Fréttablaðið - 22.11.2012, Síða 74

Fréttablaðið - 22.11.2012, Síða 74
22. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT VEIÐI | 66 Hlutverk svæðaráðanna Samkvæmt tillögu Skotvís verð- ur hlutverk svæðaráða „að gæta að velferð veiðistofna á Íslandi og tryggja framtíð veiða og nýtingu veiðistofna á skynsamlegan og sjálfbæran hátt.“ Svæðisráðin skuli samræma til- lögur sínar á landsvísu, en einnig að taka tillit til aðstæðna í hverj- um landshluta og á hverju svæði fyrir sig. „Svæðisráði ber að móta sér skoðun á veiðum allra tegunda sem finnast innan þeirra svæðis. Komi eitthvað óvænt upp á, t.d. viðkomubrestur, ógn við varplönd, sjúkdómar, mikil aukning í stofni og svo framvegis, skal funda hið fyrsta og gera tillögur að aðgerð- um, sé talið að slíkt sé raunhæft og til þess fallið að tryggja vel- ferð veiðistofnanna og/eða annarra stofna sem svæðisráðin ber ábyrgð á,“ segir í tillögunum. Griðlönd veiðistofna Skotvís leggur til að Umhverfis- stofnun, eftir atvikum, geri tillög- ur að breytingum á reglugerð og lögum og sendi til ráðuneytisins sem ber að bregðast við sem fyrst. Þá skuli svæðisráð koma með tillögur að griðlöndum fyrir veiði- stofna í þeim tilgangi að tryggja veiðistofnum örugg varplönd og búsvæði árið um kring. Tillögur svæðisráða skuli eiga við allt landið: þjóðgarða, þjóð- lendur, friðlýst svæði, fólksvanga, ríkis jarðir, einkajarðir, eyjur, kletta og sker. Svæðisráð skuli koma með til- lögur að veiðitímabili, sem getur verið eftir atvikum misjafnt á milli landshluta og jafnvel á milli ára ef miklar breytingar eru á veð- urfari. kristjan@frettabladid.is Í tillögum Skotvís, sem bera nafnið Framtíð veiðistjórnunar á Íslandi, segir að veiðistjórnun á Íslandi sé á hrakhólum og hafi verið síðan að embætti veiðistjóra var lagt niður árið 2003. Umhverfisráðuneytið og stofnanir þess hafi tekið við mála- flokknum en hlutverkaskipting orðið svo óskýr að það hafi komið niður á veiðistjórnun. Tillögurnar hafa ekki verið lagð- ar fyrir aðalfund Skotvís en hafa verið ræddar innan stjórnarinnar í að verða ár. „Við teljum að það sé fyrst og fremst þörf á breytingum og setj- um fram þessar byltingarkenndu hugmyndir í von um að þær veki menn til umhugsunar svo hægt sé að ná almennari sátt um fyrirkomu- lag veiðistjórnunar á Íslandi,“ segir Elvar Árni Lund, formaður Skot vís. Elvar Árni segir skotveiðimenn gera sér grein fyrir því að erfitt geti verið að koma svo byltingar- kenndum hugmyndum í gegn. „En við teljum þetta vel framkvæman- legt ef menn taka þessu með opnum hug innan ráðuneytisins,“ segir Elvar Árni. Nýtt skipulag Tillögur Skotvís eru ansi rót tækar og er meðal annars lagt til að Íslandi verði skipt upp í 6-8 veiði- svæði. Svæðisráði verði komið á laggirnar fyrir hvert svæði sem fái síðan það hlutverk að „móta stefnu um veiðistjórnun og nýtingu veiðistofna og fylgja henni eftir á hverju svæði,“ eins og segir í til- lögunum. Samráð skuli haft á milli svæða, eftir því sem þurfa þykir, og svæðisráð hafi heimild til að kalla til liðs við sig sérfræðinga á sviði vistfræði, veiðistjórnunar, náttúru- verndar, umhverfisverndar, beitar- stýringar, dýralækninga, veður- fars og svo framvegis – og jafnvel erlenda sérfræðinga á þessum svið- um. Stefna til tuttugu ára Skotvís leggur til að á fyrsta fundi svæðisráðanna verði mótuð veiði- stjórnunarstefna á Íslandi til fimm, tíu og tuttugu ára. Umhverfisstofn- un taki við tillögum fulltrúanna og í samráði við sérfræðinga stofnun- arinnar verði „unnin heildarstefnu- mótun fyrir veiðar á Íslandi. Ráð- herra staðfestir stefnumótunina og er ábyrgur fyrir því að svæðisráð- in og Umhverfisstofnun fái nauð- synlegt fjármagn af fjárlögum Al- þingis til að fylgja henni eftir“. Þá segir í tillögunum að ráð- herra „geti ekki breytt tillögum og stefnumótun en aftur á móti getur ráðherra farið fram á að einstök atriði verði endurskoðuð innan ráð- anna“. Við teljum þetta vel framkvæmanlegt ef menn taka þessu með opnum hug innan ráðuneytisins. Elvar Árni Lund, formaður Skotvís Skotveiðimenn (Skotvís) Refa- og minkaveiðimenn (Bjarmaland) Landeigendur (Félag landeigenda) Dýravernd (Dýraverndarráð) Hlunnindabændur (Félag hlunnindaveiðimanna, eggja- og háfaveiði- menn) Vistfræðingur/líffræðingur/fuglafræðingur (Náttúrustofur og Nátt- úrufræðistofnun þar sem Náttúrustofur eru ekki fyrir hendi, t.d. fyrir miðhálendið) Vistfræðingur/trjáfræðingur/grasafræðingur (Skógræktin þar sem mikið er um skóga og Landgræðslan á svæðum þar sem starfsemi hennar er umfangsmikil) Fulltrúi sveitarstjórna (Landshlutasamtök sveitarfélaga) Fulltrúi ríkisins (tilnefndur af ríkisstjórn (fulltrúi ríkisins komi fram fyrir hönd þess varðandi þjóðlendur, þjóðgarða, ríkisjarðir, jarðir í eigu ríkis- stofnana og -fyrirtækja) Fulltrúar svæðisráða Vilja bylta veiðistjórnunarkerfinu Skotveiðifélag Íslands leggur til róttækar breytingar á veiðistjórnunarkerfinu í nýjum tillögum. Landinu verði skipt upp í 6-8 veiði- svæði og fyrir hvert svæði verði komið á svæðisráði sem faí það hlutverk að móta stefnu um veiðistjórnun og nýtingu veiðistofna. ELVAR ÁRNI LUND Formaður Skotvís vonast til að með tillögunum náist almenn sátt um veiðistjórnunarkerfið. MYND/ÚR SAFNI ➜ Veiðisvæðin Samkvæmt tillögum Skotvís yrði landinu skipt upp í 6-8 svæði. Sjá tillögur Skotvís í heild sinni á visir.is SÉRSTAKI R GESTIR Dísa Jakob s Kristjana S tefáns Krummi Bjö rgvins Góa og Fjarðarkaup kynna með stolti Við komum með jólin til þín E N N E M M / S IA • N M 54 75 8 Miðasala á Miði.is og í síma 540 9800 www.jolagestir.is Þökkum frábærar viðtökur! Miðasala á aukatónleika í fullum gangi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.