Fréttablaðið - 11.10.2012, Page 54

Fréttablaðið - 11.10.2012, Page 54
11. október 2012 FIMMTUDAGUR34 BAKÞANKAR Sifjar Sigmars- dóttur ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. teikniblek, 6. ógrynni, 8. skýra frá, 9. endir, 11. belti, 12. losti, 14. uppskafningsháttur, 16. karlkyn, 17. eyða, 18. þrá, 20. íþróttafélag, 21. áhrifavald. LÓÐRÉTT 1. íþrótt, 3. stefna, 4. kassabók, 5. andi, 7. forhlaup, 10. ætt, 13. sódi, 15. einungis, 16. þyrping, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. túss, 6. of, 8. tjá, 9. lok, 11. ól, 12. frygð, 14. snobb, 16. kk, 17. sóa, 18. von, 20. kr, 21. ítak. LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. út, 4. sjóðbók, 5. sál, 7. forskot, 10. kyn, 13. gos, 15. bara, 16. kví, 19. na. Lúlli og Leifur! Þeir eru í hinum bekknum! Tveir gaurar sem stytta sér stundir með því að hlusta á dauðarokk og raspa handleggina með nálunum sínum! Ókei ... Það segir sig sjálft að þeir spila ekki fót- bolta! Og þeir lykta í leikfimi! Hvað verður úr svona gaurum? Ekki gott að segja ... en ég er viss um að þú verður alveg eins og pabbi þinn! Hvernig ferðu að því að hreyfa þumalputtana svona hratt? Það er ekki svo erfitt... Nei, takk. Ég trúi þér. EitthvaÐ segir mér aÐ þú trúir ekki á aÐ veiÐa og sleppa. Má ég fá sykur í skál með sírópi, sykurpúðum og súkkulaði- sósu? Ef þig langar í ís þarftu bara að biðja um eitthvað óhollara. prófaðu. Hver skaut JFK? Gekk maðurinn í alvör-unni á tunglinu? Hver stóð í raun og veru fyrir árásunum á tvíburaturnana í New York? Samsæriskenningar eru góð skemmtun. Þeir eru þó fáir sem leggja trú á þær aðrir en einstaka einfari sem hírist í kjallaranum hjá mömmu umkringdur ofur- hetjufígúrum og óhreinataui. Eða hvað? ÞEIR félagar Davíð Oddsson og Björn Bjarnason fóru mikinn í ritmiðlum um síð- ustu helgi. Var þeim sérstaklega hugleikin Búsáhaldabyltingin svokallaða. Flestir eru sammála um að mótmælin sem fóru fram á Austurvelli fyrir fjórum árum hafi verið handahófskenndar samkomur fólks ólíkra skoðana úr ólíkum áttum sem átti það eitt sameiginlegt að óska þess að stjórnvöld tækju ábyrgð á undangengnu fjármála- hruni. En ekki Davíð og Björn. Eins og glannalegustu samsæriskenninga- sinnum er lagið virðast þeir sjá í Búsáhalda byltingunni útpælt plott pólitískra andstæðinga til valda- ráns. „Enn hefur ekki verið upp- lýst hverjir skipulögðu óeirðirnar eða fjármögnuðu þær. Vísbend- ingarnar eru þó margar og flest ber þar að sama brunni,“ segir Davíð í Reykjavíkurbréfi. FJÖLMIÐLAMAÐURINN Egill Helgason skrifaði pistil um málið og lýsti því sem svo að þarna væri gerð tilraun til að endurskrifa söguna. Það er þó ekki laust við að sá grunur læðist að manni að Egill ætli þeim félögum of fágaðan ásetning. Eru skrif þeirra í raun svo yfirveguð? Á VEFNUM Evrópuvaktinni lýsir Björn Bjarnason friðsömum mótmælunum sem „aðför að Alþingishúsinu“. Svo virðist sem Davíð og Björn lifi og hrærist í plotti í bók eftir Tom Clancy þar sem samsæri leynast í hverju horni. Þeir harðneita að horfast í augu við nýja tíma og ríghalda í grút fúlan kaldastríðshugsunarhátt eins og barn í öryggisteppi. Með stjórnmálaheimspeki 20. aldarinnar á heilanum eru þeir í álíka miklu jarðsambandi og Neil Armstrong þegar hann var staddur – eða ekki staddur – á tunglinu. Ekkert af þessu skipti nokkru máli ef ekki væri fyrir þær sakir að þessir full- trúar liðinna tíma virðast hafa skelmistak á hreðjum Sjálfstæðisflokksins. Formaður flokksins þorir ekki svo mikið sem hósta án góðfúslegs leyfis hæstvirts ritstjóra Morgunblaðsins, en skemmst er að minn- ast kúvendingar viðhorfs Bjarna Benedikts- sonar til Evrópusambandsins. ÞAÐ STYTTIST óðum í kosningar. Væni- sjúkur vaðall Davíðs og Björns er jafngagn- legur Sjálfstæðisflokknum og það væri Framsókn ef Jónas frá Hriflu gengi aftur og tæki að drita út aðsendum greinum í blöðin. Ætlar stærsta stjórnmálaafl landsins ekkert að fara að hrista af sér roluskapinn og losa sig undan taki slíkra afturgangna? Hreðjar Sjálfstæðisflokksins

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.