Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 8
11. október 2012 FIMMTUDAGUR8
Rannsóknarskýrsla um Orkuveitu Reykjavíkur
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
Birgir Þór
Harðarson
birgirh@frettabladid.is
Úttektarnefnd um Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) segir slæma
stjórnarhætti hafa einkennt
rekstur OR á árunum 2002 til 2010.
Pólitískar deilur innan stjórnar OR
hafi skaðað fyrirtækið.
Miklar fjárfestingar og fjárfrekar fram-
kvæmdir á skömmum tíma, háar arð-
greiðslur til eigenda og tregða þeirra
til að hækka gjaldskrár í samræmi við
verðlagsþróun og gríðarlegt gengistap
eru ástæður fjárhagserfiðleika Orku-
veitu Reykjavíkur, að mati úttektar-
nefndarinnar.
Margrét Pétursdóttir veitti nefnd-
inni formennsku en auk Margrétar sátu
Ása Ólafsdóttir, lögfræðingur og lektor
við lagadeild Háskóla Íslands og Ómar
H. Kristmundsson, prófessor við stjórn-
málafræðideild Háskóla Íslands, í nefnd-
inni. Gestur Páll Reynisson stjórnsýslu-
fræðingur var starfsmaður nefndarinnar.
„Það má segja að þetta sé einhvers konar
vasaútgáfa af íslensku efnahagskerfi,“
segir Ása um skýrsluna sem kynnt var í
gær. „Við erum að sjá það sama og í rann-
sóknarskýrslunni: Það er andvaraleysi sem
leiðir til þessarar stöðu sem fyrirtækið er
í núna.“
Úttektartímabilið er frá ársbyrjun 2002
til ársloka 2010. Í skýrslunni fellur þungur
dómur á stjórnarhætti OR á tímabilinu sem
kannað var sérstaklega. Vegna pólitískra
átaka innan stjórnar fyrirtækisins veitti
stjórnin forstjóra og öðrum stjórnendur
OR ekki nægt aðhald og vanrækti eftir-
litshlutverk sitt gagnvart stjórnendum.
Því hafði forstjóri fyrirtækisins stefnu-
mótandi hlutverk innan OR.
Nefndin var skipuð þann 23. júní
í fyrra og átti skýrslan upphaflega
að koma út 1. mars síðastliðinn en
seinkaði vegna umfangsins. „Þetta
var bara svo mikil vinna,“ segir
Margrét Pétursdóttir, formaður
nefndarinnar. Spurð hvort vinnan
hafi verið yfirgripsmeiri en áætlað
var segir hún að svo hafi verið.
Ritun skýrslunnar lauk í júlí en
síðan hefur staðið yfir frágangur
af ýmsum toga.
Rekstrarafkoma af grunnrekstri OR
Rekstur fjarskiptastarfsemi OR
Arðgreiðslur til eigenda OR
Reykjavíkurborg 93,5%
Akranes 5,5%
Borgarbyggð 0,9%
Kostnaður við byggingu
nýrra höfuðstöðva
Uppsafnað
gengistap
Tap á fjárfestingum
í hlutabréfum
Fjárfestingar í
Gagnaveitunni
*Á meðalverðlagi ársins 2010.Allar tölur í milljörðum króna.
Skuldir OR jukuist úr 17,7 milljörðum króna í upphafi árs
2002 í 224,4 milljarða króna í lok árs 2010. Þær hækkuðu
því um 206,6 milljarða króna á tímabilinu.
Skuldir Orkuveitunnar ruku upp
Slæmir stjórnarhættir sliguðu OR
Rafmagn 52%
Heitt vatn 28%
Kalt vatn 10%
Fráveita 7% Gagnaveita 3%
38,4
0,372
16,3
31. desember 2010224,4
milljarðar króna
1. jan
úar 2
002
17,7
millja
rðar k
róna
100,9
8,3 10,7
8,5
Eigendur OR greiddu sér út háar arðgreiðslur og ábyrgðargjald og tóku eignarhlut í Landsvirkjun út úr fyrirtækinu á tíma-
bilinu. Allt þetta veikti eiginfjárstöðu OR mikið. Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið grundvöllur
fyrir þorra þessarra aðgerða.
Í skýrslunni segir að frá árinu 2002 til ársins 2010 hafi eigendum OR verið greiddar 16,4 milljarðar króna í arð.
