Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2012, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 22.11.2012, Qupperneq 56
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is 22. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 48 TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Good Kid, m.A.A.d City Kendrick Lamar Í tíma Magnús & Jóhann Okkar menn í Havana Sigurður Guðmundsson og Memfismafían Í spilaranum Beck hefur starfað mikið við upptökustjórn að undanförnu fyrir hina ýmsu listamenn og því hefur hann haft minni tíma til að sinna eigin tónlist. Nú síðast tók hann upp lag kántrísöngvarans Dwights Yoakam, A Heart Like Mine, af nýrri plötu hans 3 Pears. Meðal annarra verkefna hans eru sólóplata Thurstons Moore úr Sonic Youth, Demolished Thoughts, plata Stephens Malkmus [úr Pavement] and the Jicks sem heitir Mirror Traffic og plata Charlotte Gainsbourg, IRM. Upptökustjórinn Beck Bandaríski tónlistarmaðurinn Beck hefur gefið út plötuna Song Reader. Þetta er samt engin venju- leg plata því hún hefur aðeins að geyma nótur á blöðum og eiga þeir sem lesa þær að sjá sjálfir um tón- listarflutninginn. Beck fékk hugmyndina að þessu skrítna verkefni um miðjan tíunda áratuginn þegar hann fékk sent til sín nótnablað þar sem hægt var að bæta píanó- og gítarspili við lögin. Nokkrum árum síðar heyrði hann söguna á bak við lagið Sweet Leil- ani sem Bing Crosby gaf út árið 1937. Lagið varð svo vinsælt að nótnablaðið með laginu seldist í 54 milljónum eintaka. Í grein sem Beck skrifaði um „plötuna“ sína í The New Yorker sagði hann að í þá daga hefði verið svo algengt að lög væru spiluð heima fyrir að næst- um hálf bandaríska þjóðin hefði keypt nótnablað með aðeins þessu eina lagi. Hann heillaðist af þess- um gamla tíma og hugsunarhætti og árið 2004 hóf hann að undirbúa verkefnið fyrir alvöru. Song Reader er 108 blaðsíðna löng nótnabók með myndum og er hans ellefta plata á ferlinum ef það má kalla hana það. Eins og gefur að skilja kemur hún ekki út á geisladiski, vínyl eða á MP3. „Þessi lög, þar á meðal tvö sem eru ósungin, eru mjög spennandi eins og búast mátti við af höfund- inum,“ sagði útgefandinn Faber and Faber. „En ef þú vilt heyra Do We? We Do, eða Don‘t Act Like Your Heart Isn‘t Hard, verður þú sjálfur, lesandinn, að sjá til þess.“ Hægt er að hlusta á ýmsa spreyta sig á tónlistinni á vefsíð- unni Songreader.net. Beck hefur sjálfur tekið upp prufuútgáfur af lögunum en býst ekki við því að gefa þær út. Aðdáendur Beck sem kunna ekki að lesa nótur og hafa engan áhuga á að spila lögin hans sjálf- ir geta glaðst yfir því að hann er með aðra plötu í undirbúningi sem verður gefin út á hefðbundinn hátt. Í viðtali við ástralska útvarpsstöð sagðist hann hafa tekið hana að mestu upp 2008 og er að reyna að taka sér pásu frá störfum sínum sem upptökustjóri til að ljúka við hana. freyr@frettabladid.is Nótnabók í stað venjulegrar plötu Beck Hansen hefur gefi ð út „plötuna” Song Reader sem er í raun nótnabók. UNDARLEG ÚTGÁFA Tónlistarmaðurinn Beck hefur gefið út plötuna, eða öllu heldur nótnabókina, Song Reader. NORDICPHOTOS/GETTY 15.11.2012 ➜ 21.11.2012 LAGALISTINN TÓNLISTINN Sæti Flytjandi Lag 1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 2 Adele Skyfall 3 Retro Stefson Glow 4 Valdimar Sýn 5 Jónas Sigurðsson Hafið er svart 6 Rihanna Diamonds 7 Ragnar Bjarnason/ Jón Jónsson Froðan 8 Mumford & Sons I Will Wait 9 Bruno Mars Locked Out of Heaven 10 Of Monsters and Men Mountain Sounds Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 2 Raggi Bjarna Dúettar 3 Retro Stefson Retro Stefson 4 Valdimar Um stund 5 Skálmöld Börn Loka 6 Of Monsters and Men My Head Is an Animal 7 Víkingur Heiðar Ólafsson/ Kristinn Sigmundsson Winterreise 8 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf 9 Bjarni Arason Elvis Gospel 10 Sverrir Bergmann Fallið lauf Ásgeir Trausti Hljómsveitin Massive Attack var einn af kyndilberum trip-hop tónlistarinnar sem var áberandi í Bretlandi á tíunda áratugnum. Hljóm- sveitin var stofnuð upp úr hipphopphópnum The Wild Bunch sem starfaði í Bristol-borg á níunda áratugnum. Árið 1988 var Massive Attack stofnuð sem hliðarverkefni út frá The Wild Bunch. Fyrsta plata sveitar- innar, Blue Lines, kom út árið 1991 og sló í gegn, ekki síst vegna smellsins Unfinished Sympathy sem Shara Nelson söng. Eftir það lá leiðin upp á við hjá Massive Attack. Hún gaf út fleiri flottar plötur og varð öflug tónleika- sveit, eins og hún sýndi á frábærum tónleikum í Kaplakrika í júní 1997. Síðasta mánudag kom út endurhljóðblönduð útgáfa af Blue Lines. Hún er fáanleg bæði sem einföld geislaplata og í viðhafnarútgáfu sem inni- heldur plötuna á CD, hágæðamix á DVD og tvær vínylplötur. Blue Lines er oft nefnd sem fyrsta trip-hop platan. Þetta var sannkölluð tímamótap- lata. Auk áhrifa frá hipphopptónlist, blandaði Massive Attack inn í tónlist- ina döbbi, fönki og fleiri hlutum. Um sönginn á plötunni sáu fyrrnefnd Shara Nelson, gamli reggíboltinn Horace Andy og hinn ungi og efnilegi Adrian „Tricky“ Thaws, sem var að hefja ferilinn. Auk þess kom Neneh Cherry við sögu í bakröddum. Blue Lines hljómaði ótrúlega fersk og framsækin þegar hún kom út og eins og heyrist vel á nýju útgáfunni þá hefur hún engu tapað af sjarman- um rúmum tuttugu árum seinna. Hún er enn fersk og lögin níu eru hvert öðru betra. Endurhljóðblandað meistaraverk ENN FERSK Blue Lines hefur staðist tímans tönn. Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna. Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara. Samkeppnin er öllum opin. Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls. Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is. Skilafrestur er til 5. desember. Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba. Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af gerðinni United. Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum. Jólasagan þín
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.