Fréttablaðið - 20.10.2012, Page 8
20. október 2012 LAUGARDAGUR8
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
Tímabundin lækkun
sérstaks veiðigjalds
25. október | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Farið verður yfir reglugerð um tímabundna
lækkun sérstaks veiðigjalds og fjallað um
skilyrði fyrir lækkuninni.
Skráning og frekari upplýsingar á kpmg.is
ALMANNAVARNIR Íslendingar eru
vel í stakk búnir til að takast á við
vá sem við þegar þekkjum til, en
ekki óvænta stórfellda vá. Þetta
kom fram í opn-
unarerindi sem
Víðir Reynis-
son, deildar-
stjóri almanna-
varnadeildar
Ríkislögreglu-
stjóra, hélt á
alþjóðlegri ráð-
stefnu Slysa-
varnafélagsins
Landsbjargar á
Grand hótel Reykjavík á föstudag.
„Við erum búin undir það sem
við þekkjum. Stóra spurningin er
hins vegar hvort ekki gæti eitthvað
gerst sem við þekkjum ekki,“ segir
Víðir og kveður svarið vera að svo
gæti vel farið. „Og við erum ekki
búin undir það sem við þekkjum
ekki.“
Víðir segir um leið ýmislegt
hægt að gera til að gera þjóðina
betur í stakk búna til að takast á
við vá af áður óþekktri stærðar-
gráðu. „Hægt er að efla samstarf
vísindamanna og almannavarna.
Það er hægt að efla samstarf við-
bragðsaðila og reyna að forðast að
sama fólkið sé með mörg hlutverk
í skipulaginu.“
Sem dæmi segir Víðir að á lands-
byggðinni sé algengt að björgunar-
sveitamenn séu líka í slökkviliði
byggðarlagsins, eða sjái um sjúkra-
flutninga, eða séu starfsmenn heil-
brigðisgeirans og jafnvel lögreglu-
menn líka. Þannig kunni að vera
ofmetinn sá mannafli sem menn
hafi til reiðu til að takast á við stór-
felld áföll af áður óþekktri stærð.
„Það eru áhættuþættir í skipu-
laginu sem verður að taka tillit til
þegar menn eru að horfa á atburði
sem kalla má óhugsanlega stóra.“
Ráðstefnan, sem haldin er undir
yfirskriftinni „Björgun“, er með
stærstu ráðstefnum heims í björg-
unargeira. Um 600 manns sækja
ráðstefnuna sem lýkur á morg-
un. Þar á meðal er fjöldi erlendra
gesta og fyrirlesara.
Í samantekt erindis Páls Einars-
sonar, prófessors í jarðeðlisfræði,
um jarðskjálfta- og eldfjallavá í
nágrenni Reykjavíkur kemur fram
að á flekaskilasvæðinu sem liggur
eftir Reykjanesskaga endilöngum
megi búast við fáeinum skjálftum
á stærðarbilinu 6,0 til 6,5 á hverri
öld.
„Eldgos á flekaskilunum eru
yfirleitt hraungos nema þar sem
vatn kemst að gosrásinni og veldur
sprengigosum. Aðstæður til slíks
eru þekktar á Krýsuvíkursvæðinu
og undan ströndinni við Reykja-
nestá,“ segir í samantektinni.
„Vá tengd eldgosum á Reykja-
nesskaga er helst tengd hraun-
rennsli, sprunguhreyfingum,
áhrifum öskufalls á samgöngur og
hugsanlega mengun grunnvatns.“
olikr@frettabladid.is
Íslendingar óviðbúnir
óvæntum hamförum
Ísland er ekki nægilega undirbúið fyrir vá sem hér gæti hugsanlega riðið yfir.
Landið er þó vel í stakk búið til að takast á við þekktar hamfarir. Efla þarf sam-
starf vísindamanna og almannavarna og gæta að mönnun á sviði björgunar.
Í KOLSVÖRTUM MEKKI Ekki er nema um eitt og hálft ár síðan ástandið var svona í Öræfum vegna eldgoss í Grímsvötnum. Sjá má
björgunarsveit sem aðstoðaði fólk á Islandia Hótel Núpum. Myndin er tekin á hádegi í kolniðamyrkri vegna öskufalls.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍÐIR REYNISSON
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Þrjár
stöður af fimm eru tímabundnar til hálfs
eða eins árs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Innanríkisráðuneyt-
ið hefur auglýst stöður fimm
héraðsdómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur.
Tveir dómarar með fast sæti
við Héraðsdóm Reykjavíkur
verða skipaðir í embætti frá og
með fyrsta janúar 2013, eða eins
fljótt og nefnd um hæfni dóm-
ara lýkur störfum.
Þá verða þrír settir dómarar
frá sama tíma.
Tvær stöður eru til hálfs árs
en ein til heils árs. Umsóknar-
frestur um allar stöðurnar er til
sjöunda nóvember. - þeb
Fimm stöður lausar:
Auglýst eftir
héraðsdómurum
SVÍÞJÓÐ Sænska munntóbaks-
framleiðandanum Swedish Match
bauðst í fyrra að greiða 60 millj-
ónir evra til að geta haft áhrif á
væntanlega löggjöf ESB um tóbak.
Greiða átti peningana í tveimur
áföngum, 10 milljónir evra beint
á borðið og 50 milljónir evra eftir
lagabreytingu. Þetta upplýsir upp-
lýsingastjóri Swedish Match, í við-
tali við sænska blaðið Aftonbladet.
Silvio Zammit, varaborgar-
stjóri Sliema á Möltu, gerði Swed-
ish Match tilboð um að hitta John
Dalli, framkvæmdastjóra heil-
brigðis- og samkeppnismála hjá
ESB, sem er líka frá Möltu, en þeir
Zammit eru nátengdir.
Dalli sagði af sér í vikunni
vegna tengslanna. Innri rann-
sóknarstofnun ESB (OLAF)
varpaði ljósi á tengslin
eftir ábendingu frá
tóbaksframleið-
andanum. Í
niðurstöð-
um úttekt-
arinn-
ar kemur
fram að þó
að ekki sé
hægt að sanna
beina aðkomu Dalli að
málinu séu miklar líkur á
að honum hafi verið kunnugt um
tilboðið.
Fram kemur á fréttavefnum
Malta Today að Zammit hafi sagt
af sér sama dag og Dalli, sem
kveðst saklaus. Sólarhring eftir að
Dalli og Zammit sögðu af sér var
brotist inn hjá þremur samtökum
í Brussel sem berjast gegn neyslu
tóbaks.
Reglur ESB banna framleiðslu
munntóbaks, en Svíar fengu und-
anþágu við inngöngu í sambandið
á sínum tíma.
Endurskoðun laganna stendur
nú fyrir dyrum og er stefnt að því
að þau taki gildi árið 2014. Þar er
lagt til að reyklaust tóbak verði
bannað nema þar sem hefð er fyrir
sölu þess, en Svíar vilja flytja út
munntóbak til annarra ESB-landa,
meðal annars á þeim forsend-
um að það sé hættu-
minna en sígar-
ettur. - ibs
Afsagnir hjá Evrópusambandinu vegna hneykslis:
Vildi 60 milljónir
evra í tóbaksmútur
MUNNTÓBAK
Mútuhneyksli
tengt sænsku
munntóbaki
hefur leitt
til afsagnar
framkvæmda-
stjóra hjá ESB.