Fréttablaðið - 20.10.2012, Page 16
16 20. október 2012 LAUGARDAGUR
Þrír hagfræðingar Seðlabanka Íslands rituðu svargrein á laug-
ardag, 9. október, við grein okkar
Manuel Hinds um staðreyndavill-
ur í skýrslu Seðlabanka Íslands um
gjaldeyrismál. Það er ágætt að þeir
skuli bregðast við gagnrýni, en lak-
ara að svörin eru útúrsnúningar.
Hagfræðingarnir svara til dæmis
ásökunum um staðreyndavillur
í tilvitnunum í fræðigreinar, þar
sem rangt var farið með niðurstöð-
ur, með því að tína til aðrar grein-
ar sem ekki var vísað í umfjöllun-
inni um þessi tilteknu atriði. Eins
segja þeir að fullyrðingar í skýrsl-
unni beri ekki skilja í samræmi við
íslenska málvenju, s.s. í sambandi
við ástand mála í El Salvador, held-
ur með einhverjum allt öðrum hætti
sem öllu venjulegu fólki er ómögu-
legt að skilja. Seðlabankinn heldur
einnig fast við þá kenningu sína,
sem er einstök, að kostnaður við
einhliða upptöku annars gjaldmið-
ils sé allt grunnfé kerfisins, frekar
en seðlar og mynt í umferð.
Vald Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur aldrei
verið valdameiri í sögu Íslands.
Skýrt er kveðið á um sjálfstæði
bankans í lögum frá 2001, og í
skjóli þess neitar bankinn t.d. að
upplýsa viðskipta- og efnahags-
nefnd Alþingis, sem þó á að veita
bankanum aðhald, um flestar upp-
lýsingar. Seðlabankanum var síðan
fengið æðsta vald um allar gjald-
eyrishreyfingar landsins árið
2009 og þar með er bankinn orð-
inn valdamesta stofnun landsins
gagnvart viðskiptalífinu og öllum
almenningi.
Seðlabanki Íslands, sem stýrt
er af sömu aðilum og keyrðu tvær
peningastefnur í þrot, vill nú fá
aukin völd og reyna í þriðja sinn,
með aðstoð hafta. Allt er þetta stutt
miklum skýrslum sem margir trúa
í blindni. Allt er þetta ótrúverðugt.
Hvað þætti fólki um ef bankastjór-
ar föllnu bankanna myndu skrifa
skýrslu um endurreisn nýs fjár-
málakerfis og færu fram á ótak-
mörkuð völd til að hrinda hug-
myndum sínum í framkvæmd?
Ábyrgð Seðlabankans
Valdi fylgir ábyrgð. Seðlabank-
inn getur ekki byggt ákvarðan-
ir sínar á tilfinningum eða rang-
færslum. Því miður er það svo að
bankinn veit ekki einu sinni hver
skuldastaða þjóðarinnar er í raun
og veru, og ef hann veit það hefur
hann ekki fengið sig til að viður-
kenna það. Í riti sínu „Hvað skuld-
ar þjóðin“, sem kom út í febrúar
2011, hélt bankinn því ranglega
fram, vikum fyrir kosningar um
Icesave, að staða þjóðarbúsins
gagnvart útlöndum væri betri en
hún í raun og veru var. Seðlabank-
inn sagði að skuldastaðan gagn-
vart útlöndum væri um 23% af
landsframleiðslu á meðan raun-
in var fjórum sinnum verri. Á
grundvelli þessa mats hafa rang-
ar, og afdrifaríkar, ákvarðanir
verið teknar og nægir þar að nefna
útgreiðslur úr þrotabúum föllnu
bankanna.
Efnislítil klæði
Seðlabanki Íslands reynir að
breiða yfir villur sínar með útúr-
snúningum. Það samræmist engan
veginn ábyrgð hans. Hvað varðar
fullyrðingar bankans og skýrslur
eru þær jafn efnislitlar og klæði
keisarans í ævintýri H.C. Ander-
sen.
Í tillögum að nýrri stjórnar-skrá eru fimm greinar um
náttúru, umhverfi og dýravernd.
Þær eru meðal helstu nýjunga í
drögunum og þær greinar sem
hvað mest hafa verið gagnrýnd-
ar. Málefnalegasta gagnrýnin
hefur komið frá Láru Magnúsar-
dóttur sagnfræðingi en í grein í
Fréttablaðinu („Mannréttindi og
mannamál“ 4. október) og lengri
grein á heimasíðu Rannsókna-
seturs HÍ á Norðurlandi vestra
setur hún m.a. fram og rökstyð-
ur áhugaverða gagnrýni á þess-
ar hugmyndir. Ég er sammála
Láru um að náttúrunni verði
ekki eignuð mannréttindi, en
ég er ósammála því að réttinda-
hugtakið geti ekki náð yfir nátt-
úru og að orðalagið „Öllum ber
að virða [náttúruna] og vernda“
í 33. gr. sé hæpið.
