Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 43

Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 43
KYNNING − AUGLÝSING Úlpur & yfirhafnir20. OKTÓBER 2012 LAUGARDAGUR 3 El lingsen býður upp á mikið úrval af úlpum í öllum verð- og gæða- flokkum fyrir börn og full- orðna. Ellingsen þjónaði í marga áratugi útgerðum landsins en frá árinu 2006 hefur vægi útivistarvara aukist mikið hjá verslun- inni. Þeirra á meðal eru hlýjar og vandaðar úlpur og hefur úrvalið af þeim aldrei verið meira en í vetur. Bjarni Guðjóns- son, verslunarstjóri Ell- ingsen við Fiskislóð, segir verslunina bjóða upp á heildstætt úrval úlpna fyrir alla aldurhópa. „Ellingsen er mjög sam- keppnishæft í bæði verði og gæðum en það fer nefnilega ekki alltaf saman. Við bjóð- um upp á margar tegundir af úlpum fyrir börn og fullorðna, allt frá leikskólabörnum yfir í þá sem stunda „alvöru“ útivist.“ Barnaúlpur á góðu verði Fyrir yngstu börnin selur versl- unin mest úlpur frá Didriksons sem er sænskt gæðamerki sem hefur notið mikilla vinsælda hér- lendis undanfarin ár. „Úlpurnar frá Didriksons eru frábær kostur fyrir börnin, bæði til að nota í leik- skólanum og heima fyrir. Það sem skiptir mestu máli þegar úlpa er valin á börn er að hún sé bæði hlý og vatnsheld og þá eiginleika hafa úlpurnar frá Didriksons. Þær eru einnig á mjög góðu verði og það skiptir miklu máli í dag enda er verðvitund neytenda orðin mikil. Í haust hófum við einnig sölu á úlpum frá Skogstad, en þar er um að ræða norska gæðavöru á flottu verði. Fyrst og fremst höfum við haft þá stefnu undanfarin ár að bjóða upp á gott úrval í mismun- andi verðf lokkum sem henta hverjum og einum.“ Fjölbreytt úrval fyrir fullorðna Fullorðna fólkið hefur líka úr nógu að velja í Ellingsen. Bjarni segir úlpur fyrir karlmenn og konur eðlilega vera notaðar í fjölbreytt- ari tilgangi en hjá yngstu kyn- slóðinni og því sé úrvalið töluvert meira og verðflokkarnir fleiri. Þar eru viðskiptavinir yfirleitt að leita að hlýjum og vatnsheldum flíkum og aftur skiptir verðið máli. „For- eldrar hafa í mörg ár keypt Di- driksons-úlpur á börnin sín og tekið eftir því hvað þær endast vel. Nú sjáum við sama fólk kaupa í meiri mæli úlpur frá Didriksons á sjálft sig enda mikið úrval til á bæði kynin.“ Veruleg aukning hefur verið í sölu á Nike og Col- umbia sem eru aðeins dýrari en um leið mikil gæðavara. „Toppur- inn í úlpu flóru Ellingsen eru síðan úlpur frá Bergans og Mountain Hardware. Þær eru fyrir þá allra hörðustu í útivistinni og þá sem eru í björgunarsveitum. Þetta eru virkilega góð merki og gæðin eru framúrskarandi. Þær eru dýrari en hin vörumerkin enda um topp- vöru að ræða þar sem mikið er lagt upp úr vatns- og vindheldni.“ Rúmgóð verslun Auk úrvals af góðum og ódýrum úlpum felst sérstaða Ellings- en ekki síður í bjartri og rúm- góðri verslun sem gaman er að heimsækja. „Viðskiptavinum okkar finnst gaman að koma hingað og fjölskyldur mæta hingað yfirleitt saman. Hér er líka mikið úrval af alls kyns öðrum útivistarvörum fyrir börn, unglinga og fullorðna og auðvelt að gleyma sér í verslun- inni. Við höfum líka á að skipa úr- vals starfsfólki sem býr yfir mik- illi þekkingu og er sérfræðingar á sínu sviði. Úlpusérfræðingarnir okkar aðstoða til dæmis viðskipta- vini við að velja úlpur við hæfi, allt frá leikskólaúlpu til úlpu fyrir fjall- gönguna og allt þar á milli.“ Allar nánari upplýsingar má finna á glæsilegri heimasíðu Ellingsen, www.ellingsen.is. Gaman að heimsækja Ellingsen Úlpur fyrir fjölskylduna fást í Ellingsen í öllum verðflokkum. Verslunin hefur lagt áherslu á sanngjarna verðlagningu og góða þjónustu. Verslunin við Fiskislóð er sérstaklega björt og skemmtileg heim að sækja. Ellingsen er einnig með verslun við Tryggvabraut 1-3 á Akureyri. Sýnishorn af glæsilegu úrvali Ellingsen: frá vinstri, Didriksons-kvenmannsúlpa, Skogstad-barnaúlpa og Mountain Hardwear-úlpa fyrir karlmann. „Ellingsen er mjög samkeppnishæft í bæði verði og gæðum en það fer nefnilega ekki alltaf saman,“ segir Bjarni Guðjónsson, verslunarstjóri hjá Ellingsen. MYND/STEFÁN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.