Fréttablaðið - 07.12.2012, Side 80
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
Frakkar hrífast af Auði
Bók Auðar Övu, Rigning í nóvember,
hefur fengið mjög góð viðbrögð í
Frakklandi síðan hún kom þar út
í ágúst. Yfir sextíu þúsund eintök
eru seld, auk þess sem bókin hefur
fengið góða dóma í stórblöðunum
Le Monde og Libération og í tísku-
blaðinu Elle. „Í þessari skáldsögu um
konu sem lendir óvænt í móðurhlut-
verkinu smellur allt saman,“ segir
gagnrýnandi Le Monde. Í dómi Elle
segir: „Það er jafn sjaldgæft og að
vinna stóra pottinn í Lottóinu að
falla tvisvar marflatur fyrir sama
höfundi. Sú er þó
raunin með Auði
Övu Ólafsdóttur.“
Afleggjari Auðar
Övu kom út
hjá Zulma
í Frakk-
landi fyrir
tveimur
árum við
mjög góðar
undirtektir.
Lært af mistökunum?
Til þess eru vítin að varast þau
kynni einhverjum að verða að orði
við þá upprifjun sem boðið er upp
á í Lögbergi HÍ í hádeginu í dag á
opnum fundi Stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála. Yfirskrift
fundarins er: Getum við breytt
stjórnmálunum til hins betra?
Hvaða lærdóm má draga af átökum
fyrri ára í stjórnmálum?
Á fundinum ræðir Styrmir
Gunnarsson, fyrrverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins, við gesti
um nýútkomna bók sína, „Sjálf-
stæðisflokkurinn– Átök og upp-
gjör“. Umræðustjóri
er Ragnheiður Elín
Árnadóttir, stjórn-
málafræðingur og
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
- fb, óká
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Hjá okkur finnur þú allt til alls og færð meira fyrir peninginn
Opið frá 11 - 20 alla daga
Engihjalla og Granda
1 Þjálfari Serbíu tók þátt í varnar-
leiknum frá hliðarlínunni
2 Náði David Beckham að breyta
Bandaríkjunum?
3 Meistaramörkin: Chelsea komst ekki
áfram– hvað sögðu sérfræðingarnir?
4 Liðin sem komust ekki í 16-liða úrslit
misstu af 500 milljónum kr.
5 Meiðsli Lionels Messi eru ekki alvarleg