Fréttablaðið - 11.10.2012, Page 78
11. október 2012 FIMMTUDAGUR58
Tónlistarmaðurinn, ritstjórinn og
knattspyrnukappinn Jón Ragnar
Jónsson hefur landað plötusamn-
ingi við Sony eftir að hann heillaði
útgáfustjórann og X Factor-dómar-
ann L.A. Reid.
„Það hlaut að vera að það kæmi
að því að þið þefuðuð þetta uppi,“
sagði Jón þegar Fréttablaðið hafði
samband, en staðfesti um leið
fregnirnar.
Jón Ragnar hefur skrifað undir
plötusamning við Epic Records,
sem heyrir undir Sony-samsteyp-
una. L.A. Reid er stjórnarformaður
útgáfunnar. Jón er að vonum lukku-
legur með samninginn og segir sög-
una sem fylgir aðdraganda hans
nánast of góða til að vera sanna.
„Fyrir ári síðan spiluðum við
vinur minn, píanóleikarinn Krist-
ján Sturla Bjarnason, nokkur lög
fyrir Bryant Reid, bróður L.A.
Reid. Góður félagi minn úr háskól-
anum í Boston kom mér í samband
við hann. Eftir það biðum við bara í
rólegheitum eftir að eitthvað kæmi
út úr þessu,“ segir Jón.
Það var svo um verslunarmanna-
helgina sem boltinn fór að rúlla. Þá
var Jón staddur í sumarbústað með
fjölskyldunni og fékk tölvupóst frá
Bryant þar sem hann tilkynnti Jóni
að L.A. vildi hitta hann. „Þá hugsaði
ég bara „vá, hvað þetta er grillað“,“
segir Jón, sem var kominn til New
York viku síðar ásamt Kristjáni
Sturlu, á fyrsta farrými í boði Sony.
„Þetta var eins og í bíómynd.
Bílstjóri sótti okkur út á flugvöll
í bíl með skyggðum rúðum, en ég
afþakkaði hótelgistingu því ég vildi
frekar gista hjá stóru systur minni
sem er búsett í New York.“
Jón og Kristján höfðu undir búið
fimm lög til að flytja fyrir L.A.
Reid, en tónleikarnir fóru fram á
skrifstofu tónlistarmógúlsins í 30
hæð í Sony-byggingunni á Madison
Avenue á Manhattan.
„Ég hafði verið mjög stressað-
ur vikuna fyrir þennan fund, svaf
lítið og hugsaði mikið um hvaða
lög ég ætti að taka. Svo þegar kom
að þessu var ég furðu rólegur. Um
tíu manns voru viðstaddir og L.A.
Reid lék á als oddi. Hann bað Krist-
ján meðal annars um að spila Bítl-
ana á flygilinn,“ segir Jón, sem
náði einungis að leika lög sín When
You‘re Around og Kiss in the Morn-
ing áður en útgáfustjórinn stoppaði
hann af. „Þá fórum við bara í annað
herbergi á meðan þau réðu ráðum
sínum inni á skrifstofunni. Bryant
var á báðum áttum hvort það boðaði
gott eða ekki að L.A. skyldi stöðva
okkur eftir einungis tvö lög. Svo
komu allir út og þökkuðu mér fyrir
flutninginn, en síðastur kom L.A.
Reid og sagði orðrétt: „I want to
carry you on my shoulders for the
world to see“.
Jón hefur skrifað undir samning
sem hljóðar upp á nokkrar plötur,
en framhaldið skýrist á næstunni.
Jón er með mörg járn í eldinum,
þar sem hann ritstýrir Monitor og
spilar knattspyrnu með Íslands-
meisturum FH á milli þess sem
hann hefur verið duglegur við að
troða upp með gítarinn.
