Fréttablaðið - 11.10.2012, Side 70
11. október 2012 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Haukar unnu auðveldan
sigur, 22-27, á Aftureldingu í Mos-
fellsbænum í gær. Þarna mættust
liðin í efsta og neðsta sæti deildar-
innar. Afturelding var eina liðið í
deildinni sem hafði ekki fengið
stig í deildinni fyrir leikinn og bið
þess eftir stigum lengist enn.
Mosfellingar urðu fyrir áfalli
fyrir leik er í ljós kom að Örn Ingi
Bjarkason gat ekki leikið með
vegna meiðsla. Fyrir vikið vantaði
hausinn í sóknarleik Aftur eldingar
og hauslausu kjúklingarnir áttu
aldrei möguleika gegn sterku liði
Hauka.
Mosfellingar urðu að þjappa sér
saman og það gerðu þeir, enda afar
grimmir í fyrri hálfleik. Þó vant-
aði talsvert upp á gæðin í sókn
heimamanna. Þar lá fjögurra
marka munurinn í hléi. 9-13 fyrir
Hauka, sem voru þó ekki að spila
neitt sérstaklega vel.
Haukar féllu í þá gildru að slaka
aðeins of mikið á framan af síð-
ari hálfleik. Það átti að taka þetta
með vinstri og það kann ekki góðri
lukku að stýra. Tjörvi Þorgeirsson
tók þó í taumana og leiddi Hauka
út úr ógöngum og í átt að örugg-
um sigri.
„Við verðum að fjölga mínút-
unum þar sem sóknarmenn eru á
tánum og beittir. Sækja að marki
en horfa ekki upp í stúku. Byrjun-
in á seinni hálfleik var ekki gæfu-
leg þannig að ég var ánægður að
strákarnir skyldu samt klára þetta
örugglega,“ sagði Aron Kristjáns-
son, þjálfari Hauka, eftir leikinn.
„Ég þurfti aðeins að öskra á
strákana enda er þetta okkar veik-
leiki að slaka aðeins of mikið á. Við
erum ekki betri en svo að þurfa að
spila á fullu allan tímann.“ - hbg
GUNNAR GUÐMUNDSSON var í gær ráðinn þjálfari Selfoss, sem féll úr Pepsi-deild karla í haust. Tekur hann
við starfinu af Loga Ólafssyni, nýráðnum þjálfara Stjörnunnar. Gunnar lét um leið af störfum hjá KSÍ, þar sem hann
hefur verið þjálfari U-17 liðs karla. Þá voru þeir Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson ráðnir þjálfarar Leiknis.
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A/
S
IA
.I
S/
LY
F
6
12
66
09
/1
2
Lægra
verð
í Lyfju
– Lifið heil
15%
afsláttur
af Vectavir
og Otrivin
Senn fer að kólna
- vertu viðbúin.
Gildir til 31. október
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Einn Gói, þrjár baunir og margfaldur Þröstur verða að heilu ævintýri
Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning fyrir alla fjölskylduna
Fréttatíminn
Morgunblaðið
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Tilnefnt til
Grímunar 2012
sem besta
barnasýningin
Gói
Baunagrasið
og
Sun 21/10 kl. 13:00
Sun 28/10 kl. 13:00
Domino‘s deild karla
KFÍ - Fjölnir 67-95 (36-53)
KFÍ: C. Miller-Williams 20/15 fráköst, B. Spencer
15, Mirko Virijevic 11, Pance Ilievski 7, Stefán Diegó
Garcia 7, Jón Hrafn Baldvinsson 5, Guðmundur
Guðmundsson 2.
Fjölnir: Árni Ragnarsson 22, C. Matthews 15,
Tómas H. Tómasson 13, Arnþór F. Guðmundsson
12, S. Spicer 11, Björgvin Ríkharðsson 9, Elvar
Sigurðsson 5, Gunnar Ólafsson 4, Jón Sverrisson 2.
Domino‘s deild kvenna
Grindavík - Njarðvík 65-70 (29-31)
Grindavík: Dellena Criner 19, Berglind Anna
Magnúsdóttir 16, Helga Rut Hallgrímsdóttir 12.
Njarðvík: Lele Hardy 28/22 fráköst, Ína Einarsd. 11.
Haukar - Snæfell 59-68 (35-41)
Haukar: Margrét Rósa Hálfdanardóttir 17, Siarre
Evans 17, Dagbjört Samúelsdóttir 11.
Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 17, Hildur Björg
Kjartansdóttir 16, Berglind Gunnarsdóttir 14.
Fjölnir - Valur 53-76 (32-30)
Fjölnir: Britney Jones 29, Bergdís Ragnarsdóttir 9,
Fanney Lind Guðmundsdóttir 4.
Valur: Alberta Auguste 20/10 fráköst, Kristrún
Sigurjónsdóttir 17, Guðbjörg Sverrisdóttir 14,
Þórunn Bjarnadóttir 10.
KR - Keflavík 54-76 (26-47)
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15, Björg Guðrún
Einarsdóttir 11, Patechia Hartman 9.
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 17, Sara Rún
Hinriksdóttir 15/15 fráköst, Jessica Ann Jenkins 13.
ÚRSLIT
Hauslausir kjúk-
lingar í kofanum
Hausinn vantaði í sóknarleik Aftureldingar á heima-
velli sínum, Hænsnakofanum, í gær. Þrátt fyrir
fínan vilja og baráttu var sigur Hauka sannfærandi.
ATKVÆÐAMIKILL Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði níu mörk fyrir Hauka í gær og
var óhræddur við að skjóta á markið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Afturelding - Haukar 22-27 (9-13)
Mörk Aftureldingar (skot): Sverrir Hermannsson
6 (12), Hilmar Stefánsson 5/2 (7/2), Jóhann
Jóhannsson 5 (12), Böðvar Páll Ásgeirsson 3 (10),
Fannar Rúnarsson 2 (3), Þrándur Gíslason 1 (2),
Varin skot: Davíð Svansson 19/1 (46/3, 41%),
Hraðaupphlaup: 2 (Jóhann 2)
Fiskuð víti: 2 (Þrándur 2)
Mörk Hauka (skot): Stefán Rafn Sigurmanns-
son 9/2 (19/3), Tjörvi Þorgeirsson 6 (9), Freyr
Brynjars son 3 (4), Jón Þorbjörn Jóhannsson 3 (4),
Árni Steinn Steinþórsson 2 (3), Gylfi Gylfason 2
(3), Elías Már Halldórsson 2 (4), Gísli Jón Þórisson
(1), Adam Haukur Baumruk (3),
Varin skot: Giedrius Morkunas 11 (25/1, 44%),
Aron Rafn Eðvarðsson 6 (14/1, 43%),
Hraðaupphlaup: 6 (Stefán Rafn 2, Freyr 1, Árni
Steinn 2, Gylfi 1)
Fiskuð víti: 3 (Stefán Rafn 1, Tjörvi 1, Árni 1).
ÚRSLIT