Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 18

Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 18
18 20. október 2012 LAUGARDAGUR Fréttablaðið á hrós skilið fyrir viðamikla umfjöllun um mál- efni geðsjúkra undanfarna viku. Umfjöllunin hefur tekið til þess sem vel er gert innan heilbrigðis- kerfisins og ekki síður þess sem þarf að bæta. Og það er heilmargt. Í síðustu tveimur fréttaskýringum hefur umfjöllunin snúist um gagn- rýni á þjónustu sveitarfélaga og á sú gagnrýni að einhverju leyti rétt á sér. En Reykjavíkurborg er vel- ferðarborg og mig langar að koma á framfæri nokkrum jákvæðum fréttum af þróun velferðarþjón- ustu í Reykjavík. Þjónustan hefur tekið stakkaskiptum síðastliðin ár og mest hefur hún breyst þar sem sjónarmið notenda hafa ráðið mestu um þróunina. 32 íbúðir verða að 64 plássum Á árunum 2008 til 2010 opnaði vel- ferðarsvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við velferðarráðuneytið átta búsetukjarna í borginni. Í maí 2010 færðist ábyrgð á þjónustu við geðfatlaða til borgarinnar og tók þá velferðarsvið við fimm búsetu- kjörnum og einu sambýli sem ríkið bar áður ábyrgð á. Frá þeim tíma hefur velferðarsvið byggt upp og þróað starfsemina með valdefl- ingu og virka þátttöku að leiðar- ljósi. Þjónustuúrræðum ríkisins var breytt m.a. í markviss endur- hæfingarheimili, við höfum opnað tvo nýja búsetukjarna og annar þeirra er fyrir íbúa með geðfötl- un og vímuefnavanda. Í dag er ánægjulegt að margir íbúanna í þessum búsetukjörnum hafi náð svo góðu valdi á lífi sínu að þeir bíða eftir að hefja búsetu í leigu- íbúðum úti í samfélaginu, með stuðningi. Með því eiga fleiri þess kost að nýta búsetukjarnana, fólk- ið sem Fréttablaðið gagnrýndi að hefði beðið allt of lengi á legudeild- um geðdeildanna. Þróunin er því öll til bóta. Síðastliðið vor samþykktu velferðarráð og borgarráð kaup á 32 einstaklingsíbúðum í mismun- andi hverfum borgarinnar. Þessi áætlun er í framkvæmd og verður unnið að henni næstu tvö ár. Með þessum 32 íbúðakaupum skapast jafnmörg rými í búsetukjörnum og því samtals ný úrræði fyrir allt að 64 Reykvíkinga. Í leit að eigin farsæld Reykjavíkurborg hefur sannarlega verið í fararbroddi með að þróa mismunandi húsnæðis- og búsetu- form þar sem þjónustuþörf íbúanna er betur mætt. Það er mikilvægt svo unnt sé að styðja þá til virkr- ar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum. Uppbyggingin hefur ekki bara verið í steinsteypu, held- ur þarf þjónusta við íbúa að vera þannig að hún skili raunveruleg- um árangri. Þjónusta sem byggir á valdeflingu, notendasamráði og hjálp til sjálfshjálpar. Allt er lagt í sölurnar til að styðja viðkomandi á hans forsendum, í hans aðstæð- um. Áhersla er lögð á margvíslega þátttöku í samfélaginu og fjölbreytt verkefni. Við viljum styðja íbúa í leit að eigin farsæld. Velferðar- svið hefur gert þjónustusamninga við félaga- og hagsmunasamtök á borð við Geðhjálp, Hugarafl, Hlut- verkasetur, Geysi og Rauða Kross Íslands til þess að tryggja fjöl- breytni í þjónustu við geðfatlaða. Heildarsýn á athafnir daglegs lífs er höfð að leiðarljósi um leið og skilvirkni þjónustu er tryggð. Fjöl- breytt fræðsla hefur verið í boði fyrir íbúa og starfsfólk, geðfatl- aðir fræða starfsfólk og starfsfólk fræðir geðfatlaða. Við einfaldlega leitum að og nýtum styrkleika allra með lausnamiðaðri nálgun. Hjá Reykjavíkurborg viljum við ein- faldlega veita fjölbreytta og metn- aðarfulla þjónustu. Samfélagsleg þátttaka hefur tvöfaldast Sá