Náttúra, réttur og skyldur
Hvað eru réttindi? Hugtakið um
réttindi vísar ævinlega til þriggja
þátta: (a) handhafa, þ.e. þess sem
hefur réttinn, (b) inntaks, þ.e. þess
sem rétturinn nær yfir, og (c) þess
sem rétturinn beinist að. Ef við
tökum tjáningarfrelsi á Íslandi
sem dæmi, þá eru handhafar þess
allir íslenskir borgarar, inntakið er
möguleikinn á að tjá sig og réttur-
inn beinist einkum gegn ríkisvald-
inu. Þetta þýðir að ríkisvaldinu ber
skylda til að hindra ekki borgar-
ana í að tjá sig. Einnig má spyrja
hvernig rétturinn sé til kominn,
þ.e. hver sé grundvöllur réttarins.
Grundvöllur réttar getur t.d. verið
samningur, loforð eða siðferðilegar
skuldbindingar.
Sé mannréttindahugtakið skilið
pólitískum skilningi þá er grund-
völlurinn samningur borgaranna
sín á milli. Þar sem náttúran getur
ekki verið aðili að slíkum samn-
ingi getur hún ekki verið hand-
hafi mannréttinda. Af þessu leiðir
þó ekki að mannréttindi séu nátt-
úrunni óviðkomandi því inntak
mannréttinda getur hæglega varð-
að náttúruna, eins og virðist vera
hugsunin í 33. gr. tillagna stjórn-
lagaráðs.
Í öðru lagi getur handhafi rétt-
inda útvíkkað það svið sem rétt-
indin ná til. Gera má greinarmun
á því að hafa skyldu við eitthvað og
að hafa skyldu gagnvart einhverju.
Ef ég lofa að passa hund nágranna
míns, þá tek ég á mig margvíslegar
skyldur gagnvart hundinum, jafn-
vel þótt grundvöllur þeirra skyldna
sé loforð sem ég geri við nágranna
minn en ekki hundinn. Á hundur-
inn rétt á því að fá að éta? Ég held
að hann eigi það, og sem meira er,
hann á rétt á því að ég gefi honum
að éta. Það er ekkert dularfullt við
slíkan rétt dýrs. Það er hins vegar
ekki víst að slíkan rétt megi víkka
út til jurta, vistkerfa eða dauðra
hluta. Hvar mörkin liggja veit ég
ekki, en mér virðist að hundur geti
haft slíkan rétt.
Það dregur varla nokkur í efa
að „náttúra Íslands [sé] undir-
staða lífs í landinu“ (33. gr.). Því
er ekki óeðlilegt að í stjórnskipun-
arlögum lofum við hvert öðru að
„virða [náttúruna] og vernda“ eins
og segir í næstu setningu. Ef við
gerum þetta, þá höfum við skyld-
ur gagnvart náttúrunni og þar með
höfum við veitt náttúrunni rétt.
Rétturinn er að vísu afleiddur rétt-
ur, þ.e. réttur sem fólk hefur veitt
náttúrunni með skynsamlegu lof-
orði um að hlúa að þessari forsendu
mannlegs lífs.
Göfgi
Lára gerir athyglisverðan saman-
burð á íslenskum útgáfum Mann-
réttindayfirlýsingarinnar og enskri,
franskri og danskri. Í ljós kemur að
í íslensku útgáfunum er verulegur
losarabragur á orðalagi. Lára skoð-
ar sérstaklega það sem á ensku er
kallað „dignity“ en er ýmist þýtt
sem „virðing“, „göfgi“ eða „mann-
sæmandi“. Þennan losarabrag rekur
hún, réttilega að mínu viti, til skorts
á íslenskri heimspekilegri hefð.
Þetta er bagalegt þar sem „dignity“
er grundvallarhugtak í allri umfjöll-
un um mannréttindi.
Meðal heimspekinga eru að
minnsta kosti tvær ólíkar hefðir
sem leggja ólíkan skilningi í hug-
takið „dignity“. Annars vegar er
hefð sem rekja má til þýska heim-
spekingsins Immanuels Kant, en
samkvæmt honum er „dignity“ –
sem hann kallar „Würde“ – bundið
skynsemisverum eins og mönnum.
Hins vegar er aristótelísk hefð en
samkvæmt henni er litið svo á að
heimurinn geymi margs konar „ani-
mal dignity“ – margs konar dýrs-
lega göfgi – sem verðskuldi virðingu
(e. respect). Sú sérstaka göfgi sem
einkennir menn er tengd mannlegri
skynsemi í aristótelísku hefðinni, en
innan þeirrar hefðar er ekki litið á
dýrseðlið sem andstætt skynsem-
inni heldur sem einn þátt hennar. Ef
göfgi getur verið uppspretta réttar,
þá leyfir hin aristótelíska hefð að
dýr hafi sjálfstæðan rétt þótt sá
réttur geti ekki verið mannréttindi.
