Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2012, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 22.11.2012, Qupperneq 1
TÆKNI Tölvu- fyrirtækið Google varar við því að fyrirhugaður sáttmáli Sam- einuðu þjóðanna um upplýsinga- og samskiptatækni muni vinna gegn frjálsu og opnu interneti. Þetta kemur fram á vef BBC. Fyrirtækið stendur fyrir undir- skriftasöfnun gegn sáttmálanum á netinu. Gert er ráð fyrir að sátt málinn verði samþykktur í desember. „Sumar tillögurnar heimila ríkis- stjórnum að ritskoða löglegan málflutning eða jafnvel að loka fyrir aðgang að netinu,“ segir á síðu undirskriftasöfnunarinnar. Þá gagnrýnir Google að gert sé ráð fyrir að fyrirtæki eins og YouTube, Facebook og Skype þurfi að borga gjöld fyrir að veita þjónustu yfir landamæri. - kóp SPORT Ekki sér fyrir endann á marka- skorun Lionel Messi hjá Barcelona. 62 MENNING Jón Gnarr samsamaði sig sjóræn- ingjum í æsku. 56 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22. nóvember 2012 275. tölublað 12. árgangur SKOÐUN Tímanum var illa varið í að lesa blogg um greinarnar mínar þrjár, skrifar Sighvat- ur Björgvinsson. 30 Peðin í stjóratafli Abramovich. 64 FRÉTTIR NÚ SKAL ÞAÐ VERA STUTTMjög stutt, ljóst hár virðist vera að ryðja sér rúms í Hollywood. Hárið er haft nánast rakað í hliðunum en síðara ofan á kollinum. Miley Cyrus hefur vakið athygli með þessa greiðslu og sömuleiðis Ellen DeGeneres, Tilda Swinton, Jenny McCarthy og margar fleiri. É g er einn, sjötíu og níu á hæð og hárið nær niður á rass. Ég hef ekki mælt hvað það er langt, kannski metri. Það hefur bara alltaf verið sítt,“ segir Hrefna Borg Brynjars dóttir, nemandi í Álfhóls-skóla, en síða hárið hennar vekur gjarnan athygli vegfarenda á Lauga-veginum þar sem hún afgreiðir öðru hvoru í Tiger. Hún segir fólk oftast spyrja hana hvort hún „sé að safna?“ „Já, það kemur oft fyrir en ég veit samt aldrei hverju ég á að svara. Ég er ekki beint að safna, það vex bara svo hratt. Ég var komin með hár nið-ur fyrir axlir þegar ég var tveggja ára. Fólk segir líka oft: „Vá, hvað það er sítt!“ Og ég veit heldur aldrei hvað ég að segja við því, kannski bara „takk“ eða hvað,“ segir Hrefna hlæjandi og virðist ekki velta síðu hárinu of mikið fyrir sér. „Ég nenni ekkert að pæla of mikið í þessu og er yfirleitt bara með það slegið. Set það í tagl á æfingum, en ég æfi handbolta,“ segir hún hress en þegar blaðamaður á bágt með að trúa því að svo sítt hár þvælist aldrei fyrir viðurkennir Hrefna að hafa lent í vandræðalegum uppákomum. „Ég æfði einu sinni ska tle ti é ER EKKI AÐ SAFNASÍTT HÁR Hrefna Borg Brynjarsdóttir var komin með hár niður fyrir axlir áður en hún varð tveggja ára. Hún fær oft athugasemdir vegna síða hársins. NÝTT Nuddpúðimeð gelhausumOpið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is HRAÐ-TILBOÐ - aðeins fim, fös, lau - 25% AFSLÁTTUR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga verður afsláttur 25% af sundfatnaðifyrir stóru stelpurnar. 26 SÉRBLAÐ Fólk Opið til 21 í kvöld OPIÐ TIL KLUKKAN Í KVÖLD LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu rannsakar nú mál sem varðar mansal, eftir að par sem kom með ungbarn til lands- ins fyrr á árinu reyndist ekki for- eldrar barnsins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er parið búsett á Íslandi en fór utan fyrr á árinu og kom svo aftur til landsins með nýfætt barn. Þau sögðust eiga barnið og lögðu fram fæðingarvottorð og önnur gögn því til staðfesting- ar. Gögnin virtust vera í lagi við fyrstu sýn. Síðar vöknuðu grun- semdir um að ekki væri allt sem sýndist og farið var fram á að þau færu í DNA-próf til að sanna skyldleika sinn við barnið. Þá viður kenndu þau að vera ekki raunverulegir foreldrar barnsins og að skjölin væru fölsuð. Útlendingastofnun hefur sam- kvæmt lögum um útlendinga heimild til