Fréttablaðið - 01.09.2012, Síða 32

Fréttablaðið - 01.09.2012, Síða 32
1. september 2012 LAUGARDAGUR32 N eil Armstrong, sem steig fæti á yfirborð tunglsins fyrstur manna árið 1969, lést fyrir skemmstu eins og flestir vita. Andlát Arm- strongs varð mörgum tilefni til þess að rifja upp tunglferðirnar og hversu einstakt afrek það var að koma mannfólki upp á annan hnött í geimnum, en vekur einnig upp spurningar um af hverju mannaðar tunglferðir lögðust af. Tunglið er talið hafa myndast við árekstur jarðarinnar og annars hnattar, skömmu eftir myndun sólkerfisins. Frá því að mannfólkið kom fyrst fram á sjónarsviðið hefur tunglið vakið með þeim bæði furðu og forvitni. Flestir menningarheimar höfðu sína sýn á tunglið og margir til- báðu tunglið sem guð. Tunglið og tunglferðir hafa einnig átt sinn sess í bókmenntum þar sem bók Jules Verne, Ferðin til tunglsins, sem gefin var út 1865, ber líklega hæst. Geimkapphlaupið Þrátt fyrir að vísindalegur áhugi á nánari könnun á tunglinu hafi verið til staðar alla tíð var það ekki fyrr en í kalda stríðinu á seinni helmingi síðustu aldar sem kraftur komst í rannsóknir með hinu svokallaða geimferðakapp- hlaupi milli stórveldanna. Banda- ríkin og Sovétríkin kepptust þar við að sanna yfirburði sína með afrekum á vísindasviðinu. Mörgum þótti vel í lagt þegar John F. Kennedy Bandaríkjafor- seti kynnti árið 1961 það mark- mið að senda Bandaríkjamenn til tunglsins áður en áratugurinn væri á enda. Á þessum tíma fóru Banda- ríkjamenn einmitt halloka í kapphlaupinu. Sovétmenn höfðu, fjórum árum áður, sent Júrí Gag- arín á braut um jörðu og sendu einnig fyrsta könnunargeim- farið, Luna 2, til tunglsins árið 1959. Þetta var auðmýkjandi og hvatti NASA til dáða og var allt lagt í verkefnið, sem síðar varð að Apollo-leiðöngrunum. Risastökkið Sovétmenn héldu forskotinu enn um sinn með því að lenda Luna 9 á yfirborði tunglsins árið 1966 og senda myndir til baka. Síðar sama ár fór Luna 10 á braut um tunglið fyrstur gervihnatta. NASA hlaut hins vegar uppreisn æru þegar áhafnarmeð limir Apollo 8 urðu fyrstu mennirnir sem komust á braut um tunglið og sáu meðal annars fjærhlið tunglsins fyrstir manna, um jólaleytið 1968. Sumarið eftir lenti Apollo 11 á hinu svokallaða Rósemishafi og Armstrong tók sitt stutta risa- stökk út á yfirborð tunglsins. Buzz Aldrin kom á eftir honum og nýr kafli tók við í sögu geim- rannsókna. Næstu ár lentu fimm önnur mönnuð geimför NASA á tunglinu og tíu geimfarar spígsporuðu þar léttir í spori, og stunduðu ýmiss konar rannsóknir. Síðasti maðurinn sem steig niður fæti á tunglið var Eugene Cernan sem hélt heim á leið 14. desember 1972. Sovétmenn stóðu ekki með hendur í skauti meðan á Apollo- leiðöngrum NASA stóð, heldur fóru ómönnuð Luna-för Sovét- manna til tunglsins og til baka með bergsýni. Frá miðjum sjöunda ára tugnum og fram að árinu 1976 lentu 65 för á tunglinu en eftir það hættu tungllendingar jarðarbúa með öllu. Tunglvatn vakti áhugann Tunglferðir féllu í skuggann af öðrum könnunarverkefnum. HRINGFERÐ UM HIMINGEIMINN Mannlaust á tunglinu í 40 ár Neil Armstrong féll frá fyrir skemmstu en með risastökki sínu árið 1969 var hann í fararbroddi brautryðjenda NASA sem stigu fyrstir fæti á yfirborð tunglsins. Enginn hefur hins vegar komið á tunglið frá árslokum 1972 og þrátt fyrir margs konar hug- myndir um mannaðar tunglferðir er ekki útlit fyrir að breyting verði á í fyrirsjáanlegri framtíð, eins og Þorgils Jónsson komst að. Meðal- fjarlægð milli jarðar og tungls: 384.400 km Jörðin Massi: 5,98 x 1024 kg Þvermál: 12.756 km Tunglið Massi: 7,347 x 1022 kg Þvermál: 3.474 km Vegalengd: 1.534.832 km Ferðatími: Rúmir sjö sólarhringar RISASTÖKKIÐ Bandaríkjamennirnir Neil Armstrong og Buzz Aldrin eyddu einum degi á yfirborði tunglsins. Tíu landar þeirra fylgdu á eftir næstu þrjú árin, en í 40 ár hefur enginn stigið þar fæti, en vel má merkja ummerki vegna dvalar manna á tunglinu. MYND/NASA ● Þó að tunglferðirnar hafi verið farnar í vísindalegum tilgangi var aðeins einn geimfaranna, Harrison Schmitt, vísinda- maður að atvinnu. ● Tunglbíll var með í för í síðustu þremur leiðöngrunum til að auðvelda rannsóknir. ● Alan Shepard hafði golfkylfu og tvo bolta með sér. Hann sló tvö vindhögg áður en hann hitti fyrri boltann, en þann seinni hitti hann í fyrsta. ● Samtals voru Apollo-geimfararnir tólf við störf utan lendingarfarsins í 22 klukkustundir og söfnuðu rúmum 110 kílóum af geimgrjóti. ● Ekkert ríki getur slegið eign sinni á tunglið samkvæmt samningi frá árinu 1967. ● Tunglið snýr alltaf sömu hliðinni að jörðu. Því er engin „skuggahlið“ á tunglinu. (Heimildir: NASA og stjörnufræðivefurinn) Sovét menn einbeittu sér að MIR- geimstöðinni og NASA beindi athygli sinni að könnun Mars og óravíddum geimsins. Upp úr 1990 voru sendir gervi- hnettir á braut um tunglið og vöktu upp getgátur um að ís væri að finna undir yfirborðinu. Til að kanna það voru nokkur för látin brotlenda á yfirborðinu í þeirri von að gufa myndi rísa upp en svo fór ekki, þó síðar kæmi í ljós að vatn er að finna þar í takmörkuðu magni, helst við norðurpólinn. Hætt vegna hruns Efnahagsfárviðrið sem gekk yfir heiminn upp úr haustinu 2008 hafði mikil áhrif á áætlanir NASA, enda hafa framlög til stofnunarinnar dregist verulega saman, með tilheyrandi endur- skipulagningu. Meðal þess sem var slegið út af borðinu voru hugmyndir um mannaðar tunglferðir sem George W. Bush Bandaríkjafor- seti boðaði árið 2004 að gætu orðið fyrir árið 2020. Stefna eftir- manns hans, Baracks Obama, miðar hins vegar að því að koma mönnum á Mars um eða upp úr árinu 2030. Stemningin fyrir tunglferðum virðist takmörkuð sem sannaðist ágætlega þegar Newt Gingrich, sem sóttist eftir útnefningu Repú- blikanaflokksins fyrir komandi forsetakosningar, boðaði upp- setningu mannaðra geimstöðva á yfirborði tunglsins innan ára- tugar en var hann dreginn sundur og saman í háði. Aðrar geimvísinda stofnanir, ESA í Evrópu, Rússar, Kín- verjar, Japanir og Indverjar, hafa uppi áform um frekari könn- un tunglsins og hafa mannaðar ferðir komið til tals, en enginn sem stendur vinnur beint að slíku. Kínverjar stefna að því að senda geimjeppann Chang‘e 3 til tunglsins á næsta ári, sem yrði fyrsta geimfarið sem lendir þar frá árinu 1976. Indverjar og Jap- anir boðuðu fyrir nokkrum árum mannaðar ferðir til tunglsins fyrir 2030 í þeim tilgangi að reisa þar geimstöð, en verkefnið er ekki enn hafið. Loks má nefna Aurora-verk- efni ESA sem felur meðal annars í sér mannaðar könnunarferðir til Mars, en á heimasíðu verk- efnisins er meðal annars velt upp þeim möguleika að geimstöð verði komið fyrir á tunglinu til að sinna ferðum til Mars. Völin og kvölin Ýmis álitamál koma upp þegar kostir og gallar mannaðra rann- sóknarferða til tunglsins eru bornar saman við ómannaðar ferðir. Í fyrsta lagi yrði kostn- aður gríðarlegur í erfiðu árferði, í annan stað fylgir mikil áhætta mönnuðum ferðum til tunglsins og loks