Fréttablaðið - 31.08.2012, Side 72
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI FH er með afar þægilega
stöðu eftir sigurinn á ÍBV í gær.
Leikurinn var leikur tveggja hálf-
leikja. FH hefði átt að afgreiða
leikinn í fyrri hálfleik en hleypti
ÍBV inn í þeim seinni og litlu mátti
muna að ÍBV hefði jafnað.
FH hafði ótrúlega yfirburði í
fyrri hálfleik. Þeir réðu lögum og
lofum strax frá fyrstu mínútu og
byrjuðu strax að þjarma að hálf-
daufum Eyjamönnum.
Atli Guðnason fékk fyrsta
dauðafæri leiksins en lét verja frá
sér. Björn Daníel kom þó FH yfir
eftir rúmlega korter. Hann fékk
þá laglega sendingu í teiginn frá
Guðjóni Árna og afgreiddi send-
inguna smekklega í fjærhornið.
Flott mark.
Öll færi fyrri hálfleiks voru
FH-inga og Einar Karl hefði átt
að skora er hann komst
einn í gegn eftir að
Tonny hafði dottið fyrir
framan teiginn. Skot
hans fór í slána. Fjöl-
margar sóknaraðgerðir
FH-inga sköpuðu usla
en það sama verður ekki
sagt um ÍBV.
Vannýtt færi FH-inga
Sóknarleikur liðsins var
í algjörum molum og
varnarmenn FH svitn-
uðu varla við að brjóta
niður hugmynda snauðar
og máttlausar sóknar-
aðgerðir gestanna. Þess
utan slitnaði allt of mikið
á milli varnar og miðju
hjá ÍBV og FH fékk fjöl-
margar skyndi sóknir
þar sem voru þrír á
móti þremur eða tveir
á móti tveimur. Það var ekki ÍBV
að þakka að FH skyldi ekki nýta
færin sín en með réttu hefði þessi
leikur átt að vera búinn í hálfleik.
FH fékk svo sannarlega færin til
þess að ganga frá leiknum.
ÍBV nýtti sér það í síðari hálf-
leik að vera enn inni í leiknum.
Andri Ólafsson kom af bekknum
og smám saman náði ÍBV tökum á
leiknum. Leikurinn snerist algjör-
lega við er Eyjamenn tóku loksins
við sér. Þeir settu FH undir mikla
pressu og voru ekki fjarri því að
jafna. Að sama skapi opnaðist vörn
þeirra illilega við pressuna en sem
fyrr voru sóknarmenn FH-inga
klaufar upp við mark gestanna.
Tryggvi kominn úr agabanni
Margir vildu sjá Tryggva Guð-
mundsson koma inn af bekknum
en hann var í fyrsta skipti í leik-
mannahópi ÍBV eftir verslunar-
mannahelgi. ÍBV hefði ekki veitt
af töfrum Tryggva í teignum
þegar þeir pressuðu hvað mest
og í raun óskiljanlegt að Magnús
Gylfason, þjálfari ÍBV, skyldi ekki
henda honum inn á völlinn fyrr í
þessum mikilvæga leik fyrst hann
var á annað borð að kalla á hann í
hópinn á nýjan leik.
Mánaðarbann og fjórir leikir
„Upphaflega þegar Tryggvi fór
í bann hugsaði ég mér mánaðar-
bann og fjóra leiki. Ef hann myndi
standa sig þá var möguleiki á að
hann kæmi aftur inn í hópinn.
Hann gerði það og æfði vel. Hann
er kominn úr banni og tiltækur
aftur. Ég hefði sett hann inn fyrr
ef ég hefði vitað að hann skoraði.
Mér fannst liðið bara
vera að spila svo vel er
við pressuðum þá að
ég setti hann ekki inn.
Kannski hefði ég átt að
skipta fyrr inn en maður
veit aldrei,“ sagði Magn-
ús um Tryggva og bætti
við að Tryggvi myndi
spila áfram með liðinu
ef hann færi eftir þeim
reglum sem væru settar.
„Við erum enn að
berjast um Evrópusæti
og hættum ekki. Við
eigum samt ekki séns á
titlinum lengur. Það er
alveg ljóst,“ sagði Magn-
ús svekktur en hann var
alls ekki ánægður með
fyrri hálfleikinn hjá
sínu liði enda voru hans
menn engan veginn til-
búnir í slaginn þá.
Víti til varnaðar
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
var hýr á brá eftir leikinn enda
tók hans lið risaskref í átt að
titlinum.
