Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 20
11. október 2012 FIMMTUDAGUR20
Börn sem leika sér í pollum
og sitja í blautum sandi
þurfa sennilega að klæðast
regnfatnaði úr gúmmíi
frekar en vatnsfráhrindandi
útivistarfatnaði sem andar.
Öryggisins vegna ættu
að vera endurskinsmerki
á regnfatnaðinum sem
keyptur er handa börnum.
Við val á regnfötum fyrir börn
þarf að hafa í huga að skálmarn-
ar á regnbuxum barnanna þurfa
að vera svo síðar að þær geti
verið utan yfir stígvélunum. Ann-
ars er hætta á að regnvatn kom-
ist niður í stígvélin. Band til að
smeygja undir stígvélið þarf að
vera á skálmunum, annaðhvort
úr gúmmíi eða teygju. Það er mat
starfsmanna leikskóla, sem blað
danskra neytendasamtaka spurði
ráða, að gúmmíband væri betra
en teygja þar sem teygjan verður
fljótt slök.
Starfsmennirnir segja það
hentugra að hafa rennilás á regn-
jakkanum, heldur en eingöngu
smellur. Þeir segja börnin ekki
hafa nógu mikla krafta til að eiga
við smellurnar. Auk þess sé meiri
hætta á að vatn komist inn undir
jakkann ef ekki er rennilás á
honum. En þar sem rennilásar eru
ekki alltaf vatnsheldir sé þó gott að
hafa smellur utan yfir rennilásinn.
Mælt er með því að axlabönd séu
á regnbuxunum því að þá nái þær
lengra upp. Regnbuxur með teygju
í mittinu sitja betur á börnunum,
heldur en regnbuxur með smellum,
að því er leikskólastarfsmennirn-
ir benda á. Þeir segja að á sumum
buxum séu smellurnar svo stór-
ar að börnin finni til undan þeim
þegar þau detta.
Mikilvægt er að börnin sjáist
vel í umferðinni í haustmyrkrinu.
Endurskins merki ættu þess vegna
að vera bæði framan og aftan á
regnfatnaðinum og á ermum og
skálmum.
Vatnsfráhrindandi útivistar-
fatnaður sem andar þykir henta
vel börnum sem komin eru af leik-
skólaaldri og eru hætt að setjast í
polla. ibs@frettabladid.is
20
hagur heimilanna
Veljið réttan regnfatnað
handa börnunum
HAUSTRIGNING Mikilvægt er að vera í góðum regnfatnaði þegar buslað er í pollum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Didriksons Waterman Kid‘s set reyndist besti regnfatnaðurinn
fyrir börn í könnun á vegum sænska neytendablaðsins Råd
& Rön sem greint var frá í ágúst síðastliðnum. Kannaðar voru
ellefu tegundir regnfatnaðar í rannsóknarstofum auk þess
sem tekið var mið af notkun barna.
Vatn komst inn um saumana á nokkrum tegundum þegar
börnin voru látin hlaupa um í vatni. Jafnframt urðu þau blaut
á öxlunum eftir tveggja mínútna notkun einnar tegundar-
innar.
Regnfatnaður frá Didriksons fékk einnig hæstu einkunn í
könnun á vegum fyrirtækisins Testfakta síðastliðið vor.
Þungmálmar og þalöt reyndust vera í þremur tegundum
regnfatnaðar, að því er kemur fram á vefsíðunni tryggabarn.nu
Gæðakannanir á
regnfatnaði barna
Endurskinsmerki sem föst eru á fatnaði mást
smám saman af. Við kaup á nýjum endurskins-
merkjum þarf að skoða merkingar á þeim. Sam-
kvæmt frétt á vef Neytendastofu hefur það oft
komið fyrir að merki sem seld eru sem endurskins-
merki séu það í raun ekki. Endurskinsmerki sem
standast kröfur verða að vera m.a. með CE-merki
og merkt með númerinu EN 13356 eða ÍST EN
13356. Í fréttinni segir að slík merking tákni að
framleiðandinn hafi látið prófa vöruna og staðfest
sé að hún sé í lagi. Bent er á að endurskinsmerki
sem ekki uppfylla kröfur um endurskin veiti falskt
öryggi.
Sum endurskinsmerki veita
falskt öryggi
Ávaxtasafi eyðir glerungi tannanna meira en kóladrykkir.
Þetta er fullyrt í frétt á vef Svenska Dagbladet, sem fékk
vísindamenn við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi til að
rannsaka áhrif ýmissa drykkja á glerung tannanna. Bent er á að
sýrustig drykkjanna, það er pH-gildið, sé mikilvægur þáttur en einnig skiptir máli
hvaða sýru er um að ræða. Greint er frá því að ávaxtasafi sé súrari og hættulegri
fyrir glerung tanna heldur en kóladrykkir, þar sem sítrónusýra sé hættulegri en
fosfórsýran í kóladrykkjunum. Súrir drykkir með sýrustig undir pH 5,5 eru sagðir
leysa glerunginn upp. Rannsóknin var gerð á tönnum sem sex ára nemendur við
tvo skóla í Stokkhólmi voru búnir að missa.
■ Mataræði
Ávaxtasafi hættulegri fyrir
tennurnar en kóladrykkir
Ársfundur Úrvinnslusjóðs
Ársfundur Úrvinnslusjóðs verður haldinn
á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Víkingasal 4,
Nauthólsvegi 52, fimmtudaginn 11. október kl 13:30
• Formaður stjórnar setur fundinn
• Ávarp umhverfisráðherra
• Ávarp formanns stjórnar Úrvinnslusjóðs
• Ársreikningur 2011 kynntur
• Starfsemi Úrvinnslusjóðs
• Umræður
Dagskrá
Fundargögn munu liggja frammi á fundarstað
Stjórn Úrvinnslusjóðs
Fös. 9. nóv. kl. 17.00
Lau. 10. nóv. kl. 14.00 / 16.00
Sun. 11. nóv. kl. 14.00 / 16.00
Fös. 23. nóv. kl. 17.00
Lau. 24. nóv. kl. 14.00 / 16.00
Sun. 25. nóv. kl. 14.00 / 16.00
Fös. 30. nóv. kl. 17.00
Lau. 1. des. kl. 14.00 / 16.00
Sun. 2. des. kl. 14.00 / 16.00
Ö
Ö
Ath. aðeins þessar 3 sýningarhelgar!
BARNALEIKSÝNING
ÁRSINS 2012
Miðasala hafin á midi.is Nánari upplýsingar á tiufingur.is
SÝNINGAR Í NORRÆNA HÚSINU
Í NÓVEMBER OG DESEMBER 2012
E.B. Fbl I.G. Mbl J.V.J. DV
PRÓSENTA lækkun varð á vísitölu kaupmáttar launa
hérlendis frá því í ágúst 2007 fram í ágúst á þessu ári.6,3
Engar rannsóknir hafa sýnt fram á að neysla
amínósýrukeðja bæti árangur eða flýti fyrir
bata eftir íþróttaæfingar. Frá þessu er greint
í nýjasta tölublaði Neytendasamtakanna,
þar sem einnig kemur fram að aukin neysla
á karnitíni hafi lítil áhrif á líkamlega getu og
þyngdartap þeirra sem þess neyta. Rann-
sóknir hafa sýnt að neysla á kreatíni getur
aukið hámarksafköst við hámarksáreynslu í
stuttan tíma.
■ Mataræði
Virkni fæðubótarefna rannsökuð