er óvíst hvort manns- handarinnar sé þörf við rann- sóknir á tunglinu, í ljósi þess hve há þróaður rannsóknarbúnaður er orðinn, og þá hvort slíkt svari kostnaði og áhættu. Á móti kemur að undir búningur eins flókinna leiðangra og hér er talað um hefur í för með sér mikla framþróun á fjölmörgum sviðum sem skilar sér allt niður í almennar neytendavörur, með tilheyrandi ágóða fyrir efnahags- kerfi. Þá geta mannaðar tungl- ferðir búið vísindamenn undir ferðir til Mars að því ógleymdu að á tunglinu má finna ýmiss konar auðlindir sem má nota til lengri geimferða. Eins og stendur er þó ekkert í hendi og fátt sem bendir bein línis til þess að nokkur muni ganga í fótspor Armstrongs og kollega hans. (Heimildir: Stjörnufræðivefur- inn, NASA.gov og Wikipedia.org) A llt frá lendingu Armstrongs og félaga á Apollo 11 hefur hópur manna og kvenna haldið því fram fullum fetum að allir leiðangrarnir séu blekking. Menn hafi í raun aldrei gengið á tunglinu, geimgöngur hafi verið sviðsettar á jörðu niðri og fullyrðingar um annað séu runnar undan rifjum NASA og bandarískra stjórn- valda. Meðal þess sem hinir vantrúuðu benda á er að bandaríski fáninn sem Buzz Aldrin stakk niður á tunglinu virðist blakta, þrátt yfir að slíkt eigi ekki að vera mögulegt þar sem ekkert andrúmsloft sé á tunglinu. Því er svarað til að fáninn hafi ekki blakt, heldur aðeins virst vera á hreyfingu vegna þess að hann var krumpaður og ekki rétt settur á fána- stöngina. Þá furða margir sig á að á ljósmyndum frá tungl- inu sjást aldrei stjörnur á himni. Það má hins vegar skýra með því að myndirnar eru teknar að degi til á tunglinu þar sem bæði beint sólarljós og endur- kast frá yfirborði tunglsins gerir mannsauganu og myndavélalinsum ómögulegt að sjá stjörnurnar á himninum. Besta sönnunin fyrir áreiðanleika NASA-leiðangr- anna eru hins vegar viðbrögð Sovétmanna á sínum tíma. Hefðu Bandaríkjamenn staðið í einhverju vafasömu í leiðöngrunum hefðu Sovétmenn, með sín fínu njósnatæki, ekki hikað við að upplýsa um svindlið til að reyna að koma höggi á þennan erki- andstæðing sinn. Samsæriskenningar um tunglferðir FÁNINN VIÐ HÚN Krumpur í fánanum vöktu tortryggni í hugum margra. Þær áttu sér hins vegar eðlilegar skýringar. Tunglfararnir tólf og molar úr tunglferðum Tólf geimfarar NASA fóru til tunglsins í sex ferðum á árunum 1969 til 1972. Átta þeirra eru enn á lífi í dag. Geimfarar Dagsetning Tími á tunglinu Neil Armstrong og Buzz Aldrin ...............................21. júní 1969 ................................................. 21 klst. Pete Conrad og Alan Bean ......................................19. til 20. nóv. 1969 ................................31,5 klst. Alan Shepard og Edgar Mitchell ............................5. til 6. febrúar 1971 ................................. 33,5 klst. David Scott og James Irwin .....................................30. júlí til 2. ágúst 1971 ...............................67 klst. John W. Young og Charles Duke ...........................20. til 23. apríl 1972 ..................................... 71 klst. Eugene Cernan og Harrison Schmitt ...................11. til 14. des. 1972 .......................................75 klst. SÁ FYRSTI Neil Armstrong, sem féll frá ekki alls fyrir löngu 82 ára gamall, mælti hin fleygu orð „eitt lítið skref fyrir manneskju, en risastökk fyrir mannkynið allt“ þegar hann steig niður til yfirborðsins. MYND/NASA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.