Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 43
KYNNING − AUGLÝSING Jólahlaðborð11. OKTÓBER 2012 FIMMTUDAGUR 9
Mikið verður um dýrðir á Grand Hótel Reykjavík í nóvember og desember.
Um margra ára skeið hefur hótel-
ið boðið upp á sígilt jólahlaðborð
sem hefur notið vaxandi vinsælda
meðal landsmanna. Auk þess eru
fjölbreytt skemmtiatriði í boði þar
sem Helgi Björnsson og Bjarni Ara-
son verða í aðalhlutverkum. Aðal-
heiður E. Ásmundsdóttir, markaðs-
stjóri Reykjavíkur hótelanna, segir
Grand Hótel Reykjavík bjóða upp á
klassískt hlaðborð með vel þekkt-
um réttum. „Gestir okkar vita
nákvæm lega að hverju þeir ganga
enda koma þeir margir aftur og
aftur, hvort sem um er að ræða
fjölskyldur, vinahópa eða fyrir-
tæki. Þetta er hið dæmigerða jóla-
hlaðborð sem Íslendingar vilja
greinilega upplifa fyrir jól.“ Ein af
sérstöðunum við jólahlaðborðið, að
sögn Aðalheiðar, er afslappað and-
rúmsloft þar sem gestir geta setið
við borðið út kvöldið og notið mat-
arins í ró og næði.
Fjölbreytt skemmtiatriði
Stórsöngvarinn Helgi Björnsson
skemmtir gestum ásamt hljóm-
sveit á föstudags- og laugardags-
kvöldum með íslenskum og erlend-
um dægur perlum í bland við jóla-
lög. Vegna mikillar eftir spurnar
hefur tveimur fimmtudagskvöld-
um verið bætt við í desember. Auk
Helga mun söngvarinn góðkunni
Bjarni Arason skemmta matar-
gestum í öðrum sal nokkur kvöld í
nóvember og desember.
„Bjarni Ara verður með glæsilega
söngdagskrá í Hvammi á Grand
Hótel Reykjavík þar sem hann mun
flytja ýmis lög frá glæsilegum ferli
sínum, auk vel valdra jólasöngva og
þekktra slagara með Frank Sinatra,
Tom Jones, Elvis Presley og fleiri
stórsöngvurum.“ Samhliða söng-
dagskránni verður boðið upp á veg-
legt jólahlaðborð.
Sömu kvöld verða einnig aðrir
skemmtik raftar á sveimi um
hótelið. Jólabjöllurnar nefnist söng-
hópur þriggja kvenna sem gengur
milli sala og syngur jólalög fyrir
matargesti. Tónlistarmaðurinn fjöl-
hæfi Reynir Sigurðsson spilar undir
fordrykk á víbrafón og á píanó undir
borðhaldi. Fyrir þá sem vilja lengja
kvöldið er dansleikur í salnum Gull-
teigi seinna um kvöldið þar sem hin
óborganlega hljómsveit Hafrót mun
spila fyrir dansi.
Ferskt og íslenskt hráefni
Á Grand Hótel Reykjavík er ávallt
leitað eftir því að nota íslenskt og
ferskt hráefni að sögn Aðal heiðar og
lögð áhersla á að elda úr íslenskum,
lífrænum kryddjurtum og græn-
meti þegar það er fáanlegt. „Nú
er hótelið með umhverfis vottun
frá Svaninum og af þeim sökum
kaupum við ávallt umhverfis-
vottaðar vörur og þjónustu ef það er
mögulegt. Gestir geta gengið að því
vísu að ávallt sé notað ferskasta hrá-
efnið hverju sinni og mat reiðslan sé
í hæsta gæðaflokki.“
Sem fyrr segir er jólahlaðborð
hótelsins sígilt. Það inniheldur
ljúffenga forrétti og bæði heita og
kalda aðalrétti eins og hangilæri,
grísahamborgarhrygg, kryddlegið
lambalæri, hunangsfyllta kalkúna-
bringu og purusteik að dönskum
hætti. „Eftirréttirnir eru einnig
hefðbundnir og sérstaða þeirra
liggur meðal annars í því að þeir
eru allir lagaðir á staðnum og úr ís-
lensku hráefni sem bakarar okkar
sjá um. Við erum auðvitað með ris
à l ámande en svo erum við með
fjölbreytilegt úrval af sérlöguðum
ostakökum sem eru ómótstæðilega
góðar.“
Ekki má gleyma grænmetis-
réttunum, en Aðalheiður segir ört
stækkandi hóp kjósa þá ekki síður
en hefðbundna jólahlaðborðsrétti.
„Við höfum sett saman nokkra
hátíðlega létta jólarétti. Þar má
meðal annars nefna karrí- og chili-
kryddaða grænmetis- og karöflu-
rétti, hnetu- og bauna steikur, græn-
metislasanja og hrísgrjónasalat.“
Sunnudagar eru f jölskyldu-
dagar hjá Grand Hótel Reykjavík.
Þá er boðið upp á jólabröns fyrir
alla fjölskylduna þar sem börnin
borða frítt.
Jólahlaðborðið er í boði í há-
deginu á föstudögum og einnig
á kvöldin á föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum og hefst
16. nóvember. Hópar geta pantað
jólahlaðborðið aðra daga.
Sígilt jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík
Klassískir og vinsælir réttir einkenna jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík. Margir matargestir koma ár eftir ár enda sækja þeir í
sígilda rétti og notalegt andrúmsloft sem ríkir á hótelinu. Fjöldi skemmtilegra viðburða er í boði yfir girnilegum veitingum.
„Gestir okkar vita nákvæmlega að hverju þeir ganga enda koma þeir margir aftur og aftur,“ segir Aðalheiður E. Ásmundsdóttir,
markaðsstjóri Reykjavíkurhótelanna. MYND/PJETUR
www.bluelagoon.isBókanir í síma 420 8800 eða senda tölvupóst á sales@bluelagoon.is
ER LÍÐA FER AÐ JÓLUM
Glæsilegt jólahlaðborð á LAVA, Bláa Lóninu
Dagsetningar: 23. og 30. nóvember / 7. 8. 14. og 15. desember
Verð: 7.900 kr. / Innifalið: Jólahlaðborð, fordrykkur og boðskort í Bláa Lónið