Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 74
11. október 2012 FIMMTUDAGUR54 golfogveidi@frettabladid.is Það eru bara fleiri í einu að veiða og álagið á stofninn alveg jafn mikið. ELVAR ÁRNI LUND FORMAÐUR SKOTVÍS 1.610 LAXAR veiddust í Miðfjarðará í sumar. Er það ágætis veiði þegar tekið er mið af því hversu léleg laxveiðin var almennt í sumar. Í fyrra veiddust 2.364 laxar í ánni. 1.507 LAXAR komu á land í Selá í Vopnafirði í sumar. Miðað við aðrar ár og ástandið almennt í sumar er það fín veiði. Í fyrra veiddust 2.021 lax í Selá. Gæsaveiðar hafa gengið ágætlega í ár, þó misjafn- lega eftir landshlutum. Höfum misst stjórn á refa- stofninum sem hefur áhrif á rjúpuna, segir for maður Skotvís, sem gagnrýnir stofnstærðarlíkan rjúp- unnar sem notað er til að ákvarða veiði. „Það er misjafnt hvað menn segja með gæsaveiðina í ár. Sumir bera sig vel en aðrir ekki. Í heildina held ég samt að gæsaveiðin hafi verið nokkuð góð en þetta kuldaskot sem gerði í byrjun september hafði þó töluverð áhrif,“ segir Elvar Árni Lund, formaður Skotveiðifélags Íslands (Skotvís). Að sögn Elvars Árna hefur aðal- lega sést af gæs á Norðurlandi eftir kuldatíðina í september enda hafi allt hálendið þar verið þakið snjó. „Gæsin virðist hafa látið sig hverfa á stóru svæði en hefur sennilega fært sig sunnar. Ég efast um að hún sé farin af landi brott. Menn bera sig allavega vel fyrir sunnan.“ Gæsaveiðar á Íslandi standa jafn- vel út nóvember ef veðráttan er sæmileg en þá aðallega sunnan- lands. „Tilkoma kornakra fyrir sunnan hefur breytt miklu fyrir gæsaveiðimenn. Gæsirnar hafa nú meira aðgengi að ræktuðu landi og þar er meira æti að finna,“ segir Elvar Árni. Bændur hafa leigt skotveiði- mönnum tún til gæsaveiða en þó þeir geti haft ágætis tekjur af því getur gæsin verið heilmikill skað- valdur, sérstaklega á vorin. „Hún fer mjög illa með tún og er sér- staklega aðgangshörð á kornökr- um. Álftir og gæsir eru skelfileg samsetning því álftin treður túnin niður og svo kemur gæsin á eftir. Þetta getur valdið bændum miklum búsifjum,“ segir Elvar Árni. Rjúpnaveiðin hefst í lok mánaðar. Samkvæmt ákvörðun umhverfis- ráðherra verður heimilt að skjóta rjúpu í níu daga líkt og haustið 2011 og dreifist veiðitímabilið á fjórar helgar. Að sögn Elvars Árna eru skot- veiðimenn ánægðir með að ráð- herra skuli hafa tekið ákvörðun svona fljótt. Engu að síður telja þeir að margt megi betur fara. „Veiðidögum var fækkað úr átján niður í níu fyrir nokkrum árum. Við teljum engu að síður að það sé alveg jafn mikið veitt nú og þá. Það eru bara fleiri í einu að veiða og álagið á stofninn alveg jafn mikið. Þegar veiðitímabilið stóð lengur yfir voru menn ekki að fara í misjöfnum veðrum. Nú fara menn upp á hálendi í vondu veðri og þá getur skapast hætta,“ segir Elvar Árni. „Við erum samt ánægðir með að veiðar séu enn leyfðar. Okkur finnst samt sem veiði stjórnun á rjúpu sé úrelt fyrir komulag og vonum að nýtt kerfi verði tekið upp. Við teljum það úrelt kerfi að ráðherra skuli taka ákvörðun um þetta í stað þess að sérfræð- ingar hjá Umhverfisstofnun og Náttúrufræði stofnun fari með ákvörðunarvaldið. Nú eru þeir bara til ráðgjafar fyrir ráðherra. Á end- anum verður þetta alltaf pólitísk ákvörðun sem ráðherra fer með, sem er mjög sérstakt þegar taka þarf ákvörðun um veiðar á villtum fugli. Það væri betra ef þetta væri bara eins og gæsaveiðarnar sem eru bara í föstum skorðum og ekki verið að hrófla við þeim ár frá ári.“ Elvar Árni segir að stofnstærðar- líkanið sem miðað sé við geri of mikið úr áhrifum veiða á stofn rjúpunnar. „Það eru fyrst og fremst veðurfarsleg áhrif og afrán ann- arra dýra sem hafa áhrif, svo sem refa, minka og ránfugla. Þetta hefur heilmikil áhrif og að okkar mati meiri áhrif en líkanið gerir ráð fyrir. Við höfum verið að vinna í því að fá Náttúrufræðistofnun til að skoða fleiri þætti en það sem hefur áhrif þar er fyrst og fremst skort- ur á fé til rannsókna. Við teljum að hægt sé að stjórna þessum veiðum betur og það er örugglega hægt að styrkja stofninn með meiri veiðum á ref. Refurinn étur mjög mikið. Við höfum alveg misst stjórn á refa- stofninum.“ kristjan@frettabladid.is „Höfum alveg misst stjórn á refastofninum“ ELVAR ÁRNI LUND Formaður Skotvís segir skotveiðimenn ánægða með að fá að veiða rjúpu en gagnrýnir veiðifyrirkomulagið. 50 ERLENDAR STÖÐVAR Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 Varaforsetaefni Bandaríkjanna í beinni JOE BIDEN - PAUL RYAN kappræður á SVT 2 í nótt kl. 01.00 ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT Á VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.