metnaður sem Velferðarsvið leggur í þróun þjónustu við geð- fatlaða birtist m.a. í úttektum og könnunum. Þar hefur komið fram að þjónusta við geðfatlaða hefur náð markmiðum sínum er varð- ar notendasamráð og valdeflingu, íbúar fá góðan stuðning og hvatn- ingu til samfélagslegrar þátttöku og eins má nefna að með breyttri þjónustustefnu velferðarsviðs frá árinu 2008 hefur samfélagsþátt- taka íbúa tvöfaldast. Svokölluð vettvangsgeðteymi og samfélagsgeðteymi, sem Frétta- blaðið fjallaði um, eru samstarfs- verkefni borgarinnar og Land- spítala. Reykjavíkurborg er alltaf reiðubúin í þróun þjónustu við íbúa, sé það markmið skýrt að það auki lífsgæði fólks. Á tímum aðhalds og ábyrgrar fjármálastjórnar er ekki síður mikilvægt að vita að fækkun innlagna og legudaga sem rekja má til nýrrar nálgunar með því að styðja við fólk heima hjá sér, sparar verulega fjármuni. Sveitarfélög bera öll félagslega ábyrgð Að lokum. Útgjöld til velferðar- mála eru a.m.k. tvöfalt hærri hjá Reykjavíkurborg en öðrum sveit- arfélögum. Við erum samt ekki að ofþjónusta íbúa, langt í frá, og mörgum verkefnum þurfum við að sinna betur. Nefni ég þar sérstak- lega þjónustu við fatlaða íbúa borg- arinnar. En markviss þróun þjón- ustunnar m.a. við geðfatlaða, gerir að verkum að íbúar nágranna- sveitarfélaga hafa í auknum mæli sóst eftir búsetu í borginni. Þessa þróun þarf að viðurkenna. Það er nauðsynlegt að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga viðurkenni að félags- leg ábyrgð sumra sveitarfélaga er ríkari en annarra og færi fjármagn milli sveitarfélaga eftir félagslegri ábyrgð þeirra. Ef fjármagninu er stýrt á þann veg verður það von- andi til þess að önnur sveitarfélög axli betur sína félagslegu ábyrgð. Auðvitað eigum við að tryggja félagslega fjölbreytni alls staðar. Gleymum því ekki að geðsjúkdóm- ar spyrja hvorki um stétt né stöðu, hvað þá póstnúmer. Það er nauðsynlegt að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga viðurkenni að félagsleg ábyrgð sumra sveitarfélaga er ríkari en annarra … Sigurður Pálsson skrifar grein í Fréttablaðið 18. október þar sem hann sakar mig um rang- færslur, áróðursfrasa og að vaða reyk í Silfri Egils síðastliðinn sunnudag. Stór orð, en engin rök. Það er rétt hjá Sigurði að það hefur komið fram að það fyrir- komulag að ein kirkjudeild njóti stuðnings ríkisins umfram aðrar er tæknilega ekki talið brot gegn Mannréttindasáttmála Evrópu í sjálfu sér. Það á sér reyndar sögu- legar skýringar sem rekja má til þess þegar sáttmálinn var gerð- ur, þá var beitt hálfgerðu „neit- unarvaldi“ gegn þessu sjálfsagða ákvæði. Það eru hins vegar gerð- ar mjög strangar kröfur um fyr- irkomulagið og allar líkur eru á að íslenska ríkiskirkjan sé brot á Mannréttindasáttmála Evrópu. Vonandi verður fyrsta skrefið stigið til að afnema þetta óláns fyrirkomulag í þjóðaratkvæða- greiðslunni um tillögur stjórn- lagaráðs. Ef ekki, þá er sjálfgef- ið að senda þetta til Evrópu til umfjöllunar. Oftast er reyndar vísað til úrskurðar Mannréttindadóm- stóls Evrópu í máli Darby gegn sænska ríkinu (nr. 11581/85). Þar er sænska ríkið sýknað á þeim forsendum að borgarar þar geti lækkað skatta sína með því að segja sig úr trúfélögum. Þetta er ekki þannig hér á landi, ég borga nákvæmlega sömu skatta, hvort sem ég er í þjóðkirkjunni eða utan trúfélaga. Þannig staðfestir þessi úrskurður Mannréttindadóm- stólsins í raun að fyrirkomulagið hér á Íslandi brjóti gegn Mann- réttindasáttmála Evrópu. Hæstiréttur Íslands komst svo að