Til viðbótar var samþykkt á árinu 2005 „að greiða eigendum svokallað ábyrgðargjald vegna ábyrgðar eigenda á
skuldbindingum fyrirtækisins[...] samtals 2.005 millj.kr.“. Nefndin telur arðgreiðslur hafa í reynd valdið því að
erlendar lántökur hafi þurft að vera hærri og því megi „velta fyrir sér hvort eigendur hafi verið meðvitaðir, eða
þeim verið kynnt, sú áhætta sem úttektir þeirra sköpuðu fyrirtækinu, þar sem færa má rök fyrir því að þær
hafi í reynd verið fjármagnaðar með lánum í erlendri mynt“.
Úttektarnefndin fjallar sérstaklega um að stjórn OR hafi haldið áfram að greiða sér út arð á árunum eftir
hrun. Í skýrslunni segir að „árið 2009, þegar óráðstafað eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur er neikvætt, var allt
að einu tekin ákvörðun um arðgreiðslur út úr fyrirtækinu. Einnig sýnir samanburður á úttektum
eigenda við arðsemi eigin fjár, skort á samhengi greiðslnanna og ávöxtunar eigin fjár.“
Samtals greiddi Orkuveitan 1,6 milljarða króna í arð á árunum 2009 og 2010.
Þá gagnrýndu margir viðmælendur nefndarinnar að eignarhluta í Landsvirkjun
hefði ekki verið haldið í OR, í stað þess að flytjast yfir til Reykja-
víkurborgar. Borgi seldi hann til ríkisins árið 2007 fyrir
tugi milljarða.
Arðgreiðslur: Fjármagnaðar með erlendum lánum
Árið 1999 var ákveðið að byggja nýjar höfuðstöðvar OR við
Bæjarháls í Reykjavík. Byggingin átti upphaflega að kosta
um tvo milljarða króna. Boðað var til sérstaks blaðamanna-
fundar vegna mikillar umræðu um kostnað við byggingu
hússins í janúar 2005. Þar upplýstu Guðmundur Þórodds-
son og Alfreð Þorsteinsson, forstjóri og stjórnarformaður
OR á þeim tíma, að heildarkostnaður hefði verið um 4,2
milljarðar króna. Alfreð sagði á fundinum að kostnaðurinn
„væri ekki nema rétt rúmlega það sem gerðist í vandaðri
grunnskólabyggingu í Reykjavík“.
Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að þessar
tölur séu fjarri lagi. Kostnaður við byggingu nýrra höfuð-
stöðva OR var 8,5 milljarðar króna á verðlagi ársins 2010,
5,2 milljörðum króna umfram söluverð fasteigna sem áður
hýstu höfuðstöðvar fyrirrennara hennar. Í skýrslunni segir
að „af framangreindum upplýsingum er ljóst að bygging
höfuðstöðva Orku veitu Reykjavíkur fór fram úr þeim áætl-
unum sem gerðar voru um byggingarkostnað, hvort heldur
miðað er við upphaflega áætlun, síðari áætlanir eða þær
upplýsingar sem kynntar voru fjölmiðlum í janúar 2005 um
endanlegan kostnað byggingarinnar“. Auk þess vakti það
athygli nefndarinnar að stjórn OR virtist sama sem ekkert
hafa fjallað um byggingu höfuðstöðvanna. Í dag nýtir OR
ekki nema hluta af höfuðstöðvunum og hefur hug á að
selja þær að hluta eða öllu leyti.
Nýjar höfuðstöðvar:
Kostuðu 8,5 milljarða króna
Stjórn OR hefur verið vettvangur pólitískra átaka sem átt hafa sér
stað á undanförnum árum milli meiri- og minnihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur. Vegna þess hafi ekki reynst gerlegt að ná samstöðu um
mikilvæg mál sem snerust um mikla fjárhagslega hagsmuni. Í skýrsl-
unni segir að stjórnmálamennirnir sem sátu í stjórn OR virtust „hafa
flutt með sér þá umræðuhefð sem tíðkast í borgarstjórn og borgar-
ráðum, og myndað skýran minnihluta og meirihluta stjórnar, sem
er óhefðbundið í rekstri fyrirtækja.[…] Þessir starfshættir stjórnar
veiktu stöðu hennar gagnvart forstjóra og gáfu honum og öðrum
stjórnendum mikið svigrúm til sjálfstæðra stefnumótandi ákvarðana.
Eftirlitshlutverk stjórnar var takmarkað og oft í reynd aðeins formlegt
og þá eftir á. Sum viðamikil mál voru borin undir stjórn með afar
skömmum fyrirvara […] Þá eru dæmi um að stjórnendur fyrirtækisins
hafi gert samninga svo sem um uppkaup á veitum án þess að leggja
þá fyrir stjórn eða eigendur til staðfestingar“.