„Við erum þar sem við viljum
vera. Vítin eru samt til staðar.
Manchester United klúðraði niður
forskoti síðasta vetur og Keflavík
átti átta stig á FH árið 2008. Við
getum bara tekið fyrir einn leik í
einu. Nú er þetta í okkar höndum
og þannig viljum við hafa það.
Ef við förum fram úr okkur og
fögnum núna þá lendum við í
vandræðum,“ sagði Heimir kátur.
Næstu leikir í deildinni fara
fram á sunnudag en FH-ingar
mæta Keflvíkingum á mánudags-
kvöld.
henry@frettabladid.is
HELGI VALUR DANÍELSSON og félagar í sænska liðinu AIK tryggðu sér í gær sæti í riðlakeppni
Evrópudeildar UEFA með ótrúlegum 2-0 sigri á CSKA Moskvu í Rússlandi í gær. AIK vann samanlagt 2-1 en
heimamenn sóttu nánast látlaust í gær án þess að skora. Helgi Valur spilaði allan leikinn fyrir AIK.
Vítin eru til
staðar. Manc-
hester United
klúðraði
niður forskoti
síðasta vetur
og Keflavík
átti átta stig á
FH árið 2008.
HEIMIR
GUÐJÓNSSON
ÞJÁLFARI FH
FH 2-0 ÍBV
1-0 Björn Daníel Sverrisson (16.)
2-0 Kristján Gauti Emilsson (90+3.)
Vodafone-völlurinn, áhorf.: 1.960
Dómari: Þorvaldur Árnason (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–13 (9–5)
Varin skot Gunnleifur 4 – Abel 5
Horn 7–5
Aukaspyrnur fengnar 13–17
Rangstöður 1–2
FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnleifsson 7 – Danny
Thomas 6, Freyr Bjarnason 7, Pétur Viðarsson
6 (72., Kristján Gauti Emilsson -), Guðjón Árni
Antoníusson 6 – *Björn Daníel Sverrisson 7, Bjarki
Gunnlaugsson 6, Hólmar Örn Rúnarsson 6 – Einar
Karl Ingvarsson 6 (65., Guðmann Þórisson 5), Atli
Guðnason 7, Albert Brynjar Ingason 6.
ÍBV 4–3–3 Abel Dhaira 7 – Matt Garner 6, Brynjar
Gauti Guðjónsson 6, Rasmus Christiansen 6, Arnór
Eyvar Ólafsson 6 – George Baldock 4, Þórarinn Ingi
Valdimarsson 4 (85. Tryggvi Guðm. -), Guðmundur
Þórarinsson 7 – Tonny Mawejje 6, Víðir Þorvarðar-
son 4 (46., Andri Ólafsson 7), Christian Olsen 6.
FÓTBOLTI Kolbeinn Kárason skoraði tvívegis í 4-0 sigr-
inum á Keflavík í 17. umferð Pepsi-deildar karla. Valur
vann einnig 4-0 sigur í fyrri leiknum og virðist henta
liðinu vel að mæta Bítlastrákunum af Reykjanesinu.
„Lokatölurnar gefa rétta mynd af leiknum og við
hefðum getað unnið enn stærri sigur að mínu
mati. Ég man ekki eftir því að þeir hafi átt færi
í leiknum og heldur ekki í fyrri umferðinni,“
segir framherjinn sem hefur skorað sjö mörk
í deildinni og er á meðal markahæstu manna,
aðeins 21 árs að aldri.
Óhætt er að segja að skipst hafi á skin og
skúrir hjá Valsmönnum í sumar. Nánast ríkir
sú regla að liðið vinni og tapi leikjum til
skiptis. Því væri margt vitlausara en að
spá Hlíðarendapiltum tapi í leik liðsins
á sunnudag gegn Stjörnunni.
„Við ætlum að breyta þessu jójó-
gengi okkar,“ segir Kolbeinn sem tók
sér frí frá knattspyrnu að loknu sínu
fyrsta ári í öðrum flokki. Þá var Kol-
beinn 18 ára og segist hreinlega hafa
fengið leiða á fótbolta.
„Gunnlaugur Jónsson, sem þá
þjálfaði Val, fékk mig til að mæta á æfingar aftur,“
segir Kolbeinn sem var í leikmannahópi Vals í
síðasta leik Íslandsmótsins sumarið 2010. Síðan þá
hefur hann æft af krafti undir stjórn Kristjáns Guð-
mundssonar og Freys Alexanderssonar og ber þeim
vel söguna sem og liðsfélögum sínum.
