Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 11. október 2012 49
Jack Osbourne giftist unnustu
sinni og barnsmóður, Lisu
Stelly, á Hawaii á sunnudaginn.
Fyrrverandi raunveruleika-
stjarnan og sonur rokkarans
Ozzy Osbourne vildi ekki kann-
ast við brúðkaupið á samskipta-
vefnum Twitter en talsmaður
Osbourne staðfesti fregnirnar við
US Weekly á mánudaginn.
Árið hefur verið viðburðaríkt
hjá Osbourne, sem eignaðist sitt
fyrsta barn í apríl. Hann var
síðan greindur með taugasjúk-
dóminn MS eftir að hann fór að
missa sjón á öðru auganu í byrjun
sumars. Nú er hann giftur maður,
en athöfnin fór fram á sextugs-
afmæli móður hans, Sharon
Osbourne.
Giftist á
Hawaii
GIFTUR MAÐUR Jack Osbourne giftist
unnustu sinni og barnsmóður Lisu Stelly
á Hawaii um helgina. NORDICPHOTO/GETTY
Rokkhundarnir í The Rolling
Stones hafa bókað tónleika í
London og í New York á næsta ári
í tilefni af fimmtíu ára afmæli
hljómsveitarinnar.
„Ég má ekki tala um þetta
núna. Þeir eru búnir að banna
mér það,“ sagði gítarleikarinn
Keith Richards við tímaritið Q.
Richards og félagar hafa verið
að æfa að undanförnu í fyrsta
sinn síðan 2007 í tilefni afmælis-
ins. Bill Wyman, sem spilaði með
Stones frá 1962 til 1993, hitti
fyrrverandi félaga sína á fyrstu
æfingunum og mun hugsanlega
taka þátt í hátíðarhöldunum.
Tónleikar á
næsta ári
AFMÆLI The Rolling Stones fagnar fimmtugsafmæli sínu á næsta ári.
NORDICPHOTOS/GETTY
Paul McCartney hefur hug á að
snúa aftur í hljóðver með upp-
tökustjóranum Jeff Lynne úr ELO
til að leggja lokahönd á vinnu við
óklárað lag eftir John Lennon.
Lynne og eftirlifandi Bítlar unnu
saman að laginu árið 1995 ásamt
tveimur öðrum lögum, Free as a
Bird og Real Love, en aðeins þau
tvö síðarnefndu voru kláruð og
komu út á Beatles Anthology-plöt-
unum.
Þetta kemur fram í nýrri
heimildar mynd um Lynne sem
nefnist Mr. Blue Sky. Lagið sem
um ræðir gengur ýmist undir
nöfnunum Missing You, Now and
Then og I Don‘t Want To Lose
You og var samið 1977 eða 1978.
Klára lagið
AFTUR Jeff Lynne er á leið í stúdíó.
Ný sólóplata Friðriks Ómars, Out-
side the Ring, kemur út 1. nóvem-
ber. Þetta er fyrsta sólóplata Frið-
riks með frumsömdu efni í fjórtán
ár. Hún inniheldur tíu ný lög og
lagahöfundar eru Friðrik Ómar,
Stefán Örn Gunnlaugsson og Karl
O. Olgeirsson. Textahöfundar eru
Friðrik Ómar, Peter Fenner, Alma
Goodman og Steinn Steinarr en
titil lag plötunnar Outside the Ring
er þýðing á ljóði skáldsins Utan
hringsins. Það er einmitt fyrsta
smáskífulag plötunnar og kemur
út í dag.
Útgáfutónleikar verða í Hofi
á Akureyri 3. nóvember og í
Norðurljósa sal Hörpu 8. nóvember.
Sú fyrsta í fjórtán ár
FRIÐRIK ÓMAR Söngvarinn gefur
út sólóplötuna Outside the Ring 1.
nóvember.
facebook.com/noisirius