Fréttablaðið - 07.12.2012, Side 12
7. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
STÖÐUGT NÝJAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
6
7
5
J LAB NUS DESEMBER
Komdu við og kynntu þ r væntan og veglegan j lab nus
sem fylgir llum n jum Hyundai b lum desember
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES.
www.hyundai.is
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1
Öll þjónusta Hyundai er opin frá kl. 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
Þetta á við um sýningarsalinn, viðgerðarþjónustuna, varahlutaverslunina og söludeildir nýrra og notaðra
Hyundai bíla. Í neyðartilfellum er hægt að nýta sér 24ra tíma neyðarþjónustu varahlutaverslunar.
UPPLIFÐU N JA T MA MEÐ HYUNDAI
TAKMARKAÐUR AKSTUR
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1 – 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
HYUNDAI i30
BENSÍN EÐA DÍSIL
Verð frá 3.290.000 kr.
HYUNDAI ix35
BENSÍN EÐA DÍSIL
Verð frá 5.890.000 kr.
*Takmarkað magn
Komdu við
og kynntu
þér vegleg
an
jólabónus
* með
nýjum bíl f
rá okkur!
JÓLABÓNU
S
SÝRLAND, AP Hillary Clinton, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, og
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, hittust á Írlandi í gær
og ræddu ástandið í Sýrlandi
ásamt Lakhtar Brahimi, friðarer-
indreka Sameinuðu þjóðanna og
Arababanda lagsins gagnvart Sýr-
landi.
Rússar og Bandaríkjamenn hafa
til þessa verið á öndverðum meiði
gagnvart Sýrlandi. Bandaríkja-
menn hafa gagnrýnt Rússa fyrir
að standa í vegi fyrir að Samein-
uðu þjóðirnar gætu komið upp-
reisnarmönnum og almenningi í
Sýrlandi með einhverjum hætti til
aðstoðar, en Rússar segja Banda-
ríkjamenn á móti reyna að hlutast
til um innanríkismál Sýrlendinga.
Harðir bardagar geisa nú í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Uppreisnarmenn hafa náð æ fleiri
hverfum á sitt vald og sækja hart
að miðborginni.
Stjórnarhernum tókst seint í
sumar að hrekja uppreisnarmenn
frá borginni fljótlega eftir að þeir
höfðu náð henni að mestu á sitt
vald.
Styrkur uppreisnarmanna er
hins vegar orðinn miklu meiri nú
en þá, enda hafa þeir náð á sitt
vald æ fleiri vopnum og herbúnaði
frá stjórnarhernum, sem að sama
skapi er orðinn veikari fyrir.
Þá hafa uppreisnarmenn náð á
sitt vald æ stærri svæðum annars
staðar í landinu, einkum í austur-
hlutanum.
Faisal Miqdad, aðstoðarutan-
ríkis ráðherra Sýrlands, vísaði
algerlega á bug í gær vanga veltum
í fjölmiðlum um að Bashar al Assad
forseti væri að skipuleggja flótta
sinn frá landinu. „Þetta er fynd-
ið, hlægilegt. Ég fullvissa ykkur
hundrað prósent um að Assad for-
seti mun aldrei yfirgefa þetta land,“
var haft eftir honum í fréttum frá
Reuters.
Þá er einnig óttast að Assad muni
láta beita efnavopnum gegn upp-
reisnarmönnum og almenningi í
landinu, en ekki hefur þó verið stað-
fest hvort stjórnvöld búa yfir slík-
um vopnum.
Breska stjórnin undirbýr nú
breytingu á vopnasölubanni til
Sýrlands, sem myndi gera Bretum
kleift að útvega uppreisnar mönnum
vopn.
Þá er bandaríska flugmóður-
skipið Eisenhower komið að strönd-
um Sýrlands þar sem það bíður
átekta, en skipið er komið verulega
til ára sinna og var á leið til við-
gerða í Bandaríkjunum. - gb / þeb
Funduðu um Sýrland
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands funduðu með erindreka SÞ um
málefni Sýrlands í gær. Harðir bardagar geisa nú í Damaskus og uppreisnarmenn
ná fleiri hverfum á sitt vald. Óttast er að stjórnvöld gætu beitt efnavopnum.
CLINTON Í DUBLIN Hillary Clinton hélt líka erindi í háskólanum í Dublin á Írlandi í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP