Fréttablaðið - 01.09.2012, Side 110
1. september 2012 LAUGARDAGUR82
„Ég hef gengið með hugmyndina
í maganum í nokkurn tíma en
opnaði síðuna nú fyrst í ágúst,“
segir Magdalena Dybka sem
heldur úti bloggsíðunni show-
rum.wordpress.com. Á síðunni
fjallar hún ítarlega um íslenska
hönnun, tónlist og myndlist og
er ætlunin að kynna íslenska list
fyrir pólskum lesendum.
Magdalena, eða Magda eins
og hún er oftast nefnd, bjó á
Íslandi í níu ár og stundaði þar
háskólanám. Hún flutti aftur
til Varsjár fyrir tveimur árum
síðan og starfar nú sem umboðs-
maður pólska plötusnúðatví-
eykisins East Clubbers. Hún
segist hafa fundið fyrir miklum
áhuga á íslenskri hönnun þegar
hún flutti aftur til Varsjár og
segir það hafa verið kveikjuna
að blogginu.
„Ég á eitthvað af íslenskri
hönnun og er oft spurð hvar ég
hafi keypt fötin þannig að mér
datt í hug að það væri sniðugt að
fjalla um íslenska hönnun og list
á pólsku og kynna hana þannig
fyrir samlöndum mínum. Síðan
hefur ekki verið uppi lengi en
viðtökurnar hafa verið ágætar
og ég hef fengið margar fyrir-
spurnir í kjölfarið.“
Innt eftir því hvort hún haldi
enn tengslum við Ísland og vini
sína þar svarar Magda játandi.
„Já, ég sakna Íslands og það er
kannski hluti ástæðunnar fyrir
því að ég held úti blogginu; svo
ég missi ekki tengslin.“ - sm
PERSÓNAN
Nafn bloggsins er
orðaleikur og vísar í
romm, ætlunin er að
fólk drekki í sig íslenska
hönnun og list.
?
Ásrún Magnúsdóttir
Aldur: 23 ára
Starf: Ég vinn sem
dansari og danshöf-
undur.
Maki: Ég á kærasta
sem heitir Atli
Bollason.
Foreldrar: Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir frönskukennari
og Magnús Hauksson verkfræðing-
ur, bæði eru þau algjörir snillar.
Fjölskylda: Ég á tvö yngri systkini,
Guðmund og Aðalheiði.
Búseta: Bý í 101.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Ásrún gerðist dansandi pitsusendill á
Dominos síðastliðinn miðvikudag í tilefni
af Reykjavik Dance Festival.
Damo Suzuki, fyrrverandi söngv-
ari þýsku hljómsveitarinnar Can,
spilar á Alþjóðlegri kvikmyndahá-
tíð í Reykjavík, RIFF, 3. október.
„Mig hefur lengi langað að koma
til Íslands. Það er margt áhuga-
vert þar, eins og vetnisstrætóar,
eldfjöll, heitir hverir og óspillt
náttúra. Landið er líka lengst frá
megin landi Evrópu,“ segir Suzuki,
sem er fæddur í Japan.
Hljómsveitin Can spilaði til-
raunakennt rokk, svokallað kraut-
rock. Sveitin hafði mikil áhrif á
þróun raftónlistar og hefur veitt
mörgum þekktum flytjendum inn-
blástur, þar á meðal David Bowie,
Talking Heads, Brian Eno, Pave-
ment og The Stone Roses.
Kvikmyndin sígilda Metro polis
eftir Fritz Lang verður sýnd á
RIFF-hátíðinni og undir mynd-
inni spilar Suzuki ásamt aðstoðar-
mönnum sínum, eða hljóðberum
eins og hann kallar þá. „Metro polis
er frábær mynd og á vel við í dag
þrátt fyrir að vera orðin níutíu ára
gömul. Myndin fjallar um hvernig
„kerfið“ stjórnar heiminum. Ég
vildi óska að þessi mynd fengi enn
meira vægi hjá fólki. Þá myndum
við búa í betri heimi.“
Eftir að Suzuki hætti í Can árið
1973 eftir aðeins þriggja ára veru
í sveitinni, gerðist hann vottur
Jehóva og sneri baki við tónlist-
inni. Árið 1983 hóf hann aftur að
spila og undanfarinn áratug hefur
hann starfrækt tónlistarverkefnið
Damo Suzuki´s Network. Hann
ferðast víða um heim og flytur
spunatónlist sína á alls kyns hátíð-
um með hjálp tónlistarmanna í
löndunum sem hann heimsækir.
Hugmyndina fékk hann eftir að
Íraksstríðið brast á með tilheyr-
andi sprengjuregni og skotárásum.
„Það voru mikil mótmæli víða um
heim en eins og venjulega huns-
uðu Bandaríkjamenn þau og drápu
mörg börn og fleiri almenna borg-
ara. Ofbeldi stjórnar heiminum
og þegar ég sá fréttirnar af þessu
hugsaði ég með mér að ég vildi
gera eitthvað til að sporna við
þessu ofbeldi.“
Vegna tónleikana á Íslandi hefur
Suzuki óskað eftir aðstoð tveggja
ungra og efnilegra íslenskra tón-
listarmanna, eða bassaleikara og
trommara. Áhugasamir geta sent
tölvupóst á event@riff.is. Einnig
spila með honum tveir þýskir tón-
listarmenn sem hann fékk til liðs
við sig með aðstoð þýska sendi-
ráðsins á Íslandi, sem er sam-
starfsaðili RIFF að tónleikunum.
freyr@frettabladid.is
DAMO SUZUKI: SYNGUR Á ALÞJÓÐLEGRI KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Fyrrum söngvari Can vill
spila með Íslendingum
TIL ÍSLANDS Damo Suzuki, fyrrum söngvari Can, er á leiðinni til Íslands í fyrsta sinn.
