Fréttablaðið - 11.10.2012, Qupperneq 58
11. október 2012 FIMMTUDAGUR38
HÖFUNDARKVÖLD Michel Houellebecq,
les úr verkum sínum í kvöld.
Franski rithöfundurinn Michel
Houellebecq ræðir skáldskap
sinn á höfundarkvöldi honum til
heiðurs á Kaffi Sólon í kvöld.
Houellebecq, sem er einn
þekktasti en jafnframt umdeild-
asti rithöfundur Frakklands, er
staddur hér á landi til að kynna
bók sína Kortið og landið sem
kom nýlega út í íslenskri þýð-
ingu Friðriks Rafnssonar. Á höf-
undarkvöldinu kynnir Friðrik
Houellebecq stuttlega og ræðir
svo við skáldið á frönsku en Torfi
Tuliníus mun túlka jafnóðum.
Friðrik og Houellebecq lesa
jafnframt upp úr bókinni og Hall-
grímur Helgason les þýðingar
sínar á ljóðum skáldsins en í
lokin verður boðið upp á spurn-
ingar úr sal. Dagskráin hefst
klukkan 20. Viðtal við Michel
Houellebecq birtist í Frétta-
blaðinu á næstu dögum.
Houellebecq
ræðir skáld-
skap sinn
Tímaskekkja nefnist fyrsta verkefni
Nemendaleikhúss LHÍ í vetur og eru
það nemendur á 3. ári í leikaranámi
sem sýna. Þau hafa einnig samið
verkið í sameiningu undir leiðsögn
Unu Þorleifsdóttur. Verkið er hug-
leiðing um samskipti og sambönd
kynjanna og hafa nemendur unnið
að því síðustu sex vikur. Áhersla
námskeiðsins hefur verið á vinnu
með ólíkar samsetningar og sköp-
unaraðferðir við gerð leiksýninga,
á ferli slíkrar vinnu og síðan vinnu
við samsetningu og úrvinnslu efnis.
Nemendaleikhúsið er nú með
öðru sniði en verið hefur í kjölfar
breytinga á námi við leiklistar- og
dansdeild LHÍ. Eftir sem áður er
þó markmið Nemendaleikhússins
að nemendur kynnist rekstri leik-
húss og hafi tækifæri til þess að
opna dyrnar og mæta áhorfendum.
Áhorfendum verður í vetur boðið
að sjá valin verkefni 3. árs nema
leiklistar- og dansdeildar auk
fullbúinna lokasýninga nemenda
af öllum brautum deildarinnar.
- fsb
Tímaskekkja í Nemenda-
leikhúsi Listaháskólans
SÝNA TÍMASKEKKJU Nemendur á 3. ári í leikaranámi veturinn 2012-2013: Arnar Dan Kristjánsson, Arnmundur Ernst Backman,
Elma Stefanía Ágústsdóttir, Hafdís Helga Helgadóttir, Hildur Berglind Arndal, Oddur Júlíusson, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir,
Thelma Marín Jónsdóttir, Þorleifur Einarsson og Þór Birgisson.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, mynd-
listarmaður og safnakennari hjá
Listasafni Reykjavíkur, leið-
beinir börnum í listasmiðjunni
„Málað á ferð“ á Kjarvalsstöðum
á sunnudag.
Smiðjan er ætluð börnum á
aldrinum sex til tíu ára í fylgd
með fullorðnum. Þar verður
unnið með hugtakið abstrakt
og ýmis skemmtileg verkefni
unnin þar sem áhersla er lögð á
tjáningu, hreyfingu, liti, form og
línur.
Smiðjan er sett upp í tengslum
við sýninguna Ljóðheimar en
þar er að finna listaverk eftir um
30 listamenn sem lögðu drög að
frjálsri eða ljóðrænni abstrakt-
list á Íslandi þar sem áhersla var
lögð á sjálfsprottna og einstak-
lingsbundna tjáningu. Dagskráin
hefst klukkan 14.
Abstrakt
fyrir börn