Fréttablaðið - 11.10.2012, Qupperneq 12
11. október 2012 FIMMTUDAGUR12
Því verði að breyta. „Manneskja
sem hegðar sér bjánalega er
„geðveik“ eða hún tók til heima
hjá sér vegna þess að hún var í
„maníu“. Ég get fullyrt að mann-
eskja í maníu er ekkert að taka
til, hún er einhvers staðar úti að
halda að hún sé að bjarga heim-
inum. Fólk verður að venja sig af
þessari orðanotkun.“
Við erum ekki alltaf veik
Þegar dóttir Ástu var í grunn-
skóla var sú spurning lögð fyrir
bekkinn hennar hvort einhver
gæti hugsað sér að búa við hlið-
ina á geðsjúkri manneskju.
Dóttir Ástu var sú eina sem rétti
upp hönd.
„Hún orðaði þetta svo vel. Hún
sagði við kennarann: „Geðveikt
fólk þarf ekki að vera brjálað.“
Fólk heldur nefnilega að maður
sé alltaf veikur og ekkert sé að
marka sem maður segir. En við
erum ekki alltaf veik. En þegar
við erum það, þarf samfélagið að
sýna okkur þolinmæði og gefa
okkur leyfi til þess.“
„Ég var lögð inn snemma á síðasta ári
í þriðja sinn. Fyrstu tvö skiptin hafði
ég einfaldlega útskrifað sjálfa mig of
snemma vegna vangetu minnar til að
takast á við veikindi þeirra sjúklinga sem
lagðir voru inn á herbergi með mér.
Þegar ég átti að fá þriðja herbergis-
félagann á meðan ég lá á spítalanum
fór ég og bjó um mig inni á pínulitlu,
gluggalausu sturtuherbergi og bað um
að fá að sofa þar á meðan ég jafnaði
mig. Fyrri sjúklingarnir tveir voru annars
vegar ung stúlka litlu eldri en elsta
barnið mitt og hins vegar kona á aldur
við móður mína. Ég var byrjuð að gefa
stúlkunni móðurlegar ráðleggingar og
hlusta á hennar sögu áður en hún var
útskrifuð. Svo þurfti ég að halda uppi
samræðum við eldri konuna á meðan
hún stóð nakin að neðan fyrir framan
sjúkrarúmið mitt og sýndi mér prjóna-
skapinn sinn. Það er óþarfi að taka það
fram að þetta voru aðstæður sem mér
hefði þótt erfitt að takast á við heil-
brigðri og eins veik og ég var voru þetta
óbærilegar kringumstæður.
Að vera lagður inn fársjúkur af geð-
sjúkdómi veldur ólýsanlegum sársauka.
Að þurfa að deila herbergi með öðrum
veikum sjúklingum er einfaldlega
ómanneskjulegt.
Við sem glímum við geðsjúkdóma
höfum sjaldnast rödd eða getu til að
bera hönd fyrir höfuð okkar. Ég hef verið
í bata í tæp tvö ár og hét sjálfri mér því
að vera rödd þessa sjúklingahóps ef ég
fengi tækifæri til. Þessu lofaði ég mér
daginn sem ég bjó um mig í gluggalausri
kompu inni á 32C, með þeim litlu
kröftum sem ég hafði eftir samskiptin
við sambýlinga mína á deildinni.“
FRÉTTASKÝRING: Aðbúnaður geðsjúkra 1 2 3 4 5 6
Sunna
Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is
Á MORGUN:
Ungt fólk í byrjandi geðrofi
Sjúklingur á geðdeild LSH
segir nauðsynlegt að skilja
fólk betur að inni á deild-
unum. Hún merkir mun á
starfsfólkinu eftir niður-
skurð síðustu ára og segir
álagið ólíðandi. Hún finnur
fyrir fordómum gagnvart
geðsjúkum, bæði frá sjálfri
sér og samfélaginu.
Ásta María Jensen dvelur nú á
geðdeild Landspítalans (LSH)
í fimmta sinn. Hún er með geð-
hvarfaklofa, sjúkdóm sem skil-
greindur er sem geðhvörf með
geðklofaeinkennum. Hún veikt-
ist fyrst árið 1996, þá rúmlega
þrítug, þegar hún stóð í erfiðum
skilnaði við fyrrver-
andi manninn sinn
sem var mikill alkó-
hólisti og beitti hana
ofbeldi. Hún átti þá
tvö börn, tveggja
og þriggja ára, og
allt álagið varð til
þess að hún hrundi
saman.