„Það er stutt í húmorinn í Valsliðinu. Menn
eru góðir vinir og fínasta stemning. Það eru
einhverjir hrekkjarar í liðinu. Ásgeir Ingólfs
og Kiddi (Kristinn Freyr Sigurðarson) og fleiri
sem eru alltaf hver að stríða öðrum. Það er ekk-
ert alvarlegt samt,“ segir Kolbeinn að spurður
um hvort leikmenn þurfi að vera varir um
sig hver gagnvart öðrum í búnings-
klefanum.
„Það er enginn samt að rugla neitt í
mér,“ segir Kolbeinn léttur en fram-
herjinn stæðilegi gat sér gott orð í
hnefaleikum á sínum tíma. Hann
hefur þó enga löngun til þess að
ræða hnefaleikaferil sinn frekar.
„Ég er fótboltamaður, ekki
boxari,“ segir Kolbeinn.
- ktd
Kolbeinn Kárason er besti leikmaður 17. umferðar Pepsi-deildar karla::
Það ruglar enginn neitt í mér
Lið 17. umferðar
Markvörður
Ögmundur Kristinsson, Fram
Varnarmenn
Arnór Eyvar Ólafsson, ÍBV
Ármann Smári Björnsson, ÍA
Alexander Scholz, Stjarnan
Miðjumenn
Finnur Ólafsson, Fylkir
Tómas Leifsson, Selfoss
Rúnar Már Sigurjónsson, Valur
Einar Karl Ingvarsson, FH
Sóknarmenn
Kristinn Ingi Halldórsson, Fram
Kolbeinn Kárason, Valur
Garðar Bergmann Gunnlaugsson, ÍA
Ég er gulrótarmeistari
í baksundi segir
Gedda gulrót
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Undankeppni EM
Serbía - Ísland 114-58 (66-29)
Stig Íslands: Jakob Örn Sigurðarson 14, Hlynur
Bæringsson 12, Logi Gunnarson 7, Helgi Már
Magnússon 6, Ægir Steinarsson 5, Sigurður Þor-
steinsson 4, Brynjar Þór Björnsson 3, Helgi Páls-
son 3, Jón Arnór Stefánsson 2, Pavel Ermolinskij 2.
Pepsi-deild karla
FH 17 12 2 3 40-17 38
KR 17 9 4 4 32-22 31
ÍBV 17 8 3 6 28-16 27
ÍA 17 8 3 6 27-31 27
Stjarnan 17 6 8 3 35-31 26
Valur 17 8 0 9 28-25 24
Keflavík 17 7 3 7 27-27 24
Breiðablik 17 6 5 6 18-22 23
Fylkir 17 6 5 6 22-30 23
Fram 17 5 2 10 23-29 17
Selfoss 17 4 3 10 24-34 15
Grindavík 17 2 4 11 23-43 10
Evrópudeild UEFA
Liverpool - Hearts 1-1
0-1 David Templeton (84.), 1-1 Luis Suarez (87.).
Liverpool vann samanlagt, 2-1.
AIK - CSKA Moskva 2-0
AIK vann samanlagt, 2-1.
Newcastle - Atromitos 1-0
Newcastle vann samanlagt, 2-1.
Öll úrslit úr leikjum gærdagsins má sjá á Vísi.
Enski deildarbikarinn
Wolves - Northampton 3-1
Björn Bergmann Sigurðarson og Eggert Gunnþór
Jónsson voru báðir í byrjunarliði Wolves.
ÚRSLIT FH-ingar með pálmann í höndunum
FH er komið með sjö stiga forskot í Pepsi-deild karla eftir sterkan 2-0 sigur á ÍBV í gær. Eyjamenn eru úr
leik í baráttunni um titilinn og það þarf mikið að gerast svo FH verði ekki Íslandsmeistari í ár.
ÓHRÆDDUR Abel Dhaira átti góðan leik í marki ÍBV í gær. Hér er hann kominn langt
frá marki sínu í baráttu við Guðjón Árna Antoníusson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Ísland mátti þola 56
stiga tap fyrir Serbíu í undan-
keppni EM ytra í gær, 114-58.
Ísland er í næstneðsta sæti riðils-
ins með einn sigur í sex leikjum.
Ísland komst í 5-2 forystu í
upphafi leiks en þá komu þrettán
serbnesk stig í röð. Heimamenn
litu ekki um öxl og hreinlega
stungu strákana af. - esá
Undankeppni EM:
Risastórt tap
Íslands í Serbíu