Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 10
11. október 2012 FIMMTUDAGUR10 Rannsóknarskýrsla um Orkuveitu Reykjavíkur Konur til áhrifa Nánari upplýsingar á www.xd.is Fundarstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Norðurbakka 1a í Hafnarfirði. Léttar veitingar í boði. Fundurinn er liður í fundar öð Landssambands sjálfstæðis kvenna í aðdraganda kosninga veturs. Allar konur sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru sérstaklega hvattar til að mæta. Sjálfstæðisflokkurinn Landssamband sjálfstæðiskvenna efnir til opins fundar í Suðvesturkjördæmi Framsögur halda: Pallborðsumræður með framsögukonum. Aðrir þátttakendur: Ragnheiður Ríkarðsdóttir þingkona Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingkona Jarþrúður Ásmundsdóttir formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna Elín Hirst fjölmiðlakona og frambjóðandi Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði Karen Elísabet Halldórsdóttir varabæjarfulltrúi í Kópavogi og frambjóðandi Fundarstjóri: Margrét Björnsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogsbæjar Fimmtudag 11. október kl. 19.30 ■ Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi og stjórnarmaður En eftir á að hyggja var farið of hratt í skuldsetningu, of mikil áhætta tekin gagnvart gengi gjaldmiðla og á því bera allir ábyrgð sem komu að stjórn fyrirtækisins undanfarin ár. Hins vegar má ekki gleyma því að þetta er, þrátt fyrir allt, gífurlega stöndugt fyrirtæki og það skapar mjög miklar tekjur og ef allt gengur að óskum þá verður hægt að líta á vandræðin núna sem mikilvæga lexíu. Þetta hefði allt getað farið mjög vel. Þetta hefði líka getað farið mjög illa. ■ Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri, borgarfulltrúi og stjórnarmaður Það er ákveðin stefna sem litar vorið 2006, sem VG myndi kalla stóriðju- stefnu. Ég meina að fyrirtækið, fjárhagur þess og allar áætlanir eru lagðar undir draum um að virkja alveg gríðarlega mikið til þess að selja rafmagn til stóriðju. Án þess að vera með áhættumat. Án þess að sýna fram á hvernig fjárhagur fyrirtækisins þróast í ljósi þessara áforma. […] Nýr meiri- hluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks rak hins vegar skýra útþenslustefnu. Til þess að framfylgja henni, þá er farið í svona mumbo jumbo, sem við vitum núna að var mjög víða í samfélaginu, að belgja út efnahagsreikninginn með því að endurmeta eignir Orkuveitu Reykjavíkur til þess að bara auka veðhæfi og lántökumöguleika. Þetta var nefnilega allt tekið að láni, án nokkurrar þolinmæði. ■ Eiríkur Hjálmarsson, upplýs- ingafulltrúi og ritari stjórnar frá 2006 Í fyrsta lagi of miklar fjárfestingar. Í öðru lagi fjárfestingar sem eru fjármagnaðar með of áhættusömum hætti, ofmetn- aður sem er þar undirliggjandi og ofurtrú á getu eða fjárhagslega stöðu fyrirtækisins. Í þriðja lagi hrunið. Undirliggjandi er líka kúltúrvandi hjá OR og stefnuvandi og afstöðuvandi Reykjavíkurborgar gagnvart Orkuveitunni, þar sem menn hafa gjarnan viljað láta fyrir- tækið uppfylla pólitískan metnað sem borgarsjóðurinn gat ekki. ■ Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður og varaborgarfulltrúi Pólitísk. Lausafjárvandi félagsins sem ég var stöðugt að benda á allan tímann út af 2013. Ég sá hann 2008, ég sá hann 2009, ég sá hann 2010. ■ Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi, stjórnarformaður og stjórnarmaður Það voru mikil mistök að útvíkka starf- semi Orkuveitunnar. Staðan væri önnur ef fyrirtækið hefði einbeitt sér að kjarna- starfseminni. Það