Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 74
11. október 2012 FIMMTUDAGUR54
golfogveidi@frettabladid.is
Það eru bara fleiri
í einu að veiða og
álagið á stofninn alveg jafn
mikið.
ELVAR ÁRNI LUND
FORMAÐUR SKOTVÍS
1.610 LAXAR veiddust í Miðfjarðará í sumar. Er það ágætis veiði þegar tekið er mið af því hversu léleg laxveiðin var
almennt í sumar. Í fyrra veiddust 2.364 laxar í ánni.
1.507 LAXAR komu á land í Selá í Vopnafirði í sumar. Miðað við aðrar ár og ástandið almennt í sumar er það fín veiði.
Í fyrra veiddust 2.021 lax í Selá.
Gæsaveiðar hafa gengið
ágætlega í ár, þó misjafn-
lega eftir landshlutum.
Höfum misst stjórn á refa-
stofninum sem hefur áhrif
á rjúpuna, segir for maður
Skotvís, sem gagnrýnir
stofnstærðarlíkan rjúp-
unnar sem notað er til að
ákvarða veiði.
„Það er misjafnt hvað menn segja
með gæsaveiðina í ár. Sumir bera
sig vel en aðrir ekki. Í heildina held
ég samt að gæsaveiðin hafi verið
nokkuð góð en þetta kuldaskot sem
gerði í byrjun september hafði þó
töluverð áhrif,“ segir Elvar Árni
Lund, formaður Skotveiðifélags
Íslands (Skotvís).
Að sögn Elvars Árna hefur aðal-
lega sést af gæs á Norðurlandi eftir
kuldatíðina í september enda hafi
allt hálendið þar verið þakið snjó.
„Gæsin virðist hafa látið sig hverfa
á stóru svæði en hefur sennilega
fært sig sunnar. Ég efast um að hún
sé farin af landi brott. Menn bera
sig allavega vel fyrir sunnan.“
Gæsaveiðar á Íslandi standa jafn-
vel út nóvember ef veðráttan er
sæmileg en þá aðallega sunnan-
lands. „Tilkoma kornakra fyrir
sunnan hefur breytt miklu fyrir
gæsaveiðimenn. Gæsirnar hafa nú
meira aðgengi að ræktuðu landi og
þar er meira æti að finna,“ segir
Elvar Árni.
Bændur hafa leigt skotveiði-
mönnum tún til gæsaveiða en þó
þeir geti haft ágætis tekjur af því
getur gæsin verið heilmikill skað-
valdur, sérstaklega á vorin. „Hún
fer mjög illa með tún og er sér-
staklega aðgangshörð á kornökr-
um. Álftir og gæsir eru skelfileg
samsetning því álftin treður túnin
niður og svo kemur gæsin á eftir.
Þetta getur valdið bændum miklum
búsifjum,“ segir Elvar Árni.
Rjúpnaveiðin hefst í lok mánaðar.
Samkvæmt ákvörðun umhverfis-
ráðherra verður heimilt að skjóta
rjúpu í níu daga líkt og haustið 2011
og dreifist veiðitímabilið á fjórar
helgar.
Að sögn Elvars Árna eru skot-
veiðimenn ánægðir með að ráð-
herra skuli hafa tekið ákvörðun
svona fljótt. Engu að síður telja þeir
að margt megi betur fara.
„Veiðidögum var fækkað úr átján
niður í níu fyrir nokkrum árum.
Við teljum engu að síður að það
sé alveg jafn mikið veitt nú og þá.
Það eru bara fleiri í einu að veiða
og álagið á stofninn alveg jafn
mikið. Þegar veiðitímabilið stóð
lengur yfir voru menn ekki að fara
í misjöfnum veðrum. Nú fara menn
upp á hálendi í vondu veðri og þá
getur skapast hætta,“ segir Elvar
Árni. „Við erum samt ánægðir með
að veiðar séu enn leyfðar. Okkur
finnst samt sem veiði stjórnun á
rjúpu sé úrelt fyrir komulag og
vonum að nýtt kerfi verði tekið
upp. Við teljum það úrelt kerfi
að ráðherra skuli taka ákvörðun
um þetta í stað þess að sérfræð-
ingar hjá Umhverfisstofnun og
Náttúrufræði stofnun fari með
ákvörðunarvaldið. Nú eru þeir bara
til ráðgjafar fyrir ráðherra. Á end-
anum verður þetta alltaf pólitísk
ákvörðun sem ráðherra fer með,
sem er mjög sérstakt þegar taka
þarf ákvörðun um veiðar á villtum
fugli. Það væri betra ef þetta væri
bara eins og gæsaveiðarnar sem
eru bara í föstum skorðum og ekki
verið að hrófla við þeim ár frá ári.“
Elvar Árni segir að stofnstærðar-
líkanið sem miðað sé við geri of
mikið úr áhrifum veiða á stofn
rjúpunnar. „Það eru fyrst og fremst
veðurfarsleg áhrif og afrán ann-
arra dýra sem hafa áhrif, svo sem
refa, minka og ránfugla. Þetta
hefur heilmikil áhrif og að okkar
mati meiri áhrif en líkanið gerir
ráð fyrir. Við höfum verið að vinna í
því að fá Náttúrufræðistofnun til að
skoða fleiri þætti en það sem hefur
áhrif þar er fyrst og fremst skort-
ur á fé til rannsókna. Við teljum að
hægt sé að stjórna þessum veiðum
betur og það er örugglega hægt að
styrkja stofninn með meiri veiðum
á ref. Refurinn étur mjög mikið. Við
höfum alveg misst stjórn á refa-
stofninum.“ kristjan@frettabladid.is
„Höfum alveg misst
stjórn á refastofninum“
ELVAR ÁRNI LUND Formaður Skotvís segir skotveiðimenn ánægða með að fá að veiða rjúpu en gagnrýnir veiðifyrirkomulagið.
50 ERLENDAR STÖÐVAR Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100
Varaforsetaefni Bandaríkjanna í beinni
JOE BIDEN - PAUL RYAN
kappræður á SVT 2 í nótt kl. 01.00
ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT Á
VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag