Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 8
7. september 2012 FÖSTUDAGUR8 NOREGUR Metfjöldi Norðmanna ferðast nú yfir til Svíþjóðar til að kaupa inn á lægra verði. Þetta sýna nýjar tölur norsku hagstofunnar. Norðmenn hafa undanfarið ár eytt tæpum tólf milljörðum sænskra króna, eða 216 milljörðum íslenskra króna, í sænskum verslunum og er nú svo komið að fimm prósent allra innkaupa Norðmanna eru gerð í Sví- þjóð. Dagsferðum frá Noregi til Sví- þjóðar fjölgaði um fjögur prósent undanfarið ár. „Verðmunurinn milli Noregs og Svíþjóðar á vinsælum vörum eins og áfengi, tóbaki, súkkulaði og öðru sælgæti er hættulega mikill,“ segir Thomas Angell hjá samtökum versl- unar og þjónustu í Noregi. Hann hvatti stjórnvöld til þess að hækka ekki skatta á þessum vörum í næstu fjárlögum. Þá segir hann viðskipti yfir landa- mærin hafa slæm áhrif í landinu. „Þetta leiðir til uppsagna í verslun- argeiranum. Því miður bendir allt til þess að viðskipti yfir landamær- in muni halda áfram að blómstra á meðan fólk getur sparað mikið á því að versla í Svíþjóð. Stjórnmálamenn þurfa að taka þessi viðskipti alvar- lega.“ - þeb KJÖRKASSINN PAULINE MAROIS Leidd af sviði í lög- reglufylgd. NORDICPHOTOS/AFP KANADA, AP Byssumaður klædd- ur bláum slopp varpaði skugga á sigurfagnað aðskilnaðarsinna í Quebec í fyrrakvöld. Hann tók upp byssu sína, myrti einn og særði annan þegar Pauline Marois, nýkjörinn forsætis- ráðherra í Quebec, var að halda sigurræðu sína á kosningavöku Flokks Quebec-búa. Flokkurinn hlaut tæplega 31 prósent atkvæða í þingkosn- ingum á þriðjudag, sem tryggði honum 54 þingsæti. Frjálslyndi flokkurinn, sem farið hefur með stjórn í fylkinu, hlaut einnig um það bil 31 prósent en aðeins fimmtíu þingsæti. Ólíklegt þykir að sigurvegar- arnir muni fylgja eftir því kosn- ingaloforði sínu að stofnað verði sjálfstætt ríki í Quebec, enda hafa þeir ekki til þess þingmeiri- hluta. - gb Aðskilnaðarsinnar unnu sigur: Skugga varpað á sigurfagnað Hamingjuóskir frá bæjarráði Bæjarráð Akureyrar hefur óskað kvennaliði Þórs/KA í knattspyrnu innilega til hamingju með Íslands- meistaratitil. „Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í kvennaknattspyrnu í meistaraflokki og kemur hann á sjálfu 150. afmælisári Akureyrarkaupstaðar.“ AKUREYRI Norðmenn flykkjast sem aldrei fyrr til Svíþjóðar til að gera ódýrari innkaup: Kaupa fyrir milljarða í Svíþjóð ÓSLÓ Norðmenn fara í auknum mæli yfir til Svíþjóðar til að sinna innkaupum. VIÐSKIPTI Um 127 prósentum meira seldist af ferskri ýsu frá Íslandi til Frakklands fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Tæpum 50 prósentum meira seld- ist nú af þorski en í fyrra. Frakkar kaupa sem fyrr mest af ferskum þorski, um helmingi meira en Bretar, sem kaupa næst- mest. Bretar kaupa þó mest af ferskri ýsu. Útflutningsverðmæti á þorsk- inum nam 12,4 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og 3,4 milljörðum á ýsu. - þeb Aukning í sölu þorsks og ýsu: Frakkar kaupa meira af fiski STJÓRNSÝSLA Sú ákvörðun Guð- bjarts Hannessonar, velferðar- ráðherra, að hækka laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, hefur vakið hörð viðbrögð