Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson. benediktj@365.is. s. 5125411 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Metnaður, gæði og ferskleiki eru ein-kunnarorð matreiðslumeistarana á Lava, veitingahúsi Bláa Lónsins.
Þar er dekrað við bragðlauka gesta í ein-
stöku umhverfi.
„Við vinnum allan jólamatinn frá grunni
hér í eldhúsinu. Það tryggir hámarksgæði
og ferskleika,“ segir Viktor Arnar Andrés-
son, yfirmatreiðslumeistari á Lava. Viktor
er meðlimur í landsliði íslenskra mat-
reiðslumeistara og segir undirbúning jóla-
hlaðborðsins vera skemmtilegan. „Því fylgir
alltaf mikil stemning að undirbúa hátíðar-
réttina.“
Magnús Héðinsson, rekstrarstjóri
veitinga sviðs Bláa Lónsins, segir góða þjón-
ustu mikilvægan hluta af heildarupplifun
gesta.
„Þess vegna leggjum við mikla áherslu
á faglega og framúrskarandi þjónustu. Við
höfum á að skipa frábærum hópi faglærðs
starfsfólks sem býr yfir mikilli reynslu á
sínu sviði.“
Magnús segir einkar huggulegt að eiga
dásamlega jólastund með fjölskyldu og
vinum í Bláa Lóninu.
„Þá er skemmtileg upplifun að slaka að-
eins á í Bláa Lóninu áður en sest er að borði
og notið dýrindis veitinga í ævintýralegu
umhverfi.“
Á jólahlaðborðinu freista ljúf fengar
sælkerakrásir. Þar má nefna jólasúpu með
rjómatoppi, appelsínusíld með reyktum
kartöf lum, mini-hreindýra hamborgara
með gráðosti, nautapiparsteik, andabringu,
kanil crème brûlée og sérrítriff le með
makkarónum og ferskum jarðarberjum.
„Einstakt náttúrulegt umhverfi, arkitekt-
úr, matur og góð þjónusta gera jólahlaðborð
í Bláa Lóninu að ógleymanlegri upplifun.
Yfir borðhaldinu ómar lifandi djasstónlist
Andrésar Þórs Gunnlaugssonar og félaga
svo stemningin verður einstök, ljúf og jóla-
leg,“ segir Magnús.
Jólahlaðborð í Bláa Lóninu hentar vel
minni og stærri hópum. Innifalinn er for-
drykkur og boðskort í Bláa Lónið sem gild-
ir út apríl 2013. Starfsfólk Bláa Lónsins getur
aðstoðað við tilboð og bókun á sætaferðum
fyrir allar stærðir hópa.
Sjá nánar á www.bluelagoon.is.
Jólagleði í um-
gjörð náttúrunnar
Í aðdraganda jóla breytist Bláa Lónið í ævintýraland, umlukið
rökkvuðum sjarma náttúrunnar í bjarma blikandi jólaljósa.
Innandyra ríkir notalegt andrúmsloft, ylur, djass og angan af
freistandi jólakrásum. Jólahlaðborð Bláa Lónsins er enda í
heimsklassa og upplifunin ógleymanlega ljúf.
Ferskleiki og gæði einkenna unaðslega matseld
meistarakokkanna á Lava.
Viktor Arnar Andrésson er yfirmatreiðslumaður í Bláa Lóninu og kann að dekra við bragðlaukana.
Umgjörð veitingahússins Lava er ævintýraleg eins og sjá má á náttúrunni í kringum Bláa Lónið.
Sérðu ekki fyrir þér kátínuna þegar gestirnir sjúga sleikjóstaf sem óvænt rataði í kokkteilana frá
jólasveininum?
Tartalettur með hangikjöti, brokkólíi, papriku og
svörtum ólífum er gómsætt og skemmtilegt útspil á
mesta jólamat Íslendinga.
Kanilkryddaðar jólamúffur með karamellugljáðum
salthnetum æra upp jólaskapið í yndisleik sínum.
Hver stenst innbakaðan reyktan lax og rjómaost, sem bráðna í
munni í unaðslegri smjördeigsrúllu? Sesamfræin senda gestina
í sjöunda himin.
Svín með teppi kallast þetta góðgæti sem
alltaf slær í gegn. Feitt beikon er gott og
við hæfi í kuldum vetrar, vafið utan um
kokkteilpylsur og bakað í ofni.
Notalegheit heima
á aðventunni
Jólahlaðborð eru yndisleg heim að sækja en það er líka hægt að gera
sér glaðan dag heima í eldhúsi á meðan beðið er eftir jólum. Aðventan
er tími töfra, stemningar og samfunda og þarf ekki að kosta aleiguna
að hóa í góða vini til að smjatta saman á sögum og jólalegu góðgæti.