Fréttablaðið - 31.08.2012, Qupperneq 69
FÖSTUDAGUR 31. ágúst 2012 45
Plata Of Monsters and Men, My Head is an
Animal, kom út í Bretlandi á mánudaginn og
náði strax efsta sætinu á sölulista iTunes þar
í landi.
„Við erum í efsta sæti á iTunes í Bretlandi.
Kærar þakkir til allra sem keyptu plötuna
í dag,“ skrifaði sveitin á Twitter-síðu sína.
Þessi árangur er í takt við vinsældirnar í
Bandaríkjunum þar sem platan náði öðru sæti
á iTunes skömmu eftir að hún kom þar út og
einnig sjötta sætinu á Billboard-listanum.
Breskir fjölmiðlar hafa farið lofsamlegum
orðum um Of Monsters and Men að undan-
förnu. Blaðamaður BBC segir að Bretar
hafi verið lengi að meðtaka Of Monsters and
Men. Eins og margir aðrir líkir hann hljóm-
sveitinni við hina ensku Mumford and Sons
og segir báðar sveitir hafa einfaldleikann og
grípandi lög að leiðarljósi. „Ekkert á þessari
plötu kemur á óvart en stöðugleikinn er mik-
ill. Hérna er ekki eitt slakt lag,“ skrifar hann.
Blaðamaður vefsíðunnar Digital Spy gefur
plötunni fjórar stjörnur af fimm mögulegum
og segir að með henni sé öruggt að Of Mon-
sters verði á tónleikaferð um heiminn næstu
árin. The Guardian gefur henni fjórar af
fimm og segir löngu tímabært að hljómsveitin
slái í gegn í Bretlandi.
The Observer gefur sveitinni reyndar
aðeins tvær stjörnur og segir plötuna innan-
tóma sem sé synd því söngvararnir Nanna
Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson
séu íslenska útgáfan af Kim Deal og Frank
Black úr rokksveitinni Pixies. - fb
Náðu efsta sæti á breska iTunes
VINSÆL Í BRETLANDI Of Monsters and Men á hátíðinni
Rock En Seine í París. Hljómsveitin virðist ætla að taka
Bretlandseyjar með trompi. NORDICPHOTOS/GETTY
KYNNINGLIVE
2012
NÁ
MS
VIÐ
BU
RÐ
UR
1. SEPT 13-17
KAFFI SÓLON, BANK
ASTRÆTI 7A, EFRI H
ÆÐ
12 HÁSKÓLAR VÍÐSVEG
AR ÚR HEIMINUM
NÁM ERLENDIS, ÍÞRÓTTASTYRK
IR OG STARFNÁM
KILROY MUN HJÁLPA ÞÉR ÚT Í NÁM
UPPLÝSINGAR: KILROY.IS
Á NÁMI
ERLENDIS
Kvintettinn The Heavy Experi-
ence hefur sent frá sér sína
fyrstu stóru plötu, Slowscope.
Áður hefur sveitin gefið út sam-
nefnda stuttskífu.
Tónlist The Heavy Experi-
ence er illlýsanleg blanda drunu-
tónlistar og djass; einföld en
ákveðin, þunglamaleg en skýr.
Slowscope kemur aðeins út á 12
tommu hljómplötu, en platan er
skorin í 180 gramma jómfrúar-
vínylblöndu. Þess ber að geta að
geisladiskur fylgir vínylplötunni.
Útgefendur eru Kimi Records og
Úsland, útgáfufélag hljómsveitar-
innar.
Kvintett með
Slowscope
FYRSTA PLATAN The Heavy Experience
hefur gefið út sína fyrstu stóru plötu.
Michael J. Fox ætlar að snúa
aftur í sjónvarpið í nýjum sjón-
varpsþáttum sem verða lauslega
byggðir á ævi hans. 22 þættir
verða framleiddir fyrir sjón-
varpsstöðina NBC.
Fox leikur þriggja barna föður
sem býr í New York-borg og þarf
að sinna fjölskyldunni, vinnunni
og takast á við heilsuvandamál
sín. Persóna hans verður með
Parkinson-sjúkdóminn, rétt eins
og Fox sjálfur. Hann sló fyrst í
gegn í þáttunum Family Ties á
níunda áratugnum en hefur lítið
leikið undanfarinn áratug. Þó
hefur hann leikið gestahlutverk
í Curb Your Enthusiasm og The
Good Wife við góðar undirtektir.
Snýr aftur í
sjónvarpið
MICHAEL J. FOX Leikarinn smávaxni
ætlar að snúa aftur í sjónvarpið.
NORDICPHOTOS/GETTY