hefur farið mikil orka í hluti sem eiga ekki að vera á borði fyrirtækisins. Mikill kostnaður hlaust af höfuðstöðvunum og fjárfestingu í óskyldri starfsemi sem hefur ekki skilað sér. Fjáraustur til Reykjavíkur- borgar í formi millifærslna og aukins arðs kemur eðli málsins samkvæmt niður á fyrirtækinu. […] Orð nú- verandi borgarstjóra um að fyrirtækið væri á hausnum eru væntanlega ein dýrustu orð í sögu borgarinnar. ■ Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Ég vil nú helst ekki svara henni. Á þessum tíma er ég farinn og augljós- lega eru teknar ákvarðanir eftir að ég fór sem skópu misræmi í greiðslugetu og greiðsluþörf. Ég get ekkert verið að velta vöngum um réttmæti þessara ákvarðana. Ég var ekki við- staddur þessar ákvarðanir. Ég efa það ekki að fyrir þeim hafi verið góðar ástæður. ■ Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og borgarfulltrúi Ég myndi segja að það sé vegna þess að OR missti sjónar á hlutverki sínu, hún gerði það mjög fljótt eftir sam- einingu veitufyrirtækjanna og gerði það mjög fljótt eftir að hún varð einhvern veginn ríki í ríkinu. Þetta gerist með skýrustum hætti við upphaf valdatíma R-listans þegar stjórnarformennskan í fyrirtækinu verður allt í einu að einu valdamesta embætti borgarinnar. Í framhaldi af því missir fyrirtækið sjónar á almannahlutverki sínu þó það sinnti því vel, fer að haga sér eins og einkafyrirtæki með eigin stefnu og OR varð eins og sjálfstæð valdaeining í borgarkerfinu sem var bæði óeðlilegt og óæskilegt. Menn þar fóru líka inn í verk- efni sem OR átti alls ekki að koma nálægt og borgarstjórn tók ekki nægilega skýra stjórn fyrr en átök um framtíð fyrirtækisins urðu svo harkaleg og djúpstæð að þau rufu samstöðu innan flokka og meirihluta. […] En fyrst og síðast er ástæðan fyrir fjárhagsstöðunni að fyrirtækið missti fyrir löngu, löngu síðan sjónar á hlutverki sínu og gekk allt of langt í að fjárfesta og fara í framkvæmdir og sinna gæluverkefnum þáverandi stjórnenda. ■ Haukur Leósson, stjórnarformaður Árið 2007 er hluturinn [í Landsvirkjun] seldur og ég var alltaf að röfla við þá: „Bíddu, ég vil fá þennan hluta inn í Orkuveituna, hún á þennan hlut.“ Ég segi að þetta séu 100 milljarðar og sundur- liðast þannig að 39,4 milljarðar eru fyrir hlutinn og 31,7 milljarðar vegna arðgreiðslna 1998 til 2010, mismunurinn upp á 28 milljarða er Bæjarhálsinn, Gagnaveitan og verk í vinnslu, svo sem Hverahlíð og fleira á Hellisheiðinni auk nýju og óbyggðu íbúðahverfanna á höfuðborgarsvæðinu. Það að hafa látið frá sér Sogsvirkjanirnar, sem eru gull- moli, er grafalvarlegt mál. Ef borgin vildi eiga í Lands- virkjun, þá átti hún bara að borga fyrir hlutinn sinn sjálf í stað þess að taka hann út úr OR. Þetta er eins og þegar Perlan var byggð og fleira og segja bara, Orkuveitan borgar. ■ Helgi Hjörvar, varaformaður stjórnar Ég fór 2002, en stundum hefur það verið reynsla mín í kringum svona rekstur óskyldan að vandamál megi oft rekja til þess að á einhverju tímabili hafi menn heykst á því að taka gjaldskrárákvarð- anir. Það skiptir engu máli hvort það eru opinber félög, eða hvað það er. Það er bara að ef það eru vandamál, þá er mjög oft ástæðan sú að menn hafa ekki haft þrek, pólitískt þrek til þess bara að segja það, til að hækka gjaldskrár. Og það var ekki vandamál 1994 til 2002. En það gæti líka verið hluti af þessu vandamáli núna. ■ Helgi Þór Ingason, forstjóri Á einhverjum tímapunkti voru peninga- málin orðin svo umfangsmikil að Orku- veitan var í raun og veru alveg jafn mikið fjármálafyrirtæki