Af þessum ástæðum telur úttektarnefndin að veigamikil rök
hnígi að því að stjórn OR verði héðan af einvörðungu skipuð fólki
sem hefur þekkingu og reynslu á efnissviðum fyrirtækisins og af
rekstri almennt, ekki stjórnmálamönnum sem sitja í sveitarstjórnum
eigenda fyrirtækisins.
Stjórnendur OR fá líka sinn skerf af gagnrýni í skýrslunni. Þar
segir að brotalamir megi greina í ákvörðunartöku þeirra á úttektar-
tímabilinu. „Stefnumótandi ákvarðanir virðast á stundum hafa verið
illa undirbúnar og mikils hraða gætt við ákvarðanatöku.“
Stjórnarhættir: Fluttu pólitík inn í fyrirtækið
Fjárfestingar í hlutabréfum:
ýmis ævintýri
OR fjárfesti í margs konar dótturfyrirtækjum, sem
mörg hver voru í óskyldum rekstri, og hlutabréfum í
öðrum fyrirtækjum á því tímabili sem úttektin nær til.
Á meðal þeirra er Lína.Net hf., Gagnaveita Reykjavíkur,
Reykjavík Energy Invest (REI) útrásararmur OR, Farice
og Tetra-Ísland.
Samtals nam uppsafnað tap vegna þessara fjár-
festinga 8,3 milljörðum króna. Meginhluti þeirrar
fjárhæðar er vegna viðskipta með hlutabréf í Hitaveitu
Suðurnesja, sem síðar var skipt upp í HS Orku og Veitur.
Alls hafði aðkoma OR að þeim viðskiptum neikvæð áhrif
á rekstur fyrirtækisins upp á 2,5 milljarða króna. Tap vegna
fjarskiptafyrirtækja var líka umtalsvert. Þannig kostuðu félögin
sem síðar runnu saman í Tetra-Ísland OR um 750 milljónir króna,
Lína.Net skilaði tapi upp á 1,2 milljarða króna og 3,3 milljarðar
króna töpuðust á ævintýrinu í kringum Gagnaveitu Reykjavíkur. Þá
kostaði aðkoma OR að Farice fyrirtækið um hálfan milljarð króna
og REI-tilraunin skilaði 1,8 milljarða króna neikvæðri rekstrarniður-
stöðu. Sumar fjárfestingar OR á tímabilinu skiluðu þó arði. Sölu-
hagnaður vegna hlutar fyrirtækisins í Jarðborunum var til að mynda
1,3 milljarðar króna.
Á tímabilinu sem úttektarnefndin skoðaði fjárfesti OR fyrir 210,4
milljarða króna. Fjárfestingarnar skiluðu hins vegar ekki nægjanlegri
arðsemi og hafa hvorki staðið undir kostnaði við fjármagn né upp-
fyllt arðsemismarkmið sem sett voru af stjórn. Í skýrslunni segir:
„Meðalarðsemi eigna á tímabilinu er 3% án áhrifa tekjuskatts og
fjármagnskostnaðar. Huga þarf að því hvaða þýðingu það hafi til
lengri tíma ef arðsemi eigna fyrirtækisins stendur ekki undir fjár-
magnskostnaði.“
Þá varð misbrestur við áhættustýringu innan OR. Að áliti úttektar-
nefndarinnar má rekja það til nokkurra samverkandi ástæðna, en
sérstaka athygli hennar vakti að stjórnendur tóku ákvörðun, sem
hluta af skuldastýringu fyrirtækisins, um að verja fyrirtækið ekki fyrir
gengisáhættu án þess að fyrir þeirri „ákvörðun lægi ítarleg greining
á mögulegum áhrifum þessa til lengri tíma litið. Þar með var tekin
áhætta, sem að mati úttektarnefndarinnar eigi ekki að viðgangast
í fyrirtæki sem er í almannaeigu [...] Á árunum 2005-2007 voru
aðstæður til kaupa á áhættuvörnum með besta móti, en fyrirtækið
varði einungis áhættu milli erlendra mynta á efnahagsreikningi
félagsins. Gengisáhætta tengd íslensku krónunni var ekki varin,
heldur var tekin staða með íslensku krónunni. Uppsafnað gengistap
fyrirtækisins á tímabilinu nemur 83.698 millj.kr. á verðlagi hvers árs
sem gerir 100.866 millj.kr. á meðalverðlagi ársins 2010. Fall íslensku
krónunnar er því án efa stærsta einstaka ástæðan fyrir fjárhagsstöðu
fyrirtækisins [...] Meginástæða hækkunar skulda Orkuveitunnar er þó
eftir sem áður skuldsetning í erlendum myntum á móti tekjum sem
eru fyrst og fremst í íslenskum krónum“.
Fjármögnun: Tóku stöðu með krónunni