Fréttablaðið - 07.12.2012, Page 61
FÖSTUDAGUR 7. desember 2012 | MENNING | 41
Gierdu nefnist samísk listasýn-
ing sem opnuð var í Norræna
húsinu í gær. Dag Wernø Holter,
norski sendiherrann á Íslandi,
opnaði sýninguna við hátíðlega
athöfn.
Nafn sýningarinnar má þýða
sem samhengi eða hring sem er
einnig miðlægt tákn í samískri
menningu. Gierdu-hreyfingar í
samíska listaheiminum vísa til
kraftsins og fjölbreytninnar í
þessari list.
Gierdu var sýnd á sextán
stöðum í Norður-Noregi á
árunum 2009 til 2011 og er nú á
ferðalagi á norðurslóðum 2012-
2013: um Rússland, Svíþjóð,
Finnland og Ísland.
Á sýningunni eru verk frá
RiddoDuottarMuseat-safninu í
Karasjok í Noregi. Samkvæmt
tilkynningu frá Norræna húsinu
á safnið eitt af áhugaverðustu
söfnunum af samískri samtíma-
list á Norðurlöndunum.
Sýningin verður opin til 6.
janúar.
Samísk listasýning
Opnuð í Norræna húsinu í dag
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 07. DESEMBER
Sýningar
19.00 Sýning Bjarkar Guðnadóttur,
Snert, opnar í Slippnum hárgreiðslu-
stofu, Skólavörðustíg 25a.
Upplestur
12.10 Yrsa Sigurðardóttir og Ingibjörg
Reynisdóttir lesa úr bókum sínum í
húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð 8. Boðið
verður upp á te, kaffi og brauð.
17.00 Ritlistahópur Kópavogs efnir til
upplesturs á kaffi Retro, Hamraborg 3.
Sex höfundar lesa úr verkum sínum.
Kvikmyndir
15.00 Heimildarmyndin John Lennon/
Plastic Ono Band verður sýnd í Kamesi
Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15.
Myndin fjallar um gerð samnefndrar
plötu sem var fyrsta raunverulega
sólóplata Lennons.
Uppákomur
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá
er í boði á Jóladagatali Norræna
hússins. Uppákomur hvers dags eru
gestum huldar þar til gluggi dagatalsins
verður opnaður í upphafi atburðarins.
Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði
dagatalið í ár.
Tónlist
22.00 Dúkkulísurnar halda 30 ára
afmælistónleika á Græna Hattinum,
Akureyri. Góðir gestir koma einnig fram
á tónleikunum. Miðaverð er kr. 2.000.
22.00 Bræðurnir Óskar og Ómar Guð-
jónssynir, ásamt hljómsveit Óskars og
Ife Tolentonu, halda tónleika á Blús-
kjallaranum Neskaupsstað.
23.00 Hljómsveit Hússeins leikur á Ob-
La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000.
Leiðsögn
12.00 Boðið verður upp á leiðsögn um
sýningu Þórunnar Elísabetar Sveins-
dóttur, Lauslega farið með staðreyndir
– sumt neglt og annað saumað fast, og
sýningu Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur,
Hinumegin. Báðar sýningarnar standa
nú yfir í Hafnarborg og er aðgangur
ókeypis.
12.00 Árdís Olgeirsdóttir fræðslufulltrúi
sér um leiðsögn um sýninguna Fimm
áratugir í grafískri hönnum í Hönnunar-
safni Íslands. Þar má sjá verk grafíska
hönnuðarins Gísla B. Björnssonar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
SAMÍSK HÖNNUN
Eftir að hafa flakkað um
Norður-Noreg er sýn-
ingin nú komin á ferða-
lag um norðurslóðir.