„Ég geri mér grein fyrir því að
ég þarf að fórna einhverju svo að
þetta gangi upp, hvort sem ég þarf
að flytja út eða ekki. Mig hefði
aldrei grunað að ég myndi nokkurn
tíma fá samning hjá Sony. Þetta er
tækifæri sem ég verð að stökkva á
og prófa. Lukkudísirnar voru svo
sannar lega hliðhollar mér í þetta
sinn.“ alfrun@frettabladid.is
DRYKKURINN
I want to carry you on
my shoulders for the
world to see.
L.A. REID
ÚTGÁFUSTJÓRI EPIC RECORDS
„Ég reikna með því að hann fari
á þessu ári,“ segir fasteignasal-
inn Ísak V. Jóhannsson um Kaffi-
vagninn á Granda, sem hefur
verið til sölu í um tvo mánuði.
Vinsældir Grandasvæðisins í
vesturbæ Reykjavíkur hafa auk-
ist mikið upp á síðkastið og hafa
margar nýjar verslanir og fyrir-
tæki risið þar. Miðað við það
mætti ætla að hinn gamalgróni
veitingastaður, sem hefur verið
í eigu Stefáns Kristjánssonar og
eiginkonu hans í næstum fjörutíu
ár, væri eftirsóttur á fasteigna-
markaðnum.
„Það er einn og einn að spá en
það er frekar erfitt að fá fjár-
mögnun í dag, það er eina vanda-
málið,“ segir Ísak, sem starfar
hjá Þingholti/Stórholti. Margir
hafa viljað leigja húsnæðið en
Stefán er staðráðinn í að selja.
„Þetta er bara vegna aldurs sem
hann er að hætta. Það þurfa bara
einhverjir ungir og ferskir að
taka við.“
Sjálfur fór Ísak oft á Kaffi-
vagninn með pabba sínum þegar
hann var lítill. „Það eiga margir
góðar minningar þaðan. Svo eru
það líka allir sjómennirnir sem
hafa verið þarna í morgunkaffi
og mat.“ - fb
Örlög Kaffivagnsins eru enn óráðin
KAFFIVAGNINN Ísak V. Jóhannsson reiknar með því að Kaffivagninn seljist á þessu
ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓN RAGNAR JÓNSSON: ÞETTA ER ALVEG GRILLAÐ
Uppgötvaður af L.A. Reid og
kominn á samning hjá Sony
HEILLAÐI L.A. REID Jón Ragnar Jónsson landaði plötusamningi við Sony með því að halda einkatónleika fyrir tónlistarmógúlinn
L.A. Reid á skrifstofu hans í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
L.A. Reid er stórt nafn í tónlistarbransanum vestanhafs sem útgáfustjóri og
lagahöfundur. Ekki er nema ár síðan hann tók við stjórn hjá Epic Records, en
áður stjórnaði hann plötuútgáfunum LaFace Records og The Island Def Jam
Music Group.
Með plötusamningnum er Jón Ragnar kominn í góðan hóp með góðu
fólki, en L.A. Reid á þátt í frægð og frama Rihönnu, Justins Bieber, Ushers,
Avril Lavigne, Mariuh Carey, Kanye
West, Pink, Toni Braxton, TLC,
OutKast og Dido.
L.A. Reid hefur unnið til þriggja
Grammy-verðlauna. Undanfarið
hefur hann vakið athygli fyrir
vasklega framgöngu sína í raun-
veruleikaþáttunum X Factor en
í ár situr hann í dómarasætinu
ásamt Simon Cowell, Britney
Spears og Demi Lovato. Sigur-
launin í X Factor-keppninni
eru plötusamningur hjá Epic
Records-útgáfunni, en Jón
Ragnar er einmitt mikill
aðdáandi raunveruleika-
þáttanna og auðvitað tón-
listarmógúlsins.
UPPGÖTVAÐI RIHÖNNU OG JUSTIN BIEBER
L.A.
REID
RIHANNA JUSTIN
BIEBER
„Vestfirska bergvatnið er
uppáhaldsdrykkurinn minn.“
Ársæll Níelsson, leikari.