Frelsi og mörk
Mannréttindakaflinn hefst á grein-
um um frelsi borgaranna. Það er
eðlilegt því um leið og borgararnir
afsala sér réttindum til ríkisvalds,
þá er mikilvægt að afmarka vald-
svið ríkisvaldsins og árétta frelsi
hvers einstaklings. En mannlegt
líf er náttúrulegt líf og líf í nátt-
úru þótt sjálf hugmyndin um nátt-
úru vilji týnast í heimi sem er und-
irlagður af menningu og tæknilegu
skipulagi. Ég hef orðað það svo að
við séum stundum slegin náttúru-
blindu (Náttúra, vald og verðmæti,
kafli 2). Þess vegna er einnig mikil-
vægt að við sem þjóð – bæði borg-
arar hins íslenska ríkis og ríkisvald-
ið sjálft – setjum okkur mörk sem
virða náttúrulegar kringumstæður
mannsins á jörðinni.
Náttúra í nýrri stjórnarskrá
Margir kunningjar mínir hafa spurt mig hvernig ég hyggist
svara spurningu nr. 3 um þjóðkirkj-
una í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20.
október. Þegar ég segist ætla að
svara spurningunni jákvætt heimta
þeir rökstuðning – hvernig það geti
samræmst lífsviðhorfum frjálslynd-
is og umburðarlyndis? Og nú langar
mig til að deila svarinu með lesend-
um Fréttablaðsins.
Segja má að kirkjan hafi átt sam-
leið með þjóðinni í meira en þús-
und ár. Oft hefur kirkjan átt bágt á
þessu tímabili og oft hefur hún fjar-
lægst þjóð sína. En um síðir hefur
hún ævinlega nálgast þjóðina á ný
– fylgt henni. Kirkjan hefur tekið
margvíslegum breytingum, en í
megindráttum hefur hún samt fylgt
þjóðinni. Æðstu embættismenn
kirkjunnar – voru um aldir sam-
þykktir af Alþingi – og voru í reynd
þjóðarleiðtogar.
Þegar samfélagið ákvað að gerast
lögformlega kristið árið 999 eða þar
um bil, þá byggði sú ákvörðun þegar
á hefðum um trúfrelsi og umburð-
arlyndi. Hér höfðu heiðnir norræn-
ir höfðingjar stjórnað landnámi og
samfélagsgerð með kristnum mæðr-
um – og verkafólki. Til að halda frið
hefur fólki af ólíkum uppruna og
trúarlegum bakgrunni lærst að lifa
saman. Þegar svo þjóðin varð lög-
formlega kristin þá bundu menn
meira að segja umburðarlyndi gagn-
vart heiðnum trúarbrögðum í lög.
Kirkjan og talsmenn hennar hafa
ævinlega lagt áherslu á að þjóna
þjóðinni allri – það felst líka í hug-
takinu þjóðkirkja. Þjóðkirkjan sinn-
ir líka margvíslegu samfélagslegu
hlutverki gagnvart börnum, gömlu
fólki og sjúklingum. Þegar áföll ríða
yfir eða þörf knýr á samúð og sam-
stöðu.
Þjóðkirkjan spyr ekki um afstöðu
einstaklinga þegar hún þjónar sjúk-
um eða gömlum eða öðrum sem
þurfa á henni að halda. Kirkjurnar
eru samkomustaðir allrar þjóðar-
innar, helgistaðir og tónleikahallir
sem standa opnar öllum almenningi
hvar sem hann kann að standa í trú-
arefnum.
Það er af þessum ástæðum sem
maður getur verið vafagemsi í trú-
málum en jafnframt vinur þjóð-
kirkjunnar. Vegna þess að menn-
ingarlegar ástæður hníga til þess.
Það er ekki svo margt sem er sam-
einandi fyrir okkur sem þjóð, en
þjóðkirkjan með mikinn meirihluta
þjóðar innanstokks er þó meðal
þess. Enda þjónar hún öllum þjóð-
félagsþegnum sem þurfa og vilja.
Ég játa að svar mitt einkennist
af ákveðinni íhaldssemi gagnvart
gildum – gildisíhaldssemi. Engu
að síður er auðvelt að rökstyðja að
ákvæði um þjóðkirkju eigi heima í
stjórnarskrá. Tökum öll þátt í kosn-
ingunum á laugardaginn.
Já – ÞjóðkirkjaNýju fötin keisarans
Ný stjórnarskrá
Ólafur Páll
Jónsson
heimspekingur og
stjórnarmaður í Nátt-
úruverndarsamtökum
Íslands
Ný stjórnarskrá
Óskar
Guðmundsson
rithöfundur
Gjaldmiðlar
Heiðar Már
Guðjónsson
hagfræðingur
Seðlabanki Íslands reynir að breiða yfir
villur sínar með útúrsnúningum. Það
samræmist engan veginn ábyrgð hans.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000
Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
53
0
43
Tenerife
Sumarið 2013
Parque Santiago ***
Frá kr. 87.500 í 7 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð kr. 99.500 á mann.
Sértilboð 22. maí í 7 nætur með 15.000 króna bókunarafslætti.
Sala hafin!– tilboð á fyrstu 300 sætunum.
Bókaðu
núna
og trygg
ðu þér
hagstæt
t verð.
15.000 k
r.
afsláttur
á mann
!