NORDICPHOTOS/GETTY
Can er uppáhaldshljómsveit
Guðmundar Inga Markússonar úr
rafhljómsveitinni Reptilicus. „Þetta
er alveg frábært. Maður verður að
reyna að komast á þennan viðburð,“
segir hann um tónleika Damo
Suzuki á RIFF-hátíðinni. Reptilicus
sýnir einmitt stuttmynd á sömu
hátíð. Guðmundur Ingi býst ekki
við því að bjóða sig fram til að spila
með Suzuki. „Ég vildi að ég væri
svona liðtækur til að djamma á sviði, en ég held ekki.“
Hann segir að Can hafi haft mótandi áhrif á Reptilicus
þegar sveitin var stofnuð 1988. „Þetta með að halda
tónleika þar sem þú mættir og spilaðir af fingrum fram
með ákveðnum tækjum sem þú safnaðir saman var
mjög innblásið af Can,“ segir hann. „Þetta er tónlistar-
mannahljómsveit. Almenningur þekkir ekki mikið til
hennar en þetta er hljómsveit sem er hátt skrifuð hjá
öðrum músíköntum. Hún hefur haft miklu meiri áhrif en
maður gerir sér grein fyrir.“
Guðmundur Ingi og Jóhann Eiríksson, félagi hans úr
Reptilicus, hittu Holger Czukay bassaleikara Can í Köln
árið 1998. „Við vorum að spila í Bonn og Köln er rétt við
hliðina. Við eyddum nótt með Holgar Czukay og konunni
hans en hann vakti þá á nóttunni og svaf á daginn.“
EYDDU NÓTT MEÐ BASSALEIKARA CAN Í KÖLN
Kynnir íslenska list fyrir Pólverjum
„Þetta gekk ótrúlega vel. Það var rosa-
lega gaman að fá að syngja þetta lag og
leyfa fólki að heyra það,“ segir Þórunn
Erna Clausen.
Óútgefið lag Sjonna Brink, Days Gone
By, var frumflutt á minningartónleikum
um hann sem voru haldnir í Borgarleik-
húsinu á afmælisdegi hans, 29. ágúst.
Þá hefði Sjonni, sem var eiginmaður
Þórunnar Ernu, orðið 38 ára en hann lést
í janúar í fyrra.
„Röddin hans er með í prufuupptöku
af laginu og við höfðum það þannig á
tónleikunum líka. Þetta var mjög sérstök
stund fyrir mig,“ segir Þórunn Erna,
sem samdi sjálf textann en notaði einnig
þau orð sem heyrðust skýrt í prufuupp-
töku Sjonna.
Með Þórunni fluttu Vignir Snær Vig-
fússon, Pálmi Sigurhjartarson og aðrir
fyrrum samstarfsmenn Sjonna lagið á
tónleikunum. „Mér finnst þetta frábært
lag eftir Sjonna. Það er algjör synd að
hann var ekki búinn að klára textann og
syngja það alveg sjálfur en svona er lífið.
Við kláruðum þetta fyrir hann og gerðum
okkar besta.“ Til stendur að gefa lagið út
seinni hlutann í september og stjórnar
Vignir Snær upptökunum.
Aðspurð segist Þórunn Erna vera
mjög ánægð með minningartónleikana.
„Sjonni var svo frábær tónlistarmaður
og lagahöfundur og ég veit ekki hvort
fólk áttar sig á því fyrr en það sér þetta á
einu kvöldi hversu mikið magn af góðum
lögum hann átti,“ segir hún. „Það voru
fimmtán söngvarar sem komu fram og
það voru allir að blómstra í öllum lögum.
Það var mikil hjartahlýja í salnum, á
sviðinu og baksviðs og þetta var bara ein-
stakt. Það voru einhverjir töfrar í loft-
inu.“ - fb
Frumflutti óútgefið lag Sjonna
FRUMFLUTTI LAG SJONNA
Þórunn Erna Clausen frum-
flutti lag Sjonna Brink, Days
Gone By. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BLOGGAR UM ÍSLENSKA HÖNNUN Magdalena
Dybka bloggar um íslenska list og hönnun og er
ætlunin að kynna hana fyrir pólskum lesendum.
Farðu skynsamlega
með þitt Fé!
Fékort er nýtt fyrirframgreitt greiðslukort, sem
sameinar bestu kosti þess að nota reiðufé og kredit-
kort. Nýja MasterCard Fékort auðveldar þér að taka
fjármálin fastari tökum og færir þér um leið ærleg
afsláttarkjör hjá fjölda áhugaverðra fyrirtækja.
Það er óþarfi að vera kindarlegur. Sæktu um
Fékort á www.kreditkort.is.