þeirri niðurstöðu 2007 að það bryti ekki í bága við mannrétt- indi Ásatrúarfélaga að fá lægri greiðslur en þjóðkirkjan. Undar- leg niðurstaða, en snýst aðeins um greiðslur og tekur ekki á misrétti gagnvart þeim sem standa utan trúfélaga. Dómurinn sem Sigurður vísar til (Kokkinakis gegn grísk- um stjórnvöldum) er svo hreint afbragð. Þetta er mál Grikkja sem var ítrekað dæmdur í fangelsi og til hárra sekta á fyrri hluta síð- ustu aldar fyrir að skipta um trú! Það eru umburðarlyndir „ferða- félagar“ sem kirkjan velur sér. Enn betra, niðurstaða réttar- ins í máli Kokkinakis – fyrir utan skaðabætur sem gríska ríkið þurfti að greiða honum: 1. Holds by six votes to three that there has been a breach of Article 9 (art. 9); Þá heldur Sigurður því fram að þjóðkirkjan sé ekki ríkisrekin en færir ekki önnur rök fyrir því en að það sé skilningur ríkisvaldsins og þjóðkirkjunnar. Engar upplýs- ingar færir Sigurður fram um hvað hann hafi fyrir sér í því að þetta sé skilningur ríkisvaldsins. Og þó svo væri, þá kemst hann ekki fram hjá því að rekstur kirkj- unnar er greiddur úr sameiginleg- um sjóðum. Þá kemur þessi bábilja um að sóknargjöldin séu félagsgjöld. Enn færir Sigurður engin rök fyrir sinni fullyrðingu, hann bara fullyrðir. Skoðum aðeins rökin sem ég hef fyrir minni skoðun, ég færi nefni- lega rök fyrir mínum skoðunum. Þetta eru ekki félagsgjöld vegna þess að (a) kirkjan ákveður gjöld- in ekki eins og félög sem rekin eru af félagsgjöldum, (b) kirkjan innheimtir gjöldin ekki og (c) við greiðum öll jafnmikið til kirkj- unnar, hvort sem við erum innan eða utan trúfélaga. Vill ríkiskirkj- an standa við stóru orðin um að þetta séu félagsgjöld? Gjörið svo vel. Innheimtið þetta sjálf, eins og önnur félög. Látið verkin tala ef þið meinið eitthvað með þessu tali. Þar fyrir utan má nefna (d) að prestar staðfesta meira að segja þennan skilning minn þegar þeir kvarta undan því að greiðslur til kirkjunnar lækki þegar meðlim- um hennar fækkar. Það breyt- ir engu um þetta að kirkjurnar séu reknar fyrir þennan almenna skatt eða að söfnuðir þeirra beri ábyrgð á fjárhagnum. Þetta er skattur á alla, ég get ekki losnað við að greiða hann. Hitt er svo þetta tal um jarðir kirkjunnar. Ríkið yfirtók þessar jarðir 1907 og níutíu árum seinna var gert undarlegt samkomu- lag. Þessu var stillt upp þannig að ríkið væri að greiða kirkjunni arð fyrir jarðirnar. Þetta stenst heldur ekki skoðun. Engin til- raun var gerð til að meta verð- mæti jarðanna, ekkert samhengi er því milli greiðslna og hugsan- legra verðmæta. Ekki var skoð- að hvernig kirkjan eignaðist við- komandi jarðir. Enda virðast ekki liggja neinar upplýsingar fyrir um hvaða jarðir þetta voru. Og til að kóróna vitleysuna þá halda prestar áfram að hirða hlunnindi af jörðunum. En þetta er jú aftur greitt úr, nema hvað, ríkissjóði. Sigurður færir reyndar engin rök fyrir því að þetta sé ekki rík- isrekstur. Enda vandséð hvaðan þau rök ættu að koma. Niðurlag greinar Sigurðar er að biðja um röklega umræðu. Já, endilega Sigurður, komdu með rök en ekki upphrópanir og stimpla. Flökkusagan endurtekin Geðfatlaðir í Reykjavík þróa þjónustu borgarinnar Þann 23. ágúst sl. var lögð fram ný eigendastefna á stjórn- arfundi Orkuveitu Reykjavík- ur (OR). Í lið 3.4 er fjallað um kjarnastarfsemi OR en hún felst í „rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu vatni“. Einnig er tiltek- ið að OR geti „nýtt þekkingu þess í öðrum veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu, enda