Fréttablaðið - 20.10.2012, Side 32

Fréttablaðið - 20.10.2012, Side 32
20. október 2012 LAUGARDAGUR32 JÖRÐIN 200 km 400 km 600 km 800 km 1.000 km Lofthjúpur jarðar Tunglið: 384.000 km Fjarlægðin til tunglsins er misjöfn en er að meðaltali um 384.000 kílómetrar. Það hefur ekki komið í veg fyrir að menn hafi sótt í að grannskoða staðinn. Eins og flestir vita lentu menn fyrst 1969, en þangað hefur ekki þótt neitt að sækja frá árinu 1972. Meðalhita- stig á tunglinu er 53 gráður. Fallhlífarstökk: 1-4 km Í hefðbundnum fallhlífarstökkum er stokkið út í eins til fjögurra kílómetra hæð. Spútnik 1: 947 km Sovétmenn unnu fyrstu lotuna í geimkapphlaup- inu þegar þeir komu Spútnik 1 á braut um jörðu árið 1957. Spútnik fór mest upp í 947 kílómetra hæð áður en það lækkaði flugið aftur og hrapaði til jarðar eftir þrjá mánuði. Hubble: 568 km Geimsjónaukinn Hubble hefur opnað jarðarbú- um nýjar víddir allt frá því að honum var skotið á loft upp árið 1990. Hann er á sporbaug um jörðu, í um 568 kílómetra hæð yfir jörðu, efst í lofthjúpnum. Á Stjörnufræðivefnum kemur fram að í þeirri hæð er næstum því lofttæmi og því ekkert sem truflar sýn hans út í geim. Alþjóðlega geim- stöðin: 400 km Alþjóðlega geimstöðin, ISS, er rannsóknar- stöð sem er í um 400 kílómetra hæð yfir yfirborði jarðar. Fyrsta hluta þessarar sam- eiginlegu stöðvar 15 ríkja var skotið á loft árið 1998. Frá því að fyrstu geimfararnir hófu þar störf árið 2000 hafa rúmlega 200 manns haft þar viðdvöl. Stöðin er á stærð við reisulegt einbýlishús. Júrí Gagarín í Vostok: 327 km Sovétmaðurinn Júrí Gagarín var fyrsti maðurinn sem fór á braut um jörðu. Það afrekaði hann árið 1961 þegar hann stýrði Vostok sem fór einn hring um jörðina á tæpum tveimur tímum, en hann fór hæst í 327 kílómetra hæð. Lofthjúpur jarðar: 100 km Lofthjúpur jarðar er að mestu úr nitri og súrefni. Að því er fram kemur á Stjörnufræðivefnum eru engin föst mörk á því hvar lofthjúpurinn endar en jafnan er miðað við að það sé í 100 kílómetra hæð og ofan við það tekur geimurinn við. Metaför Baumgartners: 39 km Austurríski ofurhuginn Felix Baumgartner skrifaði sig í sögubækurnar um síðustu helgi þegar hann stökk út úr loftbelg í 39 kílómetra hæð, þar sem frostið getur farið niður fyrir 50 gráður. Á leið sinni til jarðar fór hann í gegnum hljóðmúrinn, á meira en 1.300 kílómetra hraða, en sveif svo til jarðar í fallhlíf heill á húfi. Millilandaflug: 12 km Farþegaþotur fljúga jafnan í um 12 kílómetra hæð. Lofthitinn í þeirri hæð er um 54 gráðu frost. F elix Baumgartner hefur marga fjöruna sopið á ferli sínum sem atvinnuofurhugi. Hann hefur meðal annars stokkið fram af Petronas-turnunum í Kúala Lúmpúr, Taipei 101-turninum og Jesú-styttunni sem stendur yfir Rio de Janeiro. Baumgartner, sem er 43 ára gamall og fyrrum fallhlífahermaður, hyggst ganga að eiga unnustu sína, fyrirsætuna Nicole Oetl, á næsta ári. Hann hefur snúið baki við ofurhugalífinu, eftir um 2.600 stökk, og ætlar þess í stað að fljúga björgunarþyrlum. Hátt, hátt upp í himininn Ermarsundsflug Baumgartners: 9 km Felix Baumgartner á mörg met á sinni ferilskrá. Hann stökk til dæmis út úr flugvél í 9 kílómetra hæð árið 2003, í sérútbúnum fluggalla, og sveif yfir Ermarsundið áður en hann opnaði fallhlíf og sveif til jarðar. Spútnik 2: 982 km Árið 1957 urðu Sovétmenn fyrstir til að skjóta lifandi dýri út í geim þegar þeir sendu tíkina Laiku á braut um jörðu í Spútnik 2. Laika greyið drapst sennilega fljótlega eftir geimskotið en Spútnik 2 var þó á braut um jörðu í rúma 100 daga áður en farið hrapaði aftur til jarðar. Meðalfjar- lægðin frá jörðu var 982 kílómetrar. Ofurhuginn Felix Baumgartner skráði sig í sögubækurnar um síðustu helgi þegar hann lét sig falla til jarðar úr loftbelg í 39 kílómetra hæð. Þorgils Jónsson kynnti sér af þessu tilefni hversu langt hin ýmsu manngerðu tæki hafa farið frá jörðu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.