Fréttablaðið - 11.10.2012, Síða 33
| FÓLK | 3tíska
sigurlaug Birna er 182 cm á hæð, en fyrirsætuheimurinn leitar jafnan að hávöxnum stúlkum. Þegar Elite á Ís
landi bauð stúlkum að koma í Smáralind
til prufu fyrir keppnina í byrjun septem
ber ákvað Sigurlaug að slá til. Hún segist
hafa haft áhuga á tísku þótt fyrirsætu
störf hafi verið fjarlæg. „Ég sá þetta aug
lýst og ákvað að fara í Smáralind. Þangað
mættu um 180 stúlkur en fimmtíu af þeim
fengu að fara í áframhaldandi prófanir,“
útskýrir Sigurlaug Birna.
Fékk þjálFun
Myndir voru teknar af stúlkunum og
reyndu þær sig á tískusýningu á palli.
„Eftir það var valið í rúmlega tuttugu
manna hóp en síðan var stúlkunum fækk
að niður í sautján sem var loka hópur,“
bætir hún við.
Lokahópurinn sýndi á tískusýningu
fyrir íslenska hönnuðinn Ellu í Smára
lind og féll auk þess þjálfun í að koma
fram. „Á lokakvöldinu 29. septem ber
sýndum við föt frá Vero Moda. Keppnin
var spennandi, sérstaklega á úrslita
stundinni,“ segir Sigurlaug Birna, sem
tekur þátt í Elite Model Look World í
Sjanghaí í Kína í nóvember. Þar koma
saman sigurvegarar frá sextíu löndum
og munu stúlkurnar sem raða sér í efstu
sætin hljóta samning hjá Elite World.
Ekki oF ung
Sigurlaug hefur skrifað undir samning
hjá Elite á Íslandi sem opnar dyr að fyrir
sætustörfum hér heima. Hún segist vissu
lega vera ung en telur það í lagi. „Foreldr
um mínum fannst þetta hálf ótrúlegt fyrst
en ég held að þau séu farin að venjast
þessu,“ segir hún. „Það fer fylgdarmaður
frá Elite með mér til Kína.“
Sigurlaug vill ekki meina að hún
hafi gengið með þann draum að verða
fyrirsæta. „Nei, en ég á mér draum um
að verða læknir. Ég er í Háteigsskóla í
níunda bekk og stefni á MR eftir grunn
skóla.“
Sigurlaug er öflugur frjálsíþrótta maður
og hefur stundað hástökk og hlaup. Hún
hefur stundað íþróttina í sex ár og hefur
hug á að halda því áfram með íþrótta
félaginu Ármanni. Þar að auki er hún að
læra á píanó en hafði áður stundað nám
á básúnu í nokkur ár.
lærði að ganga á háum hælum
Þegar hún er spurð hvernig það hafi
verið að stíga á svið og sýna föt segir hún
það hafa verið skemmtilegt. „Ég þurfti
reyndar að læra að ganga á háum hælum
en það hafði ég aldrei gert áður né heldur
farðað mig,“ segir hún. „En ég hlakka
mikið til að fara til Sjanghaí.“
n elin@365
Frjálsíþróttakona
vann FyrirsætukEppni
ævintýri Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir, 14 ára frjálsíþróttakona frá
Reykjavík, bar sigur úr býtum þegar Elite-fyrirsætan 2012 var valin. Hennar
bíður nú ferðalag til Sjanghaí.
í góðu Formi
Sigurlaug hefur stundað
íþróttir frá því hún var
barn auk þess að læra á
hljóðfæri.
mynd/vaLLi
spEnnandi
Sigurlaug Birna
tekur þátt í Elite
Model Look
World í Sjanghaí í
nóvember.
20% afsláttur
af linsum og
sólgleraugum í dag
og um helgina
Frábært úrval af skóm
á ótrúlega góðu verði!
Outlet-skór | fiskislóð 75 | 101 reykjavík
Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407
Stráka skór
st. 27-35
Stelpu skór
St. 27-35
aðeins
kr.9.900
Herra skór
st. 39-50
Herra skór
st. 41–46
kr.11.900
aðeins
aðeins
6.900 kr.
aðeins
kr.7.900
aðeins
kr.6.900
Dömu skór
st. 36–41