Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 20128
Eins og svo oft áður býður Hótel Saga upp á glæsi-legt jólahlaðborð í Súlnasal.
Jólahlaðborðin hafa verið hald-
in í mörg ár og notið mikilla vin-
sælda hjá öllum aldurshópum
enda eru veitingarnar í senn fjöl-
breyttar og ljúffengar. Valgerður
Ósk Ómarsdóttir, markaðsstjóri
Hótels Sögu, segir að boðið sé bæði
upp á sígilda rétti sem eru ómiss-
andi á jóla hlaðborðum og nýja og
spennandi rétti fyrir þá ævintýra-
gjörnu. „Jólahlaðborðin í Súlnasal
eru árlegur viðburður hjá mörg-
um fjöl skyldum, vinahópum og
fyrir tækjum. Gestir okkar komast
svo sannarlega í hátíðarskap enda
er boðið upp á frábærar veitingar
í bland við góða kvöldskemmtun
með úrvals skemmtikröftum.“
Grínist inn og Spaugstof u-
meðlimurinn Örn Árnason tekur
á móti gestum með léttu gríni og
glensi og syngur nokkur lög eftir
að borðhaldi lýkur ásamt söng-
konunni Helgu Möller. Að loknu
borðhaldi er dansað fram á nótt
með hinum eina sanna Sigga Hlö
og Helga Möller kemur mann-
skapnum í hátíðarskap og syngur
nokkra gamla smelli.
Gott úrval rétta
Að venju verður boðið upp á
mikið úrval girnilegra rétta á jóla-
hlaðborðinu. „Kokkarnir okkar
í Súlnasalnum eru með skandi-
navískar áherslur í bland við sér-
íslenska rétti. Það er mikið úrval
forrétta, aðal- og eftirrétta.“ Meðal
forrétta verður síld, grafinn lax,
kjúklingasalat og heitreykt anda-
bringa. Í aðalrétt er meðal annars
boðið upp á nauta-prime, grísa-
síðu með puru, kalkúnabringu og
hangikjöt ásamt ljúffengu með-
læti. Að lokum verða bornir fram
margir gómsætir eftirréttir í anda
Hótels Sögu.
Valgerður Ósk segir sérstöðu
Hótels Sögu fyrst og fremst liggja í
sögunni og hefðinni. „Hótel Saga er
alltaf sígild. Gestir okkar geta stólað
á úrvals gæði og reynslumikla mat-
reiðslumenn sem kunna að mat-
reiða góðar veitingar. Þjónustu fólk
okkar í Súlnasal sér til þess að öllu
sé vel stjórnað en salurinn hentar
frábærlega vel undir jólahlaðborð
og skemmtanir enda hefur hann
verið vinsæll í fimmtíu ár.
Súlnasalur býður líka upp á jóla-
hlaðborð í hádeginu þar sem áhersl-
an er lögð á börn og fjölskyldu-
fólk. Íþróttaálfurinn og Solla stirða
skemmta ásamt Erni Árnasyni.
Upplifðu jólastemningu í Skrúði
Auk þess að bjóða upp á glæsilegt
jólahlaðborð í Súlnasal er einnig
boðið upp á jólahlaðborð á veitinga-
staðnum Skrúði á jarðhæð hótels-
ins. „Skrúður er með skandinavíska
stemmingu fyrir jólin og býður upp
á jóla hlaðborð bæði í hádeginu og á
kvöldin. Hádegið er sérstaklega vin-
sælt hjá vinahópum og fjölskyldum
og um helgar koma margir til okkar
í bröns með jólaívafi. Þá koma hing-
að heilu stórfjölskyldurnar og borða
saman.“
Jólatónar Grillsins
„Við erum líka í jólaskapi á
toppnum.“ Í byrjun nóvember verð-
ur boðið upp á villibráðina að sögn
Valgerðar og í kjölfarið verður boðið
upp á sérstakan jóla matseðil. „Þar
verða í boði þriggja, fjögurra og sjö
rétta matseðlar að hætti hússins.
Allir borðgestir fá sama matinn og
kokkarnir og þjónarnir spjalla við
gesti og kynna mat og drykk undir
fagmannlegri leiðsögn frá hinum
nýja veitingastjóra Grillsins, Jakobi
Má Harðarsyni.“
Fimm stjörnu matar- og tónlistar-
veisla
Broadway er eitt af stærstu og glæsi-
legustu skemmti- og veitingahús-
um landsins. Allt að 1.100 gestir
geta snætt veislukvöldverð saman
og Broadway rúmar yfir 2.000 gesti
á dansleik. „Við bjóðum upp á
fimm stjörnu tónlistar- og matar-
veislu um jólin á Broadway. Ingó og
veður guðirnir, Sveppi, Bríet Sunna
og Sverrir Bergmann fara saman
í gegnum vinsælustu lög síðustu
fjörutíu ára ásamt frábærum hópi
dansara og hljóðfæra leikara. Eftir
að borðhaldi lýkur verður stór-
dansleikur með Ingó og Veður-
guðunum.“ Jólahlaðborðið inni-
heldur sígildar veitingar að sögn
Valgerðar ásamt fjölbreyttu með-
læti. „Helsta sérstaða Broadway er
skemmti atriðin og íburðurinn þar
í kring enda er mikill metnaður
lagður í glæsilegar sýningar með
matnum.
Af hverju ekki að spara leigu-
bílinn og slappa af?
Hótel Saga og Hótel Ísland bjóða
upp á pakka með gistingu sem
margir nýta sér núorðið, hvort
sem gestir koma utan af landi eða
Reykjavík. „Það er notalegt að
gista á hótelunum og fá sér góðan
morgun mat áður en keyrt er heim
daginn eftir ævintýralega matar-
veislu og góða kvöldskemmtun,“
segir Valgerður Ósk að lokum.
Jólin eru
að koma
Hótel Saga og Broadway eru að koma sér í
jólabúninginn og byrjar jóladagskráin hinn 17.
nóvember. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi, hátíðarskap í Súlnasal með Erni, Helgu og
Sigga Hlö, notalega jólastemmingu í Skrúði,
glæsilegan jólamatseðil í Grillinu eða 5-stjörnu
veislu á Broadway.
Valgerður Ósk Ómarsdóttir er markaðs-
stjóri Hótels Sögu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Sérstaða Broadway liggur
í glæsilegum og metnaðar-
fullum sýningum. Yfir jólin býður
Broadway upp á fimm stjörnu
tónlistar- og matarveislu þar
sem landsþekktir söngvarar
syngja mörg af vinsælustu
dægurlögum síðustu 40 ára.
MYND/EDDI
Sérstaða Hótels Sögu liggur
fyrst og fremst í sögunni og
hefðinni. Gestir geta stólað á
úrvals gæði og reynslumikla
matreiðslumenn sem kunna
að matreiða góðar veitingar.
Súlnasalur og Skrúður bjóða upp
á glæsileg jólahlaðborð og veit-
ingastaðurinn Grillið býður upp
á spennandi jólamatseðill.
MYND/ÁRNI TORFASON