Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 12
12 1. september 2012 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Í vikunni birti Seðla bankinn skýrslu til efnahagsráð-herra um varúðarreglur eftir fjármagnshöft. Hún er
áhugavert framlag til hagfræði-
legrar umræðu um peningamála-
stjórnun. En hitt er þó ekki síðra
að hún varpar ljósi á ýmsar póli-
tískar hliðar á þessu mikla við-
fangsefni sem þarfnast skýringa.
Skýrslan byggir á raunsæju
mati á aðstæðum. Flestar hug-
myndirnar hafa verið til um-
fjöllunar í alþjóðlegu samstarfi um
hríð en aðrar eru séríslensk hug-
myndafræði vegna aðstæðna sem
hér ríkja en ekki annars staðar.
Þarft og gott framlag af þessu tagi
er reyndar löngu tímabært.
Heiti skýrslunnar dregur fram
fyrsta pólitíska
álitaefnið: Var-
úðarreglur eftir
fjármagnshöft.
Hér er með mjög
skýrum hætti
gengið út frá því
að frjáls gjald-
eyrisviðskipti
séu ekki í sjón-
máli í náinni
framtíð. Í raun
er verið að boða fjölþættari reglur
til að takmarka viðskipti með
gjaldeyri. Þær má að sjálfsögðu,
að erlendri fyrirmynd, kenna við
varúð en það breytir ekki hinu að
eftir sem áður fela þær í sér höft.
Flest bendir til að gjaldeyrisvið-
skipti víðast hvar í heiminum verði
háð strangari reglum en áður var.
Fyrirsjáanlegt er hins vegar að
takmarkanir verða mun meiri hér
en í þeim ríkjum sem við jöfnum
okkur helst til. Fyrir þá sök kann
að vera nauðsynlegt að taka samn-
inginn um Evrópska efnahags-
svæðið upp. Þetta er sú framtíð
sem við blasir.
Hvernig ætla menn að mæta
henni? Mun markaðsstaða Íslands
raskast? Hvaða áhrif hefur þetta
á hagvaxtarmöguleika til lengri
tíma? Pólitíkin skuldar kjósend-
um svör við stórum spurningum.
Umræðan bendir hins vegar til
að bæði ríkisstjórnin og stjórnar-
andstöðuflokkarnir ætli að fara í
kringum þær eins og heitan graut
í kosningabaráttunni.
Höftin fá nýtt nafn
ÞORSTEINN
PÁLSSON
Önnur áhugaverð póli-tísk hlið birtist í því að í skýrslunni segir að þegar sé farið að huga að
því að koma þessari stefnumótun
í búning laga og reglna. Þetta er
athyglisvert í ljósi þess að í júlí var
hermt að ríkisstjórnin hefði sam-
þykkt samningsmarkmið gagnvart
Evrópusambandinu með þeirri
afdráttarlausu stefnumörkun að
Ísland stefndi að upptöku evru svo
fljótt sem verða mætti.
Þetta þýðir að ríkisstjórnin
hefur hafið undirbúning að löggjöf
á sviði peningamála sem byggir
á annarri leið en hún sjálf sam-
þykkti í sumar. Að vísu er nauð-
synlegt að útfæra báðar leiðirnar
og margt í þeim er samrýmanlegt.
En menn verða að vita hvor leiðin
er forgangsverkefnið og hvor er
varaáætlun. Án frekari skýringa
af hálfu ríkisstjórnarinnar er það
á huldu. Slíkur ruglingur byggir
hvorki upp traust heima fyrir né
út á við gagnvart öðrum þjóðum.
Brýnt er að útfæra áætlanir um
þessar tvær meginleiðir. Fyrst og
fremst vegna þess að þjóðin á rétt á
að sjá þær og meta á málefnalegum
forsendum. Það gerist ekki öðru-
vísi en þær séu til. Hitt er að gangi
önnur ekki upp þarf varaplanið að
liggja skýrt fyrir. Þó haldið sé af
stað eftir annarri leiðinni er vita-
skuld unnt að fara inn á hina síðar.
Eins og sakir standa virðist
pólitíska staðan vera sú að ríkis-
stjórnin veit ekki hvora leiðina hún
hyggst fara. Báðir stjórnarand-
stöðuflokkarnir hafa hafnað evru.
Þeir gagnrýna Seðla bankann. En
með því að þeir eiga ekkert svar
sjálfir eru þeir líklegir til að fylgja
línu hans. Hætt er við að þjóðin
eigi eftir að súpa seyðið af þessu
ráðleysi.
Er engin forgangsleið?
Þriðja pólitíska hliðin á þessu máli kom fram í grein innanríkisráðherra í þessu blaði í vikunni.
Þar greindi hann frá því að VG
hefði í ríkisstjórn gert þrjá fyrir-
vara við samningsmarkmiðin í
peninga málum: Í fyrsta lagi um
afnám hafta, í öðru lagi um aðild
að ERM II gjaldeyrissamstarfinu
og í þriðja lagi um upptöku evru.
Þetta eru mikil tíðindi sem þó
hafa hvorki vakið eftirtekt fjöl-
miðla né stjórnmálamanna. Erfitt
er að véfengja orð ráðherrans. Það
merkir að VG hefur í raun og veru
stöðvað aðildarviðræðurnar í júlí.
En er það svo? Samþykktu ráð-
herrar VG ekki samningsafstöðu-
plaggið?
Samkvæmt þingræðisreglunni
þarf stefna Íslands að njóta meiri-
hlutastuðnings á Alþingi. Utan-
ríkisráðherra getur því ekki rætt
samningsafstöðuna um upptöku
evru við ríki Evrópusambandsins
nema ríkisstjórnarflokkarnir hafi
verið efnislega sammála henni við
ríkisstjórnarborðið og hana megi
kynna sem stefnu Íslands án fyrir-
vara um kjarnaatriði hennar.
Hvers vegna eru ráðherrar
VG nú að óska eftir endurmati á
aðildar viðræðunum ef þeir bókuðu
þegar í júlí fyrirvara sem í reynd
útiloka frekari viðræður. Til að
eyða þessari óvissu er óhjákvæmi-
legt að birta bókun ríkisstjórnar-
innar um þetta mál.
Birta verður bókun ríkisstjórnarinnar
Þ
úsundir ólögráða unglinga hefja þessa dagana nám í
nýjum framhaldsskóla. Það er ákaflega mismunandi
hvernig samnemendur þeirra taka á móti þeim, eins og
kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Í sumum framhalds-
skólum tíðkast enn „busavígslur“ þar sem fólk er útatað í
einhverju ógeði, látið innbyrða skemmdan eða óætan mat og atyrt
og niðurlægt á ýmsan hátt. Annars staðar er tekið á móti krökk-
unum með kaffi eða kvöldvöku.
Kristín Linda Jónsdóttir blaða-
maður skrifaði góða grein hér í
blaðið fyrr í vikunni, þar sem hún
gerir „hefðir“ sumra framhalds-
skóla að umtalsefni, undir fyrir-
sögninni „Þegar niðurlæging og
ofbeldi er fyndið og flott“.
„Einmitt núna er þetta skipu-
lagða ferli niðurlægingar og jafnvel ofbeldis fram undan hér á
landinu okkar. Settar eru upp aðstæður þar sem börn eru í besta
falli útilokuð frá ákveðnum svæðum á eigin vinnustað, flokkuð
óæðri, látin lúta höfði fyrir böðlum sínum, þjóna þeim og sýna
þeim undirgefni, ganga innan þröngrar línu, skríða, ganga í bandi
eða þau gerð að aðhlátursefni,“ skrifar Kristín. „Í versta falli er
þeim misboðið með beinu ofbeldi, þvinguð til innbyrðingar, bundin
saman eða við staur, ötuð ógeði, hífð upp í kös með krana í fiskineti
og bleytt með háþrýstidælu, neydd ofan í kar með slori, kaffærð.“
Það er rétt hjá Kristínu Lindu að þessi framkoma eldri bekk-
inga, sem flestir teljast fullorðið fólk, við ólögráða börn er utan við
allt siðferði. „Fyrirslátturinn er hefðir, ómenning og sú neikvæða
siðvenja að til að verða fullgildur í hópi skuli einstaklingur niður-
lægður til hlýðni og ótta við þá sem fyrir eru. Að ekki sé talað um
rökleysuna að þetta hafi alltaf verið svona og að þeir sem hafi
eitt sinn verið niðurlægðir sem busar hafi rétt á að vera böðlar og
niðurlægja aðra. Hvaða bull er þetta?“ skrifar hún.
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, þar sem vatni var
sprautað á nýnema, þeir látnir baða sig í slori og ís og velta sér
upp úr drullu, er greinilega ósammála. „Eigum við ekki að segja
að þetta sé hefð og hefðir miða ekkert alltaf að því sem er upp-
byggilegt,“ segir hann í Fréttablaðinu í dag. Og svo finnst nýnem-
unum þetta víst alveg mátulegt, segir skólameistarinn. Hann er
þá líklega að gleyma því hvað það getur verið erfitt, ekki sízt á
þessum aldri, að taka sig út úr hópnum og neita að taka þátt í hefð-
inni ef manni finnst hún niðurlægjandi.
Það er gott hjá krökkum, sem vilja ekki láta fara illa með sig, að
taka ekki þátt í þessum athöfnum. Það er gott hjá foreldrum sem
vilja ekki láta fara þannig með börnin sín að segja þeim bara að
sleppa því. Og allra bezt er þegar forsvarsmenn framhaldsskóla
átta sig á því að ofbeldi og niðurlæging á aldrei heima í skólanum
og gera allt slíkt útlægt.
Það á að bjóða krakkana velkomna í samfélag, sem við verðum
að vona að sé sæmilega siðað. Þá verða þeir eldri líka að haga sér
í samræmi við það.
Niðurlæging og ofbeldi gagnvart nýnemum í
framhaldsskólum á að heyra sögunni til:
Siðaðra manna
samfélag
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is