Fréttablaðið - 20.10.2012, Qupperneq 110
20. október 2012 LAUGARDAGUR78
Svandís. Ég er ekki að grínast.“
Og þá fór ég að grenja,“ segir hún
og hlær.
Allir aðstandendur sýningarinn-
ar vissu af bónorðinu og biðu bak-
sviðs til að fagna hinu nýtrúlofaða
pari. „Og ég vissi ekki neitt,“ segir
hún og hlær aftur. Hún bætir við
að það sé gaman að eiga blóðugt
hringabox til minningar.
Ekki hafa allir áhorfendur verið
farnir þegar bónorðið var borið
upp því það rataði í þýska fjölmiðla
samhliða umfjöllun um sýninguna.
hallfridur@frettabladid.is
„Þetta var svo ekta við. Að trúlof-
ast á sviði í Berlín umkringd blóði
og gervilimum,“ segir leikkonan
Svandís Dóra Einarsdóttir sem
fékk afar óvenjulegt bónorð frá
unnusta sínum, leikskáldinu Sig-
tryggi Magnasyni, þann 5. októ-
ber. Hann fór niður á skeljarnar
að lokinni íslensku danssýning-
unni We Saw Monsters í leikhús-
inu Berliner Festspiele.
„Við fórum þessa helgi til Berl-
ínar til að ná sýningunni,“ segir
hún en vinir þeirra stóðu að henni.
Parið náði þó einungis endanum og
uppklappi vegna misskilnings en
þau töldu leikhúsið vera í Vestur-
Berlín þegar það var í raun í aust-
urhluta borgarinnar.
Þau fengu engu að síður að upp-
lifa eigin sýningu en dansararnir
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Sig-
ríður Soffía Níelsdóttir, sem voru
þaktar blóði, drógu þau upp á svið-
ið og þar upphófst mikill spuni.
„Sigga bað okkur um að bíða inni í
sal þar til áhorfendur væru farnir.
Við byrjuðum svo að flippa, spinna
og taka myndir í sviðsmyndinni,“
segir Svandís.
Hún vissi þó ekki hvað biði sín,
ólíkt dönsurunum sem höfðu æft
hreyfingar í tilefni bónorðsins og
réttu Sigtryggi blóðugt box með
tveimur hringum. Henni var að
vonum brugðið en taldi sér trú um
að boxið og hringarnir hefðu verið
hluti af sýningunni.
„Ég var bara í mínum eigin
heimi að pósa, fíflast og leika mér
við útlimina,“ segir hún en Sig-
tryggur þurfti að biðja hennar
fjórum eða fimm sinnum áður en
hún áttaði sig á að ekki væri um
spuna að ræða. „Ég uppgötvaði
þetta ekki fyrr en við sátum ein
í Paradís,“ segir hún og á við alt-
ari sem myndaði sviðsmyndina.
„Þá var hann kominn niður á hnén
og sagði skjálfandi: „Í alvörunni
PERSÓNAN
Ég var bara í mínum
eigin heimi að pósa,
fíflast og leika mér við
útlimina.
SVANDÍS DÓRA EINARSDÓTTIR
„Við ætlum að sýna upprennandi
ljósmyndara bæði frá Íslandi og
hvaðanæva úr heiminum,“ segir
ljósmyndarinn Aníta Eldjárn.
Hún opnar vefsíðuna Reykjavík-
nights.com í dag ásamt æskuvin-
konu sinni, förðunarfræðingnum
og stílistanum Ragnheiði Guð-
mundsdóttur.
Á heimasíðunni verða birtar
myndir af viðburðum, götutísku,
borgarlífinu og viðtöl við áhuga-
vert og skapandi fólk. „Síðan er á
ensku svo þetta er einnig hugsað
fyrir útlendinga,“ segir Aníta.
Fyrsti ljósmyndarinn til að
sýna verk sín er hinn norski
David Nikolaisen. „Hann er mjög
hæfileikaríkur. Þetta er stráka-
tískuþáttur sem er svolítið öðru-
vísi og kynlausari en Íslendingar
þekkja,“ segir Aníta. Hún bætir
við að sami stíllinn sé mikið ráð-
andi í íslenskri ljósmyndun og að
þetta sé vettvangur til að kynna
nýja stíla.
