Fréttablaðið - 22.11.2012, Síða 27

Fréttablaðið - 22.11.2012, Síða 27
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2012 | SKOÐUN | 27 Mikið hefur gengið á hjá ríkis- stjórn Íslands við að sameina ráðuneyti og skipta um ráð- herra. Eitt nýju ráðuneytanna ber heitið atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og þar situr Steingrímur J. Sigfússon. Nafngift ráðuneytisins bendir til að tilgangurinn sé að búa svo um hnútana að atvinnuvegum og nýsköpun á Íslandi gangi sem best. Nafngiftin á ráðuneytinu lofaði því góðu. Tillögur þessa nýja ráðuneytis virðast hins vegar nánast alfarið felast í hækkun skatta, nýjum sköttum og að finna upp nýjar aðferðir við skattheimtu og inn- heimtu leyfisgjalda. Þetta er að sjálfsögðu hvorki gott fyrir atvinnuvegina né nýsköpun. Það sem ætti að auki að valda fólki áhyggjum, og er tilefni þessara skrifa, er sú hugarfarsbreyting, að gangi atvinnugrein vel mynd- ist tækifæri til að skattleggja hana sérstaklega. Afleit þróun Í umræðum á Alþingi nýlega sagði Steingrímur að það væri rétt að hækka virðisauka- skatt á ferðaþjónustuna úr 7% í 25,5%. Ferðaþjónustan gengi vel og myndi þola þessa hækk- un. Þetta hefur hann einnig gert í umræðum um álagningu sér- staks gjalds á sjávarútveginn og var ræða Steingríms í síð- asta mánuði á fundi LÍÚ með þessum formerkjum. Hann sagði framlegð sjávarútvegsins hafa batnað, greinin stæði styrkum fótum og væri mjólkurkýr okkar. Sams konar ástæður hafa verið bornar á borð þegar rætt hefur verið um álagningu gisti- náttaskatts og hækkun vöru- gjalda á bílaleigubíla. Þetta er afleit þróun. Farin er sú leið að ráðast á heilu atvinnuvegina og skattleggja þá sérstak lega af því að þeir ganga svo vel, þeir séu búnir að „slíta barnsskónum“, séu í vexti eða standi styrkum stoðum. Þarna lætur ríkið sér ekki nægja að njóta hækkandi skatttekna þegar vel gengur heldur seilist dýpra í vasa fyrirtækjanna þegar vel árar. Engin áform eru um léttari byrðar þegar illa árar. Hæpin forsenda fyrir hækkun Ferðaþjónustan er ágætt dæmi. Áætlað er að hækkun virðis- aukaskatts á ferðaþjónustuna skili tæpum 3,5 milljörðum á ársgrundvelli. Skatthlutfallið yrði með þessu eitt það hæsta í heiminum á ferðaþjónustu og hefur bein áhrif á samkeppnis- hæfni Íslands í ferða heiminum. Steingrímur færir fyrir því rök að þetta séu fjármunir sem munu koma í kassann, að því gefnu að eftirspurn eftir ferðaþjónustu minnki ekki þó að skatturinn hækki, og að þeir komi nánast alfarið úr vasa við- skiptavinarins. Þetta er hæpin forsenda svo ekki sé meira sagt. Auðvitað er líklegast að stór hluti af þessum viðbótar- skatti komi úr vasa þeirra sem reka rútur, tjaldstæði og hótel á Íslandi. Skilaboðin til þeirra, og allra sem mögulega vilja fjárfesta í atvinnustarfsemi á Íslandi, eru skýr: Við ætlum að rukka þig um skatt og álögur eins og hægt er og þegar þér fer að ganga vel og þú getur stað- ið undir aukinni skattheimtu, tökum við enn meira af þér. Eru slík skilaboð til þess fallin að fjárfesting aukist og fleiri atvinnugreinar dafni? Nei. Eru þau til þess fallin að auka nýsköpun? Nei, ekki heldur. Skilaboðin eru sérstaklega slæm því þau gefa til kynna að ríkið telji sig eiga sterkara tilkall til þeirra fjármuna sem mynd- ast í atvinnugreininni þegar vel gengur. Fjárfestar vita að árferðið er stundum hagstætt og að stundum árar verr, en einnig að oftar en ekki eru það góðu árin sem bera uppi fjárfesting- una. Atvinnurekendur hafa því ekki endilega sérstaka burði til að borga hærri skatta þótt vel gangi á einhverjum tímapunkti. Þessi stefna vinstriflokka í skattheimtu er fyrirboði um að minni líkur séu á því að væn- legt verði að fjárfesta í atvinnu- starfsemi á Íslandi. Skilaboðin skýr Ákveðnir þingmenn ríkis- stjórnar flokkanna tala stundum eins og þeir skilji að þetta sé röng leið. Magnús Orri Schram gaf á dögunum út bók sem fjallar m.a. um nauðsyn þess að nýsköpun á Íslandi aukist. Össur Skarphéðinsson notaði heila grein til að tryggja að les- endur Morgunblaðsins áttuðu sig á því að það væri hann sem hefði staðið að lækkun kostnað- ar við kvikmyndaframleiðslu á Íslandi og að koma Bens Stiller til Íslands væri honum að þakka. Formannsefni Samfylkingar- innar, Árni Páll Árnason, segir að ríkisvaldið eigi að vinna með atvinnulífinu að aukinni verð- mætasköpun svo traustari stoðir verði til fyrir velferðarútgjöld okkar. Það er stórundarlegt að þessir menn skuli láta sér það í léttu rúmi liggja að ríkisstjórnin sem þeir styðja þyngi skattbyrði atvinnugreinar ef hún gengur vel. Skilaboðin frá ríkisstjórninni eru skýr. Það er hreint og beint hættulegt fyrir atvinnugreinar að ná árangri og sýna fram á vöxt, því að um leið og það ger- ist sjá ráðherrar möguleika á frekari skattahækkunum. Þessi hugsun mun ekki flýta fyrir endurreisn í atvinnumálum á Íslandi. Viðbótarskattur á velgengni Í DAG Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Lyf & heilsa Kringlunni www.lyfogheilsa.is NÝIR MATTIR 20% afsláttur af öllum vörum frá Bobbi Brown dagana 22. – 25. nóvember í Lyfjum & heilsu Kringlunni Það er hreint og beint hættulegt fyrir atvinnugreinar að ná árangri og sýna fram á vöxt. AF NETINU Draumur um stjórnarskrá Drauma-stjórnarskrá væri 21. aldar útgáfa af þeirri bandarísku. Samin af greindu alþýðufólki. Engum lagatækni hleypt að. Sé fyrir mér safn spakmæla eftir Voltaire og fleiri hugsuði. Þau skuli ramma inn óskir þjóðar- innar um gott samfélag. Uppkast stjórnlaganefndar er eins konar málamiðlun. Samin af greindum mönnum, sem unnu saman að markmiði. Gerólíkt Alþingi, þar sem hver bjálfinn gargar á annan. Því miður var nefnd lagatækna hleypt í uppkastið. Hún dró úr mikilvægum réttindum, svo sem í upplýsingafrelsi almennings. Samt verður uppkastið þolandi, ef fleiri lagatæknum verður ekki hleypt að málinu. jonas.is Jónas Kristjánsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.