Nú er Ásta þriggja
barna móðir, en
yngsta barn henn-
ar er fætt árið 1999
og er með Downs-
heilkenni. Þegar
drengur inn fædd-
ist hafði hún verið
einkennalaus af
sjúkdómnum í þrjú
ár, en hún veiktist
fyrst aftur á síð-
asta ári. Að hennar
mati er nauðsynlegt
að skilja ólíka sjúk-
linga betur að á geðdeildum LSH.
Póstar frá Stephen Hawking
„Í fyrsta sinn var ég í sjö vikur
inni á deild, þar af í miklu geðrofi
í tvær vikur. Það var sennilega
alvarlegasta tilfellið,“ segir hún.
Ásta tekur sjúkdóm sinn ekki
of alvarlega og vill tala opinskátt
um einkennin sem honum fylgja.
Hún segir til dæmis frá því að
hún tali alltaf ensku þegar hún
fer í geðrof.
„Það er rosalega furðulegt.
Allir reyna að láta mig tala
íslensku, en ég get bara talað
ensku. Svo upplifi ég mig ofboðs-
lega mikilvæga því ég sé í beinu
sambandi við einhverjar frægar
persónur. Síðast heyrði ég bæði
raddir og fékk tölvupósta frá
Stephen Hawking, sem er væg-
ast sagt mjög sérstakt. Hálfgert
mikilmennskubrjálæði.“
Meiri aðskilnaður nauðsynlegur
Ásta segir það mikinn ókost
hversu blandaðar deildirnar á
Hringbraut séu. Geðsjúkdómar
hafi í för með sér ólík einkenni
sem að hennar mati passa oftast
illa saman.
„Við maníusjúklingarnir gerum
okkur enga grein fyrir því hvað
við erum háværir. Með okkur
geta svo verið afskaplega veikir
geðklofasjúklingar sem geta ekki
tjáð sig og jafnvel látið sér detta í
hug að berja einhvern. Svo hef ég
verið inni á deild í þunglyndi og
man hvaða áhrif hávaði hafði á
mig þá. Því get ég alveg ímyndað
mér að þegar ég er í maníu, dans-
andi um gólfin, rosalega kát og
jafnvel syngjandi jólalög, að fólki
geti liðið illa,“ segir hún. Vissu-
lega eigi þó ekki að skilja sjúk-
linga algjörlega að
því samskipti séu
nauðsynlegur speg-
ill.
„En með því að
aðskilja betur gæti
fólk hvílt sig, verið
andvaka og hlustað
á raddir – hvert í
sínu horni. Og þeir
sem eru hættuleg-
ir gætu svo verið
afsíðis í sínum
heimi þar til þeir
eru orðnir nægilega
frískir til að koma á
hinar deildirnar.“
Bitnar á sjúklingum
Engum blöðum er
um það að fletta
að niðurskurður til
Landspítalans síð-
ustu ár hefur haft
áhrif, bæði á starfs-
fólk og sjúklinga. Þó almenn
ánægja sé með aðbúnaðinn meðal
sjúklinga, þá má margt betur
fara, að mati Ástu. Hún ítrekar
þó að starfsfólkið sé mjög gott og
henni líði almennt vel þegar hún
dvelur á deildinni.
„Mér líður alltaf vel hérna og
það væri engan veginn líft fyrir
mig ef ég væri einhvers staðar
utan spítala í mínum veikind-
um. Auðvitað líður mér illa fyrst
þegar ég kem inn, því þá átta ég
mig á því að ég er orðin veik, en
það er alltaf tekið vel á móti mér.
Manni líður eins og maður megi
vera til.“
Aldrei séð fólkið eins þreytt
Eins og áður sagði hefur Ásta
legið í fimm skipti á geðdeild
LSH. Hún merkir breytingar á
líðan starfsfólksins á milli ára
og segir álagið hafa aukist. Að
hennar mati þarf að auka mann-
skapinn á deildinni, þar sem álag-
ið sé farið að bitna á sjúklingum,
sem og starfsfólkinu sjálfu.
„Ég hef aldrei séð fólkið eins
þreytt og núna. Þó þau bíti á jaxl-
inn sé ég að þau eru örmagna.
