Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 72
11. október 2012 FIMMTUDAGUR52
HANDBOLTI Logi Geirsson gaf það út
fyrir rúmu ári að hann væri hætt-
ur handknattleiksiðkun, aðeins 28
ára að aldri. Axlarmeiðsli neyddu
hann til þess að hætta. Á þrítugs-
afmælisdaginn sinn, sem var í
gær, gaf Logi það aftur á móti út
að hann ætlaði að reyna einu sinni
enn.
„Ég ætla að spila minn fyrsta
leik með FH í vetur gegn Aftur-
eldingu þann 25. október. Þá verð
ég klár í slaginn,“ sagði Logi
ákveðinn.
Eftir að hafa reynt ýmislegt til
þess að ná sér góðum af meiðsl-
unum fór hann í ferð til Englands
fyrir Ólympíuleikana í sumar og
sú ferð breytti miklu.
„Þar hitti ég axlarsérfræðing
sem á að vera mjög góður. Eftir
að hafa sent honum mína sögu var
hann til í að hitta mig. Hann hafði
meðhöndlað kastara í krikket sem
var með svipuð einkenni og ég.
Hann vildi því fá að hitta mig.
Meðhöndlunin þar var önnur og
smám saman hef ég verið að hress-
ast,“ sagði stórskyttan kát sem
hefur jafnt og þétt verið að bæta
sig.
„Ég hef verið að mæta einstaka
sinnum á æfingar með FH síðan
í sumar og alltaf orðið betri. Nú
er ég allt í einu orðinn bestur á
æfingum hjá liðinu,“ sagði Logi
kokhraustur, en skortur á sjálfs-
trausti hefur aldrei verið einn af
hans veikleikum.
„Þetta er tíminn til þess að prófa
á nýjan leik. Ég spila ekki hand-
bolta þegar ég verð orðinn fimm-
tugur. Það var ekki auðvelt að gefa
handboltann upp á bátinn enda er
handbolti það sem ég er bestur í.
Ég vil ekkert meira en að spila
handbolta sem mér finnst svo
skemmtilegt að gera. Þetta hefur
verið stigvaxandi hjá mér og því
um að gera að láta á þetta reyna.“
Þó svo engin trygging sé fyrir
því hvort Logi geti verið með lið-
inu í allan vetur þá hefur Logi
strax sett sér háleit markmið.
„Ég hef alltaf gert það og það
mun seint breytast. Ég er því að
fara að vera með til þess að vinna
alla titla. Ég vil hjálpa FH að ná
titlinum aftur í Kaplakrika. Þar
á Íslandsbikarinn heima,“ sagði
Logi, sem viðurkennir að ef þetta
gangi ekki upp núna þá sé handbolt-
inn búið spil. „Þetta er mín loka-
tilraun. Ég hef verið að bíða eftir
þessu tækifæri og því stekk ég á
þetta núna. Ég mun aldrei snerta
handbolta aftur um ævina ef þetta
gengur ekki upp. Ég get lofað því.
Áætlunin er því að koma rólega inn
í þetta núna og sjá hvernig fer hjá
mér. Ég er samt mættur og ætla
mér stóra hluti eins og alltaf.“
Þó svo að Logi hafi ekki spilað
handbolta lengi hefur hann ekki
slegið slöku við í ræktinni og er í
frábæru líkamlegu formi.
„Ég er tíu kílóum léttari en
þegar ég var atvinnumaður. Ég er
svínfljótur fyrir vikið. Það er eitt-
hvað sem ég verð að nýta mér,“
sagði Logi Geirsson, en endurkoma
hans mun klárlega lífga mikið upp
á N1-deildina enda var Logi einn
litríkasti karakterinn í íslensku
íþróttalífi. henry@frettabladid.is
Það var ekki auðvelt
að gefa handboltann
upp á bátinn enda er hand-
bolti það sem ég er bestur í.
LOGI GEIRSSON
HANDKNATTLEIKSMAÐUR
-30.000 -50.000-20.000
STÓRSKEMMTILEG
SPENNA
Þriðja safnabókin er komin út!
Fyrst kom FORNGRIPASAFNIÐ, næst
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ og nú er komin
þriðja sagan um Rúnar og krakkana
í Ásgarði, LISTASAFNIÐ.
Sigrún Eldjárn
kann að skrifa
bækur fyrir börn.
BB / Morgunblaðið
(um Náttúrugripasa
fnið)
Þetta er mín lokatilraun
„Ég mun aldrei snerta handbolta aftur um ævina ef þetta gengur ekki upp,“
segir handknattleikskappinn Logi Geirsson, sem hefur ákveðið að rífa skóna
niður úr hillunni. Hann spilar sinn fyrsta leik með FH á ný í lok mánaðarins.
GEFST EKKI UPP Hinn þrítugi Logi viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt að leggja
skóna á hilluna. Hann mun því reyna einu sinni enn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bestur áður en hann byrjaði aftur
„Hann var bestur á æfingum áður en hann tók fyrstu æfinguna
að eigin mati,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, og hló
dátt spurður um ummæli Loga að hann væri þegar orðinn
besti maðurinn á æfingum liðsins.
„Að öllu gríni slepptu hefur hann staðið sig mjög vel og
gott að fá hann inn í hópinn. Okkur vantar reyndari menn
og Logi hefur nóg af reynslu,“ sagði Einar, vonast til þess
að Logi geti hjálpað liðinu í baráttunni.
„Við höfum unnið í þessu síðan í maí og honum
líður alltaf betur. Vonandi getur hann því farið að
hjálpa okkur. Þó svo að hann sé ekki að hamra á
markið getur hann hjálpað okkur mikið. Ef öxlin dettur
svo í almennilegt stand líst mér ansi vel á hann.“
HJÓLREIÐAR Lyfjaeftirlits samtök
Bandaríkjanna sendu í gær
frá sér risavaxna skýrslu um
Lance Armstrong hjólreiða-
kappa og keppnislið hans.
Armstrong fagnaði sigri
í Tour de France sjö sinn-
um á ferlinum en hann var
dæmdur í ævilangt bann
í ágúst eftir að hann
neitaði að svara
fyrir kærur eftir-
litsins um lyfja-
misferli hans.
Í skýrslunni, sem er meira
en þúsund blaðsíður, er sagt frá
vitnis burði 26 manna, þar af
fimmtán hjólreiðakappa. Full-
yrt er að skýrslan sanni með
öllu að US Postal Service-
hjólreiðaliðið (USPS) hafi
starfrækt umfangsmesta,
faglegasta og árangurs-
ríkasta lyfjasvindl
íþróttasögunnar, þar
sem Armstrong hafi
verið í aðalhlutverki.
- esá
Mesta lyfjamisnotkunarsamsæri sögunnar:
„Armstrong dópaði“