meðal fulltrúa opinberra launamanna. Formaður BSRB segist gáttað- ur á ákvörðuninni og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga segir að sér sé misboðið. Greint var frá því í hádegis- fréttum Ríkisútvarpsins í gær að Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra hefði í síðasta mán- uði hækkað mánaðarlaun Björns um 450 þúsund krónur í 2,3 millj- ónir á mánuði. Þá var haft eftir Guðbjarti í fréttinni að Birni hefði á dögun- um verið boðin staða forstjóra stórs spítala í Svíþjóð og að í því tilboði hefði falist veruleg launa- hækkun. Mun Björn hafa látið yfirmenn sína vita af tilboðinu sem hann íhugaði alvarlega. Brást þá ráðherra við á fyrrgreindan hátt; hækkaði laun Björns. Loks sagði Guðbjartur að hann hefði tekið ákvörðunina einn og bæri á henni pólitíska ábyrgð. „Ég er alveg gáttuð á þessum gjörningi. Við erum með kjara- ráð þar sem launakjör forstöðu- manna ríkisstofnana eru ákvörð- uð. Í ljósi þess er dálítið ótrúlegt að ráðherra skuli taka einhliða ákvörðun um breytingu á launa- kjörum í þessu tilfelli. Ekki síst þar sem inni á Landspítala eru flestir starfsmenn mjög hæfir í starfi og nánast ómissandi,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, um ákvörðun Guðbjarts. Elín Björg bendir þar að auki á að starfshlutfall flestra opin- berra starfsmanna hafi verið skert og laun þeirra lækkuð á síð- ustu árum. Þær breytingar hafi ekki verið leiðréttar hjá flestum ríkisstarfsmönnum þrátt fyrir að kjararáð hafi ákveðið að sam- bærilegar skerðingar skyldu ganga til baka hjá þingmönnum, ráðherrum og forstöðumönnum ríkisstofnana. Í ljósi þessa komi ákvörðun ráðherra nú aftan að sér. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formað- ur Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag að hjúkrun- arfræðingum sé misboðið vegna ákvörðunarinnar sem sé tekin á sama tíma og skorið sé gegndar- laust niður í þjónustu við sjúk- linga. Þá segir hún enn fremur í greininni að svo mikil eftirspurn sé eftir hjúkrunarfræðingum í Noregi að allir íslenskir hjúkr- unarfræðingar gætu fengið þar starf á betri launum en bjóðast á Íslandi. magnusl@frettabladid.is Launahækkun forstjóra LSH vekur hörð viðbrögð Velferðarráðherra ákvað nýverið að hækka laun forstjóra Landspítalans um ríflega fimmtung án samráðs við kjararáð. Þannig var brugðist við álitlegu starfstilboði sem forstjórinn hafði til alvarlegrar íhugunar. GUÐBJARTUR HANNESSON BJÖRN ZOËGA ELÍN BJÖRG JÓNSDÓTTIR ELSA B. FRIÐFINNSDÓTTIR LANDSPÍTALINN Björn Zoëga var ráðinn forstjóri Landspítalans í september 2010. Hann hafði þá gegnt starfinu í forföllum Huldu Gunnlaugsdóttur, forvera hans, í tæpt eitt ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ? 1. Um hversu mörg prósent jókst sala á íslensku smjöri í ágúst sé miðað við sama tíma í fyrra? 2. Hvað heitir forseti Egyptalands? 3. Hver leikstýrir kvikmyndinni Ávaxtakörfunni? SVÖR: 1. Um 20% 2. Mohammed Morsi 3. Sævar Guðmundsson Ég er alveg gáttuð á þessum gjörningi. Við erum með kjararáð þar sem launakjör forstöðumanna ríkisstofnana eru ákvörðuð. ELÍN BJÖRG JÓNSDÓTTIR FORMAÐUR BSRB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.