Þetta var þó skömminni skárra
þegar ég kom í fyrra, en nú er
þetta orðin bilun. Stjórnvöld
verða aðeins að hugsa sinn gang
áður en það er skorið svona mikið
niður.“
Það tekur enginn til í maníu
Ásta finnur fyrir miklum for-
dómum gagnvart geðsjúkum,
bæði hjá sjálfri sér og sam-
félaginu.
„Ég hef ofboðslega fordóma
fyrir sjálfri mér, ég viðurkenni
það. Mér finnst ekkert gaman að
vera svona, mér finnst það asna-
legt. Auðvitað langar mig að vera
heilbrigð. En ég sé líka að ég
hef það ekkert verra en margir
aðrir,“ segir Ásta.
Hún segir fordóma sérstaklega
fyrirfinnast í misnotkun hugtaka
yfir geðsjúkdóma og fatlanir.
Geðveikt fólk er ekki alltaf brjálað
ÁLAGIÐ BITNAR Á ÖLLUM Ásta segir álagið á starfsfólk geðdeildanna bitna líka á sjúklingum og telur frekari aðskilnað vera stórt
skref í rétta átt. Hún dvelur nú á Hringbraut í fimmta sinn og segist finna mun á starfsfólki eftir niðurskurðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þunglyndi og kvíði eru algengustu geðsjúkdómarnir. Þeir eru algengari
meðal kvenna en karla, en talið er að um tíu prósent fólks fái slík einkenni
einhvern tímann á ævinni. Alvarlegur áfengisvandi er algengari hjá körlum,
en hafa ber í huga að birtingarform sjúkdómanna getur verið það sama.
Þunglyndi og kvíði algengastir
Kona á fertugsaldri greinir frá reynslu sinni af geðdeild. Hún greindist með alvarlegt þunglyndi 2004.
Kona með alvarlegt þunglyndi gagnrýnir aðbúnað harðlega
Algengast er að fyrstu einkenni komi fram á aldrinum 16 til 25 ára. Líkur á að ein-
staklingur fái geðhvörf eru um eitt prósent. Sjúkdómurinn er örlítið algengari meðal
kvenna en karla. Einkenni geðhvarfa eru sveiflur á milli oflætis (maníu) og þunglyndis,
geðhæðar og geðlægðar. Í um 60 til 70% tilfella fylgjast oflæti og þunglyndi að og upp-
lifir einstaklingur því tilfinningalegan rússíbana á skömmum tíma.
Geðhvörf (e. bipolar disorder)
Einkenni geðklofa koma oftast fyrst fram
hjá körlum á aldrinum 15 til 25 ára og hjá
konum á aldrinum 20 til 30 ára. Sjúkdómur-
inn er jafn tíður hjá konum og körlum, en
algengi er tæplega eitt prósent. Talið er
að hérlendis veikist um 160 til 180 nýir
sjúklingar af geðklofa á ári hverju.
Meðal einkenna eru:
■ Ranghugmyndir
■ Ofsóknarbrjálæði
■ Ofskynjanir
■ Tilfinningadoði
■ Truflun á sjálfsmati
■ Raunveruleikafirring
Geðklofi (e. schizophrenia)
Meðal einkenna þunglyndis:
■ Þreyta og/eða líkamlegir verkir
■ Skortur á frumkvæði
■ Erfiðleikar með að taka ákvarðanir
■ Pirringur og reiði
■ Svefntruflanir
■ Sjálfsvígshugsanir
Meðal einkenna örlyndis (maníu):
■ Minnkuð svefnþörf
■ Aukin vellíðan
■ Stutt skil á milli gleði og reiði
■ Sterk raddbeiting, hratt tal
■ Háar hugmyndir
■ Minnkuð dómgreind
fólks verða geðsjúk
á einhverjum tíma-
punkti.23%
verða geðfötluð, það
er verða öryrkjar
vegna geðsjúkdóms.2%
Manneskja tók til
heima hjá sér því
hún var í „maníu“. Ég
get fullyrt að mann-
eskja í maníu er ekk-
ert að taka til, hún
er einhvers staðar
úti að halda að hún
sé að bjarga heim-
inum. Fólk verður að
venja sig af þessari
orðanotkun.
ÁSTA MARÍA JENSEN
SJÚKLINGUR Á HRINGBRAUT
Að vera lagður
inn fársjúkur af
geðsjúkdómi
veldur ólýsan-
legum sársauka.
Að þurfa að
deila herbergi
með öðrum
veikum sjúk-
lingum er ein-
faldlega ómann-
eskjulegt.