og orkufyrir- tæki. En innviðir Orkuveitunnar endur- spegla það ekki. Þetta er ábyggilega mikilvægt atriði, að menn aðlöguðu sig ekki að breyttum aðstæðum og breyttu umhverfi og það var ekki brugðist við nógu snemma. Þessi tilhneiging líka að horfa á björtu hliðarnar og að allt færi vel. ■ Ólafur Jónsson, lögfræðingur og ritari stjórnar Gegndarlaus sóun og sukk. Eins og ég var að segja, kaupa þetta og hitt, tóm helvítis vitleysa. Eins og með vatnslindina á Snæfellsnesinu, hitaveiturnar og margt fleira. Allt var þetta til að henda peningum. Gott dæmi eru höfuðstöðvarnar að Bæjarhálsi. Þetta er hvorki traust né gott hús auk þess sem það var gríðarlega dýrt. Einnig vantaði ákveðnari stjórn, meiri formfestu og stefnumörkun eigenda. Það var eins og tekin væri fjöl úr botninum á peningakassa. Það var gegndarlaust sem lak út. ■ Svandís Svavarsdóttir, stjórnarmaður Stóriðjustefnan var hinn pólitíski grunnur sem ákvarðanirnar byggðu á. Sama hvort það er ákvörðun um að viðhalda samningnum þarna milli jóla og nýárs 2008 eða að fara á einhverjum túrbó- hraða í Hellisheiðarvirkjun, miklu hraðar heldur en við höfðum nokkru sinni farið í jarðhitasvæði. Eða þá leyndin í kringum orkuverðið. Allt þetta hvílir á stóriðjustefnunni sem hugmyndafræði. En ef ég á að nefna einhverja staka ákvörðun þá vil ég benda á þessa ákvörðun um að fram- lengja samninginn á milli jóla og nýárs 2008, þegar að séð var að bankarnir voru farnir og Ísland átti í verulegum erfiðleikum, að þá var í raun og veru, í þágu stundar- pólitískra hagsmuna, tekin ákvörðun um það að leggja þetta áfram undir. Það er að segja, taka áhættuna áfram á kostnað almennings. Orkuveitan er enn ekki búin að bíta úr nálinni með þá ákvörðun. ■ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, borgarfulltrúi og stjórnarmaður Efnahagshrunið hafði stórfelld áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins þar sem erlend lán þess hækkuðu sem bein afleiðing af hruninu um tæpa 90 milljarða króna. Frá hruninu hafa mörg hundruð milljarðar verið afskrifaðir hjá íslenskum fyrirtækjum og verulegir fjármunir tapast á öðrum vettvangi. Ekki ein króna hefur verið afskrifuð hjá OR. Efnahagshrunið hefur auk þess valdið fyrirtækinu miklum skaða, líkt og átt hefur sér stað hjá mörgum íslenskum fyrirtækjum. Íslensk stjórnvöld hafa ekki hjálpað til með stefnu sinni í virkjanamálum, m.a. áformin um álver í Helguvík, sem ekki hafa enn kom- ist í framkvæmd. M.a. hefur þetta mál skaðað hagmuni OR verulega jafnframt neikvæðu viðhorfi núverandi ríkis- stjórnar til framgangs í orkumálum almennt. Ef vitneskja, sem leiddi til efnahagshrunsins haustið 2008, hefði legið fyrir 2005-2006, er ljóst að margar ákvarðanir sem teknar voru á árunum fyrir hrunið hefðu orðið með öðrum hætti, t.d. ekki keyptur hluti í Hitaveitu Suðurnesja og hægt á virkjunaráformum. Hvernig svöruðu þau nefndinni um ástæður fjárhagsstöðunnar? KAUPTU FJÓRAR FÁÐU SEX Alls voru 29 boðaðir fyrir nefndina og gáfu 26 þeirra svör. Alfreð Þor- steinsson, sem var stjórnarformaður fyrirtækisins um árabil, forfallaðist og Hjörleifur Kvaran, sem var for- stjóri fyrirtækisins, svaraði ekki boði nefndarinnar. Ingi Jóhannes Erlingsson, sem starfaði á fjármálasviði, lántöku- og áhættustýringarsviði og víðar svaraði hins vegar ekki boði nefndarinnar. Engum var skylt að mæta til viðtals við nefndina en nokkrir mættu þó til fundar við hana að eigin frumkvæði. Hunsuðu nefndina ALFREÐ ÞORSTEINSSON HJÖRLEIFUR KVARAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.