að fara fram á að umsækjandi um dvalarleyfi eða ættmenni hans gangist undir DNA-próf. Málið er rannsakað sem mansals mál samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins, í það minnsta til að byrja með, og hefur barna- verndaryfirvöldum verið gert við- vart um það. Ekki er talið að um neins konar misnotkun sé að ræða. Samkvæmt almennum hegningar- lögum er ólöglegt að greiða fyrir mansali með því að falsa ferða- eða persónuskilríki og annast milligöngu um eða útvega slík skilríki. Karl Steinar Valsson yfir- lögregluþjónn vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið fór þess á leit við hann. Hann sagðist þó geta staðfest að hjá lögreglunni væru nokkur mál til rannsóknar sem vörðuðu mansalsákvæði laga. Eins og fram hefur komið í Frétta- blaðinu er eitt þeirra grunur um mansal á kínverskum nuddstofum í Reykjavík. - þeb Komu með hvítvoðung til landsins á fölskum pappírum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál pars sem kom með ungbarn til landsins og lagði fram skjöl um að það væri foreldrarnir. Við nánari eftirgrennslan játað fólkið að skjölin væru fölsuð og það ætti ekki barnið. Fyrir fimm árum viðurkenndi kona sem er íslenskur ríkisborgari af filipps- eyskum uppruna að hún væri ekki raunverulega móðir ungrar stúlku sem hún hafði haft forsjá yfir. Stúlkan hafði komið sjö ára gömul hingað til lands árið 2006 og var sótt um dvalarleyfi fyrir hana sem dóttur konunnar. Í ljós kom að stúlkan var bróðurdóttir hennar. Í framhaldinu reyndu kyn foreldrar stúlkunnar að fá forræði yfir henni en dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að betra væri fyrir hana að dvelja áfram hjá fóstur- foreldrum, sem henni var komið fyrir hjá eftir að upp komst um málið. Dæmt í einu máli Bolungarvík 3° NA 7 Akureyri 1° A 6 Egilsstaðir 4° A 9 Kirkjubæjarkl. 4° A 7 Reykjavík 3° NA 7 HVASST NV-TIL Í dag verða norðaustan eða austan 13-20 m/s NV-til en annars yfirleitt hægari. Víða rigning eða slydda en úrkomulítið SV-til. 4 FÓLK „Eitt af því leiðinlegasta sem ég geri er að kaupa mér skó. Ég þarf alltaf að kaupa tvö pör og það er því dýrt dæmi fyrir mig,“ segir leikkonan Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, sem auglýsir eftir spegilmynd sinni á samskiptavefnum Facebook. Ástæðan er sú að Ólöf er með misstóra fætur. Hægri fótur hennar passar í stærð 38 á meðan sá vinstri er ívið stærri, í stærð 40. Því leitar Ólöf log- andi ljósi að einhverjum sem glímir við sama vanda- mál, nema á hinn veginn, og væri tilbúinn að deila með henni skókaupum. „Svo væri auðvitað frábært ef sá hinn sami myndi vilja koma með mér og kaupa skó, tvö fatlafól saman í skóbúð. Það væri snilld,“ útskýrir hún. Leikkonan viðurkennir að hún hafi einu sinni tekið einn skó af hvorri stærð er hún keypti skópar í Hagkaupum á sínum yngri árum. „Fyrirgefðu Hag- kaup. Þetta var hræðilegt og mér leið ekki vel með þetta. En neyðin kennir naktri konu að spinna,“ segir Ólöf. - áp / sjá síðu 70 Hægri fótur Ólafar passar í skóstærð 38 en sá vinstri í stærð 40: Leitar að fótaspegilmyndinni TVEGGJA NÚMERA MUNUR Munurinn á stærð fóta Ólafar sést helst þegar hún er berfætt. Hún segir að flestum sem frétti af vandamálinu þyki það stórmerkilegt og þeir vilji ólmir fá að sjá á henni fæturna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Valið á framboðslista Forval VG í Reykjavík og Suðvestur- kjördæmi fer fram á laugardaga. Þá velja sjálfstæðismenn á lista í Reykjavík og Norðvesturkjördæmi. 16 Gögn hækka bætur Sérfræðigögn geta hækkað bætur til þolenda kyn- ferðisofbeldis. 4 Hitastigið hækkar Ekki hefur mælst mjög kaldur mánuður í heiminum rúm 27 ár. 6 Sleggjuárás í Háholti Aðalmeðferð í máli Annþórs og Barkar hélt áfram í gær. 8 Google gagnrýnir SÞ: Segir netfrelsi vera í hættu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.