þjóni hann markmiðum eigenda og þátttak- an hljóti samþykki þeirra“. Það voru mistök að skilgreina ekki rekstur gagnaveitu sem hluta af kjarnastarfsemi OR. Mikilvægustu búsetuskilyrði nútímans eru aðgangur að heitu og köldu vatni, rafmagni, fráveitu og síðast en ekki síst aðgangur að ljósleiðarakerfi fyrir m.a. inter- netsamband, sjónvarpsútsending- ar og talsíma. Sýnt hefur verið með rann- sóknum að aðgangur að öflug- um gagnaflutningum í gegnum ljósleiðara eykur hagsæld á við- komandi svæði. Þessu til stuðn- ings má benda á rit sem FTTH Council í Bandaríkjunum gefur út varðandi kosti þess að leggja ljósleiðara og þá sérstaklega kafl- ann „FTTH and Economic Deve- lopment“. Hægt er að nálgast ritið á slóðinni www.05.is/ljos_gogn/ ftthprimer2011.pdf og á heima- síðu FTTH Council. Styr hefur staðið um Gagna- veitu Reykjavíkur (GR) allt frá stofnun hennar. Lagt hefur verið til á ýmsum tímum að GR yrði seld. Þetta væri misráðið og hefur undirritaður áður gagnrýnt hug- myndir um sölu GR (sjá www.05. is/netmal/gagnaveitar.htm). Rekstur OR hefur verið þungur eftir hrun og eignir verið seldar til að grynnka á skuldum. Aldrei hefur þó komið til umræðu að selja vatnsveitu, hitaveitu, frá- veitu eða rafveitu. Að sama skapi væri fráleitt að selja GR vegna skammtímaerfiðleika í rekstri OR. Ég vil hvetja til þess að kjarna- starfsemi OR verði skilgreind upp á nýtt og rekstri gagnaveitu verði bætt við kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Það er mikilvægt að GR verði að fullu í eigu OR og þar með í eigu þeirra sveitarfé- laga sem standa að OR, íbúum og fyrirtækjum til hagsældar. Um Gagnaveitu Reykjavíkur Eftir andmæli stjórnlagaráðs-fulltrúa gegn fullyrðingum mínum, m.a. í Kastljósi um áhrif tillagna stjórnlagaráðs á stöðu íbúa utan höfuðborgarsvæðisins við ákvarðanatöku á vegum ríkis- ins, hef ég yfirfarið útreikninga mína. Í ljós kemur að ég hef ofreiknað mögulegan fjölda kjördæmakjör- inna fulltrúa landsbyggðarinn- ar á Alþingi. Ég hef sagt að þeir gætu orðið allt að 14-15. Réttara er að segja að fulltrúar frá núver- andi kjördæmum, NV, NA og SU, munu ekki geta orðið fleiri en 10 miðað við kjörskrá frá 2009. Þeir eru núna 29. Fjölda þeirra þarf að reikna út fyrir hverjar kosningar þegar kjörskrá liggur fyrir – og hann fer m.a. eftir því hvað kjördæmamörk landsbyggðarkjördæma teygja sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Þetta leiðréttist hér með. Leiðrétting Trúmál Valgarður Guðjónsson hugbúnaðar- sérfræðingur Ný stjórnarskrá Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur Fjarskipti Ingólfur Bruun hugmyndasmiður Fjarskiptafélags Öræfinga Heilbrigðismál Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2013 Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir hér með eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi og/eða rökstuddum ábendingum um nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2013. Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur. Væntanlegir umsækjendur eru beðnir að haga umsóknum í samræmi við reglur um bæjarlista- mann sem liggja frammi á bæjarskrifstofum Seltjarnarness að Austurströnd 2, en þær er einnig að finna á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is Umsóknum og/eða ábendingum skal skila á bæjarskrifstofur Seltjarnarness merktum: ,,Bæjarlistamaður 2013“ fyrir 25. nóvember nk. Menningarnefnd Seltjarnarness S E L T J A R N A R N E S B Æ R Menningarnefnd
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.