Fyrsta viðtalið verður við fyrir-
sætuna Kolfinnu Kristófersdótt-
ur sem hefur náð gífurlega langt
í tískuheiminum að undanförnu.
„Við forvitnuðumst um þennan
bransa, hvað henni finnst um hann
og hennar líf,“ segir Ragnheiður.
Vinkonurnar eiga að baki langt
samstarf og munu birta mynda-
þætti á vefsíðunni sem þær vinna.
„Við höfum verið í svona dúlleríi
að mála hvor aðra og taka mynd-
ir síðan við vorum litlar,“ segir
Ragnheiður.
Opnun Reykjavík Nights verð-
ur fagnað á Dolly í kvöld og hefst
gleðin klukkan níu. „Ég verð að
taka myndir sem enda að lokum
á síðunni,“ segir Aníta sem hefur
verið dugleg við að mynda bæjar-
lífið að undanförnu.
- hþt
Opna vef um lífið í Reykjavík
REYKJAVÍK NIGHTS Aníta Eldjárn og
Ragnheiður Guðmundsdóttir opna
vefsíðuna reykjaviknights.com.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SVANDÍS DÓRA EINARSDÓTTIR: GAMAN AÐ EIGA BLÓÐUGT HRINGABOX
Trúlofuðust á sviði um-
kringd blóði og útlimum
VILTU GIFTAST
MÉR?
Dansararnir Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir
og Sigríður Soffía
Níelsdóttir stilla
sér upp alblóðugar
með hinu nýtrú-
lofaða pari sitjandi
í hinni svokölluðu
Paradís.
Andri Haraldsson
Starf: Nemandi við Háteigsskóla.
Aldur: 15 ára.
Foreldrar: Haraldur Sigurðsson
rannsóknarlögreglumaður og Sóley
Benna Stefánsdóttir, grafískur
hönnuður.
Búseta: 101.
Stjörnumerki: Naut.
Andri og hópurinn Félagsfíklarnir
skipulögðu góðgerðaball til styrktar
Kvennaathvarfinu í vikunni.
„Ég fæ hlutverk í sjö þáttum af
tólf,“ segir leikarinn Darri Ing-
ólfsson sem fer með hlutverk í
sjónvarpsþáttunum Last Resort
sem framleiddir eru fyrir ABC-
sjónvarpsstöðina. Ákveðið var að
framleiða tólf þátta þáttaröð eftir
að svonefndur „pilot“-þáttur sló í
gegn.
Darri fer með hlutverk Robert
Mitchell sem á í ástarsambandi
við Kylie Sinclair sem leikin er
af Autumn Reeser. Reeser hefur
áður leikið í Entourage og The O.C.
Darri segir hlutverk sitt lítið en að
hann komi eitthvað meira við sögu
í síðustu tveimur þáttum þátta-
raðarinnar. „Við tókum upp þátt
þrjú og fimm í ágúst og svo fer ég
aftur til Havaí í lok mánaðarins
til að taka upp síðustu fjóra þætt-
ina. Það tekur að jafnaði viku að
skjóta hvern þátt en ég flýg heim
til Los Angeles þess á milli þar
sem umboðsmennirnir mínir vilja
að ég geti mætt í áheyrnarprufur.“
Gagnrýnendur hafa gefið þátt-
unum góða dóma en Darri segir
viðtökur almennings ráða því
hvort fleiri þáttaraðir verði fram-
leiddar.
Tökur á þáttunum fara fram á
Havaí á sama stað og lögreglu-
þættirnir Hawaii Five-0 voru
teknir upp. Að sögn Darra er lífið
á tökustað ágætt enda er margt
hægt að finna sér til dundurs á
Havaí. „Fólkið sem ég vinn með
er allt yndislegt og við búum á
mjög fínu hóteli í Waikiki. Ég hef
eignast marga góða vini í gegn-
um vinnuna og hér er ýmislegt
hægt að gera til að slappa af eftir
vinnu.“
Inntur eftir því hvað taki við
næst segir Darri það óráðið að svo
stöddu.
„Ég er kominn með nýjan
umboðsmann sem þykir mjög
góður og það er mjög spennandi
að sjá hvað gerist næst.“ - sm
Leikur í sjö þáttum á Havaí
FLEIRI ÞÆTTIR Darri Ingólfsson fékk áfram-
haldandi hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni
Last Resort.