja klassískt 19. aldar verk eftir Brahms og
nútímaverk eftir Ligeti. En hann hefur getið sér
góðs orðs í Evrópu fyrir flutning á nútímaverkum.
Við erum sannfærð um að þessir hádegistón-
leikar auðgi mannlífið í miðbæ Kópavogs og geti
lýst upp vetur þess fólks sem starfar í Kópavogi
og nágrenni. Stuttir tónleikar sem lyfta sálinni á
köldum vetrardegi og kaffisopi á eftir getur ekki
klikkað.“
Hefur dregið úr aðsókn eftir að Harpan var
opnuð eða er kakan einfaldlega að stækka?
„Íslendingar virðast vera einstaklega miklir
áhugamenn um tónlist og tónleika og hreinlega
flykkjast á tónleika kvöld eftir kvöld. Salurinn er
einstakur á þann hátt að þar komast áheyrendur
í mikið návígi við tónlistarmenn og undantekn-
ingalaust myndast hlý og skemmtileg stemning
á tónleikum í Salnum. Við finnum ekki fyrir öðru
en auknum áhuga fyrir því sem við erum að gera.
Til að mynda er nánast slegist um miða á spjall-
tónleika Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, en allir
miðar seldust upp í fyrra. Eins eru tónlistarmenn
ánægðir með góðan hljómburð í Salnum og þá
nálægð sem hann býður upp á við áheyrendur.“
Finnst þér menning almennt mæta litlum
skilningi?
„Hvað svo sem segja má um skilning yfirvalda
er menningarneysla fólks á Íslandi með mesta
móti. Því er menningarskilningur hér satt að
segja með ágætum. Við Íslendingar erum góðir í
að vefja klassík og almennari verkum saman eins
og til að mynda verður boðið upp á í Salnum í
vetur undir yfirskriftinni Ef lífið væri söngleikur!
þar sem okkar bestu leik- og sönglistarmenn fara
yfir breitt svið söngleikjatónlistar á fernum tón-
leikum. Verkin dansa á línu leikhúss og tónleika
og ekki er annað að sjá en þeir veki mikinn
áhuga hjá gestum okkar.
Kópavogur hefur lagt mikið upp úr tónlist og
má segja að með byggingu Salarins hafi bærinn
lagt hornstein að góðu tónlistarlífi í bænum og
sýnt skilning á mikilvægi menningar fyrir bæjar-
félagið. Almennt má þó segja að þrátt fyrir að
mörgu leyti ágæta umgjörð fyrir menningarvið-
burði á Íslandi, svo sem í byggingu viðburða-
húsa, þá skortir sárlega að meira sé lagt í sjálfa
framleiðslu listviðburðanna.“
Nú ert þú búin að vera forstöðumaður í
bráðum tvö ár. Hvernig líkar þér í þessu starfi?
„Starfið er einstaklega fjölbreytt og skemmti-
legt þar sem það krefst mikillar yfirsýnar og
snertir á öllum þáttum framkvæmdastarfa auk
listrænnar innsýnar vitaskuld. Á einum degi á
maður til að bregða sér í hin ýmsu hlutverk svo
sem listræns stjórnanda, kynningastjóra, verk-
efnastjóra, fjármálastjóra o.s.frv. En það áhuga-
verðasta við starfið er þó kannski það þegar
okkur tekst að kveikja, næra og þróa hugmyndir
í skapandi samstarfi ólíks fólks og svo fá að sjá
þá hugmynd verða að veruleika á sviðinu og öðl-
ast líf í höndum tónlistarmanna og áhorfenda.“
Kom þér eitthvað á óvart?
„Það sem er gleðilegast og gefur manni mest
er að sjá þegar fjölbreytt flóra gesta Salarins
skemmtir sér vel hér á tónleikum og á saman
ljúfa stund í Salnum. Til þess er jú leikurinn
gerður.“
LISTRÆN UPPLIFUN Í SALNUM
SÉRHANNAÐUR SALUR Aino Freyja Jarvela, forstöðumaður Salarins, hefur stýrt þessu fyrsta sérhannaða tónleikahúsi landsins af
miklum myndarskap í nærri tvö ár. Salurinn var tekinn í notkun 2. janúar 1999 og er rekinn af Kópavogsbæ.
FLOTT HÚS Tónlistarmenn hafa verið afar ánægðir með
hljómburðinn í Salnum í Kópavogi.
STJÓRNANDINN
Aino Freyja hefur stýrt
Salnum með miklum
myndarskap.
FÓLK|HAMRABORG
Hamraborgarhátíðin
verður haldin laugardaginn
1. september. Hamraborginni
verður breytt í göngugötu og
ungir sem aldnir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Hátíðin verður komin á fullt
skrið kl. 11 um morguninn og
mun standa fram eftir degi. Hittumst, gleðjumst og kynnumst hjarta Kópavogs
Verslanir og þjónustuaðilar í Hamraborginni bjóða gestum ýmsar veitingar og tilboð í tilefni dagsins!
Ungmennahúsið Molinn setur upp svið og ungir tónlistarmenn koma fram yfir daginn.
Þess má einnig geta að gestum og gangandi býðst að stíga á stokk - svokölluð „open-mic“ stemning!
Íþrótta- og tómstundafélög kynna vetrarstarf sitt með fjölbreyttum sýningum og uppákomum.
Sannkölluð markaðsstemning. Áhugasamir selja notað og nýtt úr bílum sínum.
Handverk, sultur, bækur, skart, fatnaður og margt fleira!
Menningarstofnanir bæjarins eru opnar og tilvalið að líta við!
1. september frá kl. 11.
2012