Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 8
1. september 2012 LAUGARDAGUR8
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
5
69
68
1
0/
11
Auglýst eftir
IPA-verkefnistillögum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir hugmyndum
að IPA-verkefnum á Íslandi en markmið þeirra er að undirbúa mögulega
þátttöku í uppbyggingarsjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu.
Auglýst er eftir verkefnum á sviði:
Atvinnuþróunar og byggðamála
Velferðar- og vinnumarkaðsmála
Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra. Stefnt er að því að verja þeim til allt
að 20 verkefna um allt land á árinu 2013.
Verkefni skulu taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni og vera unnin í
samstarfi a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur
og að hámarki ein milljón evra.
Umsóknafrestur er til 30. nóvember 2012
Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn eru aðgengileg á slóðinni:
www.byggdastofnun.is/ipa
Bæði Jóhanna og Ögmundur gagnrýndu Björn Bjarnason, þáverandi dóms-
málaráðherra, harðlega þegar kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði að
hann hefði brotið gegn jafnréttislögum árið 2004. Þá réð hann Ólaf Börk
Þorvaldsson hæstaréttardómara. Björn hafði þá sagt að jafnréttislögin væru
barn síns tíma, og Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, hafði tekið í
sama streng. „Hroki og vankunnátta hæstvirtra forsætisráðherra og dóms-
málaráðherra á jafnréttislögum er hrópandi,“ sagði Jóhanna meðal annars
á þingi árið 2004 í umræðum um málið. „Hér á landi er allt leyfilegt hjá
ráðherrum og þeir komast upp með allt. Ef ráðherrar eru ósáttir við lög eiga
lögin bara að víkja en ekki þeir að þeirra mati,“ sagði hún einnig.
„Það blasir við að ráðherrar í ríkisstjórn verði settir á skólabekk til að
læra jafnréttislögin. Ég ætla að gera það að tillögu minni að hæstvirtur
félagsmálaráðherra sjái um að þeir tornæmustu í jafnréttisfræðunum fái
sérkennslu,“ sagði Ögmundur um málið þá.
Hafa bæði sett fram harða gagnrýni
STJÓRNSÝSLA Verið er að fara yfir
úrskurð kærunefndar jafnréttis-
mála í innanríkisráðu neytinu, eftir
að nefndin úr skurðaði að Ögmund-
ur Jónasson innanríkis ráðherra
hefði brotið gegn jafnréttislögum.
Engin ákvörðun hefur enn verið
tekin um framhaldið.
Niðurstaða nefndarinnar er
annar úrskurðurinn sem ráðherra
í ríkisstjórninni fær á sig, því
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra var talin hafa brotið
jafnréttislög með því að ráða karl
í stað konu í starf skrifstofustjóra
árið 2010. Konan, Anna Kristín
Ólafsdóttir, fór með mál sitt fyrir
dómstóla og voru henni dæmdar
miskabætur frá ríkinu í júní síð-
astliðnum. Í því máli hafði forsæt-
isráðuneytið boðið sættir áður en
til kasta dómstóla kom.
Halla Bergþóra Björnsdóttir,
sem kærði ákvörðun innanríkis-
ráðherra um ráðningu sýslu-
manns á Húsavík, hefur ekki tekið
ákvörðun um hvort hún hyggst
fara með mál sitt fyrir dómstóla.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra hefur lýst því yfir að
hann sé ósammála úrskurði nefnd-
arinnar og hann hafi farið að eigin
samvisku og beitt eigin dómgreind
við ráðninguna. Kristín Ástgeirs-
dóttir, framkvæmdastýra Jafn-
réttisstofu, telur að ef svo er eigi
hann að fara með málið fyrir dóm-
stóla til að fá úr því skorið. Annars
standi úrskurðurinn.
Úrskurðir nefndarinnar eru
bindandi samkvæmt jafnréttislög-
um frá árinu 2008, en í máli Önnu
Kristínar var í fyrsta sinn tekið
á því hvaða merkingu það hefur.
Samkvæmt dómnum er niðurstaða
úrskurðarnefndar jafnréttismála
bindandi ef stjórnvöld höfða ekki
mál innan ákveðinna málshöfðun-
arfresta.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætis ráðherra hefur í sambandi
við úrskurði nefndarinnar sagt að
henni finnist að breyta þurfi ráðn-
ingarferlinu hjá ríkinu og hún vilji
sjá að hæfnis nefndir verði fengn-
ar í öllum tilvikum. Þá hefur hún
sagt að fari ráðherrar ekki að mati
slíkra nefnda þurfi þeir að færa
fyrir því mjög góð rök.
Ekki hafa fengist upplýsingar
um það frá forsætisráðuneytinu
hvort í bígerð sé að gera breytingar
í þessa veru. Settar voru reglur um
ráðningar á skrifstofustjórum og
ráðuneytisstjórum í tengslum við
breytingar á stjórnarráðinu í vor.
Þær reglur kveða á um að skipa
skuli ráðgefandi hæfnisnefnd í
hvert sinn sem skipa þarf í þessar
stöður. thorunn@frettabladid.is
Ráðuneytið
skoðar málið
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála er í skoðun
í innanríkisráðuneytinu. Hvorki ráðuneyti né kær-
andi hafa tekið ákvörðun um framhaldið. Í síðasta
tilviki var reynt að ná sáttum við kæranda.
ÖGMUNDUR OG JÓHANNA Ráðherrarnir hafa báðir fengið á sig úrskurði frá kæru-
nefnd jafnréttismála. Nú skoðar innanríkisráðuneytið framhald málsins.