Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 54
11. október 2012 FIMMTUDAGUR34
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. teikniblek, 6. ógrynni, 8. skýra
frá, 9. endir, 11. belti, 12. losti, 14.
uppskafningsháttur, 16. karlkyn, 17.
eyða, 18. þrá, 20. íþróttafélag, 21.
áhrifavald.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. stefna, 4. kassabók, 5.
andi, 7. forhlaup, 10. ætt, 13. sódi, 15.
einungis, 16. þyrping, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. túss, 6. of, 8. tjá, 9. lok,
11. ól, 12. frygð, 14. snobb, 16. kk, 17.
sóa, 18. von, 20. kr, 21. ítak.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. út, 4. sjóðbók,
5. sál, 7. forskot, 10. kyn, 13. gos, 15.
bara, 16. kví, 19. na.
Lúlli og Leifur!
Þeir eru í hinum
bekknum!
Tveir gaurar sem stytta sér
stundir með því að hlusta
á dauðarokk og raspa
handleggina með nálunum
sínum!
Ókei ...
Það segir sig sjálft
að þeir spila ekki fót-
bolta! Og þeir lykta í
leikfimi! Hvað verður
úr svona gaurum?
Ekki gott að segja ...
en ég er viss um að
þú verður alveg eins
og pabbi þinn!
Hvernig
ferðu að því
að hreyfa
þumalputtana
svona hratt?
Það er ekki
svo erfitt...
Nei, takk. Ég trúi
þér.
EitthvaÐ segir mér
aÐ þú trúir ekki á
aÐ veiÐa og sleppa.
Má ég fá
sykur í skál
með sírópi,
sykurpúðum
og súkkulaði-
sósu?
Ef þig langar
í ís þarftu
bara að biðja
um eitthvað
óhollara.
prófaðu.
Hver skaut JFK? Gekk maðurinn í alvör-unni á tunglinu? Hver stóð í raun og
veru fyrir árásunum á tvíburaturnana í
New York? Samsæriskenningar eru góð
skemmtun. Þeir eru þó fáir sem leggja trú
á þær aðrir en einstaka einfari sem hírist í
kjallaranum hjá mömmu umkringdur ofur-
hetjufígúrum og óhreinataui. Eða hvað?
ÞEIR félagar Davíð Oddsson og Björn
Bjarnason fóru mikinn í ritmiðlum um síð-
ustu helgi. Var þeim sérstaklega hugleikin
Búsáhaldabyltingin svokallaða. Flestir eru
sammála um að mótmælin sem fóru fram
á Austurvelli fyrir fjórum árum hafi verið
handahófskenndar samkomur fólks ólíkra
skoðana úr ólíkum áttum sem átti það eitt
sameiginlegt að óska þess að stjórnvöld
tækju ábyrgð á undangengnu fjármála-
hruni. En ekki Davíð og Björn. Eins
og glannalegustu samsæriskenninga-
sinnum er lagið virðast þeir sjá í
Búsáhalda byltingunni útpælt plott
pólitískra andstæðinga til valda-
ráns. „Enn hefur ekki verið upp-
lýst hverjir skipulögðu óeirðirnar
eða fjármögnuðu þær. Vísbend-
ingarnar eru þó margar og flest
ber þar að sama brunni,“ segir
Davíð í Reykjavíkurbréfi.
FJÖLMIÐLAMAÐURINN Egill
Helgason skrifaði pistil um
málið og lýsti því sem svo að
þarna væri gerð tilraun til að
endurskrifa söguna. Það er þó ekki laust við
að sá grunur læðist að manni að Egill ætli
þeim félögum of fágaðan ásetning. Eru skrif
þeirra í raun svo yfirveguð?
Á VEFNUM Evrópuvaktinni lýsir Björn
Bjarnason friðsömum mótmælunum sem
„aðför að Alþingishúsinu“. Svo virðist sem
Davíð og Björn lifi og hrærist í plotti í bók
eftir Tom Clancy þar sem samsæri leynast
í hverju horni. Þeir harðneita að horfast í
augu við nýja tíma og ríghalda í grút fúlan
kaldastríðshugsunarhátt eins og barn í
öryggisteppi. Með stjórnmálaheimspeki 20.
aldarinnar á heilanum eru þeir í álíka miklu
jarðsambandi og Neil Armstrong þegar
hann var staddur – eða ekki staddur – á
tunglinu. Ekkert af þessu skipti nokkru máli
ef ekki væri fyrir þær sakir að þessir full-
trúar liðinna tíma virðast hafa skelmistak
á hreðjum Sjálfstæðisflokksins. Formaður
flokksins þorir ekki svo mikið sem hósta
án góðfúslegs leyfis hæstvirts ritstjóra
Morgunblaðsins, en skemmst er að minn-
ast kúvendingar viðhorfs Bjarna Benedikts-
sonar til Evrópusambandsins.
ÞAÐ STYTTIST óðum í kosningar. Væni-
sjúkur vaðall Davíðs og Björns er jafngagn-
legur Sjálfstæðisflokknum og það væri
Framsókn ef Jónas frá Hriflu gengi aftur og
tæki að drita út aðsendum greinum í blöðin.
Ætlar stærsta stjórnmálaafl landsins ekkert
að fara að hrista af sér roluskapinn og losa
sig undan taki slíkra afturgangna?
Hreðjar Sjálfstæðisflokksins